Feykir - 25.10.2017, Blaðsíða 19
MEÐLÆTI
Focaccia brauð
1 kg brauðhveiti
8 dl volgt vatn
1 msk. salt
1 msk. sykur
1 pk. þurrger
ólífuolía – pipar – saltflögur –
hvítlaukur - ólífur
Aðferð: Þurrefnum blandað saman
í skál, volgu vatni bætt út í og
hnoðað vel saman. Deigið er aðeins
blautt. Leyfið því að hefast í 1-1½
klst.
Útbúið hvítlauksolíu. Penslið
formin sem á að baka brauðin í
með ólífuolíu. Deigið er sett í
formin (ég hnoða það ekki neitt
meir, skipti aðeins deiginu og set í
formið). Látið hefast í 30-60
mínútur undir rökum klút.
Gerið margar holur í deigið og
penslið það með olíunni/hvít-
lauksolíunni. Svartur pipar og
saltflögur sett yfir, og/eða ólífur).
Gott er að setja örlítið af rifnum
osti yfir og baka það síðan.
Hitið ofn upp í 250°C en lækkið
í 225°C þegar brauðið er sett inn í.
Bakið í ca. 20-30 mínútur (fer eftir
þykkt brauðsins).
Verði ykkur að góðu!
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Botn, Örn og Torfi.
Feykir spyr...
Hvað ætlar þú
að kjósa?
Spurt í Skírisskógi
UMSJÓN palli@feykir.is
MYNDIR Gunnhildur Gísla
„Mér er alveg sama hver
kemst til valda, svo lengi
sem engin bakarí eða
sláturhús loka... mmm... já...
kjams... kjams... namm!“
Tóki munkur
„Ég ætla að skila auðu, það
þarf engan stjórnmálaflokk í
Skírisskógi – þar sé ég um að
semja reglurnar!“
Hrói höttur
„Ég ætla að stofna minn
eigin flokk á næstu árum.
Mig hefur alltaf langað til að
hugsa út fyrir kassann
í Nottingham.“
Maríon
Gúllassúpa með
focaccia brauði
„Ég ólst upp í firðinum fagra og á mikla tengingu þangað. Í dag
eyði ég nær öllum mínum frítíma þar. Matur hefur alltaf verið mér
ofarlega í huga og hef alltaf borðað vel. Bestu stundir lifsins eru
líklega tengdar mat af einhverju leyti. Margar sögur eru til af mér
í eldhúsinu og standa tvær líklega upp úr. Önnur fjallar um það
þegar ég sauð upp af kartöflunum og brenndi þær. Hin er þegar
ég bauð systur minni, sem er kokkur, í mat og hafði pakkapasta,“
segir skagfirski matgæðingurinn Sólborg Indíana.
Hún gefur okkur uppskrift af gúllassúpu sem hún segir að hafi
verið elduð oft á hennar heimili við ýmis tilefni. „Hún er einföld
og bragðgóð. Ég fékk uppskriftina í upphafi af Eldhússögum. Ég
hef ég líka oft Focaccia brauð með, sem er einfalt í bakstri,“ segir
Sólborg.
RÉTTUR
Gúllassúpa
600 g gúllas
1 rauð paprika, skorin í bita
1 gulur laukur
u.þ.b. 6 meðalstórar kartöflur
u.þ.b. 3 meðalstórar gulrætur
1 msk. paprikukrydd
1½ tsk. cummin (ath. ekki kúmen)
salt og pipar
chili krydd eftir smekk (ég notaði
chili explosion)
2 msk. ólífuolía
1 líter kjötkraftur (nautakraftur
og vatn)
3 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
2 msk. smjör
1-2 msk. tómatpúrra
sýrður rjómi.
Aðferð: Kjötið er skorið í minni
teninga ef með þarf. Kartöflur,
laukur og gulrætur flysjaðar og
skornar í meðalstóra teninga. Kjöt,
laukur og paprika er steikt upp úr
olíu í stórum potti og öllum
kryddunum bætt út í. Þegar kjötið
hefur fengið lit er nautakraftinum
og tómatpúrrunni bætt út í pottinn
og suðan látin koma upp. Þá er
smjörinu og hvítlauknum bætt út í.
Látið malla í ca. 50-60 mínútur,
súpan verður enn betri ef hún fær
að malla lengur! Þegar um það bil
20 mínútur eru eftir af
suðutímanum er kartöflunum og
gulrótunum bætt út í súpuna.
Borin fram með sýrðum rjóma og
góðu brauði.
Sólborg Indiana. MYND ÚR EINKASAFNI
„Ég veit ekki alveg hvern
ég kýs, eiginkonan mín
ákveður það venjulega fyrir
okkur bæði... Hún er svo
undurfríð og gáfuð!“
Sýslumaðurinn
( MATGÆÐINGUR VIKUNNAR ) frida@feykir.is
er Sólborg Indíana Guðjónsdóttir
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING
Krossgáta
Tilvitnun vikunnar
Vandamálið með pólitíska djóka er
að þeir eru oft kosnir. – Henry Cate, VII
40/2017 19
Ótrúlegt, en kannski satt...
Kettir eru taldir hafa níu líf. Ótrúlegt, en kannski satt,
þá eru meiri líkur á að köttur lifi fall af 20. hæð heldur
en þeirri sjöundu. Talið er að það taki köttinn um
átta hæðir að átta sig á hvað er að gerast, slaka á og
leiðrétta sig.
Bóndinn / Vísnagátur Sigurðar Varðar
Fyrstu tvær hendingarnar segja hvað
bærinn heitir, þriðja lína bóndinn
og sú fjórða hver
faðirinn er.
Tíundi býr fremst í fjalladal
í friði og ró.
Sagður fljúga fugla hæst.
Faðirinn úr mýri næst.