Bændablaðið - 26.01.2017, Side 4

Bændablaðið - 26.01.2017, Side 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2017 Fjármál LbhÍ í bata og 70 milljónir lagðar í Reyki: Björn hættir sem rektor Björn Þorsteinsson hefur sagt stöðu sinni lausri sem rektor Landbúnaðarháskóla Íslands. Skuldastaða skólans hefur batnað en 85% af skuldum LbhÍ við rík- issjóð voru afskrifaðar um síðustu áramót. Gert er ráð fyrir að 70 milljónir króna fari í uppbyggingu Garðyrkjuskólans að Reykjum á þessu ári. Í samtali við Bændablaðið sagði Björn að ástæður þess að hann kýs að láta af störfum áður en skipunartími hans sé allur séu persónulegar. Starf rektors Landbúnaðarháskólans verður auglýst laust til umsóknar fljótlega og mun Björn láta af störfum um leið og nýr rektor tekur við. Hagur LbhÍ vænkast Björn segir að fjárhagur Land- búnaðarháskólans hafi tekið miklum stakkaskiptum frá árinu 2014. „Þegar ég tók við skólanum var búinn að vera hallarekstur á skólanum í mörg ár og búið að leggja drög að aðgerð- um til að láta enda ná saman. Það féll síðan í minn hlut að hrinda þeim erfiðu aðgerðum í framkvæmd sem fólust meðal annars í því að segja upp starfsmönnum. Við það snerist rekstur- inn við og skólinn skilaði afgangi og gat greitt upp í skuldir sínar við rík- issjóð. Við lokaafgreiðslu fjárlaga um síðustu áramót voru 85% af skuldum skólans við ríkið afskrifaðar. Í dag hillir því undir að rekstur skólans sé kominn í eðlilegt ástand og að hægt sé að fylla í þau faglegu skörð sem mynduðust við niðurskurðinn,“ segir Björn. Langvarandi viðhaldsleysi á byggingum Við gerð nýs fjárlagafrumvarps var ákveðið að leggja 70 milljónir króna til viðgerða á húsakosti gamla garðyrkju- skólans á Reykjum. Björn rektor segir að meira fjármagn þurfi til að koma húsnæði skólans í viðeigandi horf. „Viðhaldsleysi skólans hefur verið langvarandi vegna fjármagnsskorts og því nauðsynlegt að kortleggja fram- kvæmdirnar vel. Fjármagnið dugar til að hefja fyrstu aðgerðir og gera framkvæmdaáætlun um næstu skref. Ekkert hefur enn verið ákveðið með röð framkvæmda og greiningavinna að fara í gang í samstarfi við fasteigna- skrifstofu menntamálaráðuneytisins og Ríkiskaupa,“ segir Björn. /VH Fréttir Ríkisstjórnarflokkarnir með meirihluta í öllum fastanefndum Alþingis Búið er að kjósa í allar fastanefnd- ir Alþingis og eru stjórnarflokk- arnir með meirihluta í þeim öllum. Haraldur Benediktsson, fyrrver- andi formaður Bændasamtaka Íslands og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er formaður fjárlaganefndar og Hanna Katrín Friðriksson, formaður þingflokks Viðreisnar, verður vara- formaður. Valgerður Gunnarsdóttir, Sjálfstæðisflokki, verður formaður umhverfis- og samgöngunefndar. Atvinnuveganefnd Ekki var búið að kjósa for- mann atvinnuveganefndar þegar Bændablaðið fór í prentun en samkvæmt heimildum verður Páll Magnússon, Sjálfstæðisflokki, for- maður hennar. Ásamt Páli eru eftirfarandi þing- menn í atvinnuveganefnd: Ásmundur Friðriksson, Sjálfstæðisflokki, Hanna Katrín Friðriksson, Viðreisn, Theodóra S. Þorsteinsdóttir, Bjartri framtíð, Óli Björn Kárason, Sjálfstæðisflokki, Eva Pandora Baldursdóttir, Pírötum, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Vinstri grænum, Logi Már Einarsson, Samfylkingunni og Sigurður Ingi Jóhannsson, Framsóknarflokki. /VH Formaður og framkvæmdastjóri BÍ: Ræddu við nýjan ráðherra um málefni landbúnaðarins Um leið og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tók við sem nýr landbúnaðarráðherra óskuðu Bændasamtökin eftir fundi með henni. Sá fundur var haldinn um miðja síðustu viku en það voru þeir Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtakanna, og Sigurður Eyþórsson framkvæmdastjóri sem hittu hana að máli. Að sögn Sindra var fundurinn góður en farið var yfir ýmis mál sem eru ofarlega á baugi og bændur vildu ræða við nýjan ráðherra. Hugmyndir um endurskipun í starfshóp um búvörusamninga „Við ræddum meðal annars við ráðherra um stefnuyfirlýsingu nýju ríkisstjórnarinnar og hugmynd- ir ráðherrans um að endurskipa í starfshóp um endurskoðun búvöru- samninga. Við lögðum áherslu á að þeir sem hafa tilnefnt fulltrúa sína í hópinn héldu þeim,“ segir Sindri. Í þessari viku setti Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi landbúnað- arráðherra, færslu á Facebook þar sem hann spáði því að talsmönnum milliliða yrði bætt í nefndina þar sem þeir geti gætt sinna hagsmuna. Sagði hann jafnframt að búvöru- samningar fjölluðu ekkert um afkomu heildsala né verslunarinn- ar. „Talsmenn heildsala eiga a.m.k. ekkert erindi í slíka nefnd þar sem þeir eru milliliðir sem auka kostn- að neytenda,“ sagði Gunnar Bragi. Frystikrafan er mikilvæg Hráakjötsmálið bar á góma á fundi ráðherra með bændum en Bændasamtökin hafa í ræðu og riti lagt þunga áherslu á að ekki sé slakað á frystikröfunni þegar kemur að því að flytja inn erlent kjöt. „Við fórum yfir okkar rök í málinu sem eru sterk. Við viljum ekki leyfa innflutning á hráu kjöti hingað til lands enda leggj- um við mikla áherslu á að vernda okkar heilbrigðu búfjárstofna. Þetta er líka lýðheilsumál en við höfum margoft bent á mikla sýklalyfjanotk- un í búfjárrækt í þeim löndum sem við eigum mest viðskipti við.“ Að auki sagði Sindri að rætt hefði verið um samkeppnisstöðu landbúnaðarins og almennt um tollamál og innflutning á matvæl- um. Að lokum var ráðherra boðið í heimsókn í Bændahöllina sem hún þáði með þökkum. „Við óskuðum nýjum ráðherra að sjálfsögðu til hamingju með embættið og treyst- um því að samstarf við bændur verði farsælt og heilladrjúgt,“ sagði Sindri Sigurgeirsson. /TB Sindri Sigurgeirsson. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir landbúnaðarráðherra sagði í samtali við Bændablaðið að á fundi hennar með forsvarsmönnum BÍ í síðustu viku hefði verið farið yfir nokkur atriði sem lúta að búvörusamning- um og landbúnaði almennt. Auk þess sem fundinum hafi verið ætlað efla samskiptin Bændasamtakanna og nýs landbúnaðarráðherra. Endurskoðunarnefndin endurskoðuð „Sindri og Sigurður voru meðal annars að spyrjast fyrir um nefndina sem ætlað er að endurskoða búvörusamningana og hvernig ég hef hugsað mér að hana. Hvernig endurskoðun varðandi tollkvóta verður háttað og hvernig á að endur- skoða mál mjólkuriðnaðarins og samkeppnislög. Ég sagði þeim að ég ætlaði að endurskipa eða endurraða í endur- skoðunarnefnd. Ég er ekki enn búin að ákveða hvort nefndin verði skip- uð öll að nýju eða hvort ég tek út þá fulltrúa sem voru skipaðir af síðasta ráðherra og skipa nýja í þeirra stað.“ Fyrirkomulag tollkvóta skoðað „Endurskoðun á fyrirkomulagi toll- kvóta er annað verkefni sem verður að skoða að mínu mati í ljósi þess að tollkvótarnir munu aukast mikið á næstunni. Ég tel að fyrirkomulag tollkvótanna eins og þeir eru í dag muni ekki nýtast neytendum sem skyldi eftir að þeir verða auknir.“ Þorgerður segir að áður en nokk- uð verði ákveðið með breytingar á tollkvótunum ætli hún að bíða eftir samþykkt Evrópusambandsins um málið sem væntanlega liggur fyrir í vor. Samkeppnisumhverfi mjólkuriðnaðarins „Hvað mjólkuriðnaðinn og samkeppnislög varðar sagði ég Sindra og Sigurði að eitt af því sem ég ætlaði mér að gera væri að láta skoða samkeppnisumhverfi mjólkuriðnaðarins, en ekkert hefur verið ákveðið í þeim málum enn sem komið er,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. /VH Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir landbúnaðarráðherra: „Fórum yfir nokkur atriði búvörusamninganna“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Alþingi við Austurvöll. Mynd / BBL Þessir hressu krakkar í 5. bekk í Landakotsskóla í Reykjavík fögnuðu bónda- deginum á föstudaginn var með viðeigandi hætti. Sum hver mættu í lopa- klæðnaði í tilefni dagsins og umsjónarkennarinn fór yfir það í kennslustund út á hvað þorrasiðirnir ganga. Fyrsti dagur þorra er nefndur bóndadagur en sá síðasti þorraþræll. Á þorranum gera landsmenn vel við sig í mat og drykk en ekki er ýkja langt síðan að sá siður varð almenn ur að halda súrveislur á þorra. Í Sögu daganna eftir Árna Björnsson þjóðhátta- fræðing er þess getið að mánaðarnafnið sé kunnugt frá 12. öld en uppruni þess er óviss. Börnin í 5. bekk Landakotsskóla fagna komu þorra. Mynd / TB Matvælastofnun vinnur að áhættu- og frammistöðuflokkun fyrir frumframleiðslu: Hvatning til betri búskapar Matvælastofnun vinnur að áhættu- og frammistöðuflokkun fyrir frumframleiðslu; framleiðslu á kjöti, mjólk og öðru búfjárhaldi. Jónína Þ. Stefánsdóttir, fag- sviðsstjóri samhæfingar hjá Matvælastofnun, segir að markmið með áhættu- og frammistöðuflokk- unarkerfi í frumframleiðslu sé að for- gangsraða eftirliti í samræmi við þær kröfur sem löggjöfin gerir ráð fyrir. „Mest eftirlit verður með starf- semi sem felur í sér mesta áhættu varðandi dýravelferð og matvæla- öryggi. Áhættumiðað eftirlit tryggir að eftirliti sé forgangsraðað út frá þörfum. Með frammistöðuflokkun dregur úr eftirliti með þeim sem standa sig vel, á meðan eftirlit er aukið þar sem ekki hefur tekist að uppfylla að öllu leyti ákvæði laga og reglugerða. Þannig fæst betri nýting á tíma, mannauði og fjármagni sam- hliða skilvirkara eftirliti. Vonir standa til að hægt verði að ljúka útfærslu á áhættuflokkunar- kerfinu á þessu ári og vinna eftir því frá og með næsta ári. Frammistöðuflokkun í frumfram- leiðslu verður ekki að fullu virk fyrr en búið er að skoða allar starfsstöðv- ar samkvæmt áhættuflokkunarkerf- inu, sem tekur líklega um þrjú ár. Kerfið verður eftir það í stöð- ugri endurskoðun,“ segir Jónína. „Bændur verða varir við að tíðni eftirlits með starfsemi þeirra breyt- ist í kjölfar áhættuflokkunar og það verður markvissara. Neytendur munu einnig njóta góðs af mark- vissara eftirliti með matvælaöryggi og dýravelferð.“ Þrír frammistöðuflokkar Frammistaða verður flokkuð í þrjá flokka; A, B og C eftir fjölda frávika og alvarlegra frávika við einstök skoðunaratriði og hvernig staðið er að úrbótum. Þetta er að sögn Jónínu með líkum hætti og gert er varðandi áhættu- og frammistöðuflokkun fóður- og matvælafyrirtækja. Þeir sem standa sig vel fá minna eftirlit og þar með lægri eftirlitsgjöld, en þeir sem standa sig illa fá tíðara eftirlit og hærri eftirlitsgjöld. Jónína segir að allar nýjar starfsstöðvar byrji í frammistöðu- flokki B. „Til að hægt sé að flokka frammistöðu fyrirtækis í fyrsta sinn þarf að skoða að minnsta kosti 95 prósent þeirra skoðunaratriða sem skilgreind hafa verið fyrir starf- semina. Ef skoðun leiðir til þess að starfsstöðin færist í frammistöðu- flokk A, margfaldast eftirlitsþörf- in með 0,5 þannig að starfsstöðin fær 50 prósent færri eftirlitstíma en þegar hún var í flokki B. Ef starfs- stöð færist í frammistöðuflokk C, margfaldast eftirlitsþörfin með 1,5 þannig að starfsstöðin fær 50 prósent fleiri eftirlitstíma en þegar hún var í B flokki.“ /smh Björn Þorsteinsson, rektor LbhÍ. Bóndadagurinn markar komu þorra

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.