Bændablaðið - 26.01.2017, Síða 10

Bændablaðið - 26.01.2017, Síða 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2017 Fréttir „Það er að mörgu að hyggja, margir samverkandi þættir sem spila vel saman sem gera að verkum að góður árangur næst,“ segir Sigurður Ólafsson, en hann og eiginkonan, Gróa Margrét Lárusdóttur, bændur á Brúsastöðum í Vatnsdal, reka afurðahæsta kúabú landsins. Brúsi, nafnið sem búið er rekið undir, hefur undanfarin 5 ár verið í hópi afurðahæstu kúabúa landsins og þar af þrisvar skipað fyrsta sætið. Meðalafurðir búsins voru á liðnu ári að meðaltali 8.990 kg á árskú. Nína 676 í þeirra eigu var svo afurðahæsta kýr landsins á síðastliðnu ári, mjólkaði 13.833 kg sem er Íslandsmet. Sigurður segir gróffóðrið, heyið skipta verulegu máli og að þau séu efnagreind og eins að það kjarnfóður sem gefið sé með passi við. „Við höfum keypt kjarnfóður frá Landstólpa undan- farin ár og ég tel að þær blöndur sem fyrirtækið býður upp á henti afar vel á okkar bú, við höfum tekið eftir því að afurðir hafa auk- ist eftir að við fórum að nota það, það virkar í það minnsta vel á okkar gripi,“ segir Sigurður. „Það er kannski lykillinn að þessum árangri.“ Heilmikil yfirlega Sigurður segir það einnig skipta máli að sinna búinu vel, vera vakinn og sofinn yfir velferð kúnna, gæta vel að hreinlæti og hafa til að mynda bása alltaf hreina. „Eftir því sem við sinnum búinu betur verður árangur- inn meiri og betri og fleiri krónur fást fyrir afurðir. Þetta er heilmikil yfirlega og við sinnum þessu bæði alla daga, förum fjórar ferðir í fjós á dag,“ segir hann. „Við erum reyndar líka svo heppin að eiga góða granna sem hlaupa á stundum undir bagga og hið sama gerum við fyrir þau. Það er ómetanlegt.“ Gott fóðurkerfi skilar sínu og einnig mjaltaþjónn sem verið hefur á búinu frá árinu 2011. Jarðrækt hefur alla tíð verið stunduð á Brúsastöðum, tún eru endurunnin reglulega, um 20 til 25 ha á ári, en þannig segir Sigurður að hámarksuppskera náist. „Við höfum líka þann háttinn á að kýrnar skortir aldrei hey, ef þær vilja éta hafa þær kost á því hvenær sem er sólarhringsins.“ /MÞÞ Sigurður Ólafsson, bóndi á Brúsastöðum: Margir samverkandi þættir sem spila vel saman skila góðum árangri Áburðareftirlit Matvælastofnunar fyrir 2016: Fjórar áburðartegundir teknar af skrá Ársskýrsla áburðareftirlits Matvælastofnunar fyrir síðasta ár var birt á vef stofnunarinnar 12. janúar síðastliðinn. Í skýrsl- unni er að finna helstu niður- stöður eftirlits með áburði, en í fyrra fluttu 24 fyrirtæki inn áburð og jarðvegsbætandi efni, alls 306 tegundir. Fjórar áburðar- tegundir voru með efnainnihald undir vikmörkum. Í einu tilviki voru fleiri en eitt næringarefni undir leyfðum vikmörkum. Þessar tegundir hafa verið teknar af skrá Matvælastofnunar. Kadmíum aldrei yfir leyfðu hámarki Kadmíum (Cd) var mælt í öllum áburðartegundum sem innihalda fosfór. Efnið var oftast undir mæl- anlegum mörkum og alltaf undir leyfðu hámarki sem er 50 mg/kg P. Fáar athugasemdir voru gerðar við merkingar, en helstu gallar voru vegna misræmis milli skráninga og merkinga einnig voru merkingar máðar í nokkrum tilfellum. Þá voru gerðar athugasemdir ef merkingar voru ekki á Íslensku. Hjá Búvís voru gildi undir leyfðum vikmörkum í sjö áburðartegundum af þeim tólf sem Matvælastofnun tók sýni úr. Efnagreiningar Búvís á systursýn- um gáfu gildi undir leyfðum vikmörk- um fyrir eina tegund. Áburðartegundin Völlur 23-5+Ca+Mg+S+Se mældist í báðum tilfellum undir leyfðum vik- mörkum og er hún því tekin af skrá Matvælastofnunar. Hjá Fóðurblöndunni voru tekin sýni úr 13 áburðartegundum sem fyr- irtækið flytur inn, en engar tegundir voru teknar af skrá. Matvælastofnun tók sýni af átta áburðartegundum sem Lífland ehf. flytur inn. Tvær áburðartegundir sem mældust undir leyfðum vikmörkum í báðum mælingum, Líf 21-6-9,5 þar sem kalí (K) mældist undir vikmörk- um og Líf 20,6-11-9+Se sem mældist sömu leiðis undir vikmörkum fyrir kalí (K). Matvælastofnun tók sýni af 15 áburðartegundum sem Skeljungur hf. flytur inn. Efnagreiningar Matvælastofnunar gáfu gildi undir leyfðum vikmörkum í 11 áburðar- tegundum, en aðeins ein áburðar- tegund, OEN 20-18-15, var tekin af skrá Matvælastofnunar þar sem brennisteinn (S) mældist undir leyfð- um vikmörkum í báðum greiningum. Matvælastofnun tók sýni úr átta áburðartegundum sem Sláturfélag Suðurlands sf. flutti inn. Efnagreiningar Matvælastofnunar gáfu gildi undir leyfðum vikmörkum í 2 áburðartegundum. Efnagreiningar fyrirtækisins á systursýnum gáfu gildi yfir leyfðum vikmörkum fyrir þessar tegundir, því voru engar áburðar- tegundir sem Sláturfélagið flytur inn teknar af skrá. /smh Með nýjum búvörusamningum sem tóku gildi um áramót er tekinn upp svæðisbundinn stuðningur fyrir sauðfjárbændur. Byggðastofnun var fengin til að koma með tillögu að útfærslu í sam- ræmi við samningana. Markmið svæð- isbundins stuðnings eru að styðja þá framleiðendur sem eru á landsvæð- um sem eru háðust sauðfjárrækt og framleiðendur sem hafa takmarkaða möguleika á annarri tekjuöflun. Þar eru sett skilyrði um að lögbýli skuli vera í 40 km akstursfjarlægð eða lengra frá þéttbýlisstöðum sem eru með yfir 1.000 íbúa, 75 km akstursfjarlægð eða lengra frá þéttbýlisstöðum sem eru með yfir 10.000 íbúa og 150 km akstursfjar- lægð eða lengra frá Reykjavík. Matvælastofnun er heimilt að víkja frá skilyrðum um akstursfjarlægð ef framleiðandi sýnir fram á með gögn- um að þjóðvegur að lögbýli þar sem hann stundar sauðfjárrækt hafi lokast vegna snjóa, skriðufalla og vatnavaxta í meira en fimm daga að ári síðastliðin tvö ár. Bændur sem telja sig uppfylla þetta heimildarákvæði þurfa að senda gögn til Matvælastofnunar sem sýna fram á þetta. Rétthafar svæðisbundins stuðnings þurfa jafnframt að vera hand- hafar greiðslna samkvæmt 3. gr. reglu- gerðar um stuðning við sauðfjárrækt og þurfa að hafa átt 250 ær eða fleiri samkvæmt haustskýrslu síðastliðins hausts. Framleiðendur í Árneshreppi þurfa þó aðeins að hafa átt 100 ær eða fleiri. /TB Svæðisbundinn stuðningur fyrir sauðfjárbændur Landstólpi fær umboð fyrir Fullwood-mjaltaþjóna Landstólpi ehf. hefur fengið einkaleyfi á Íslandi til að selja Fullwood M2erlin mjaltaþjóna og veita notendum þeirra tilheyrandi þjónustu. Þetta gerist samkvæmt nýjum umboðssamningi við breska stórfyrirtækið Fullwood. Í fréttatilkynningu frá Landstólpa segir að Fullwood sé leiðandi í hönnun og framleiðslu mjaltakerfa og mjaltabúnaðar, hefur starfað í meira en sjö áratugi og skiptir við bændur í yfir 80 ríkjum um víða veröld. Arnar Bjarni Eiríksson, fram- kvæmdastjóri Landstólpa, segir að samningurinn við Fullwood marki tímamót hjá Landstólpa og raun- ar íslenskum kúabúskap yfirleitt. „Fullwood er breskt fyrirtæki og í fremstu röð í heiminum á sínu sviði. Aðdragandinn er vinna og viðræður undanfarin tvö ár en nú er samkomu- lagið í höfn eftir vandaðan undirbún- ing. Landstólpi tekur stórt skref í starf- seminni með því að geta nú boðið hið heimsþekkta og rótgróna vörumerki Fullwood, sem hluta heildarlausn- ar við fjós- byggingar. Það einfald- ar skipulag, samskipti og framkvæmd- ir að eiga við einn aðila í stað margra. Slík hag- ræðing jafn- gildir sparnaði og þar getur munað miklu í krónum talið. Við kappkostum að bjóða viðskiptavin- um einungis það besta og Fullwood mjaltaþjónar standa sannarlega undir því.“ David O‘Hare, viðskiptaþróunar- stjóri hjá Fullwood, kom til Íslands á dögunum og gekk frá umboðssamn- ingnum. Að hans sögn er starfsemi Landstólpa afar fagmannleg og staða fyrirtækisins sterk á íslenska markaðnum. „Fullwood hefur miklar væntingar til samstarfs um að koma M2erlin á framfæri á Íslandi.“ /VH Innlausn greiðslumarks mjólkur Innvigtunargjald lækkar Sigurður Ólafsson og Gróa Margrét Lárusdóttur, bændur á Brúsastöðum í Vatnsdal, hafa hlotið fjölmörg verðlaun á sínum búskaparferli. Myndir / HKr. Sérstakt innvigtunargjald á mjólk lækkar í kr. 20 frá 1. febrúar 2017. Þetta var ákveðið á fundi í stjórn Auðhumlu í síðustu viku í ljósi fyrirliggjandi gagna um þróun innvigtunar og fjölda gripa. Fyrir breytingu var innvigtunar- gjald 35 kr. á lítra. Auðhumla gaf það út í lok október sl. að frá áramótum yrði áfram greitt fullt verð fyrir alla innlagða mjólk með tilliti til verð- efna og gæða en sérstakt innvigtun- argjald hækkaði í kr. 35 á hvern lítra mjólkur umfram greiðslumark. Gjaldið yrði hins vegar endurskoðað mánaðarlega og hækkað eða lækkað eftir aðstæðum og því hvernig fram- leiðsla og sala þróast. Ástæður fyrir sérstöku innivigtunargjaldi eru þær að Auðhumla greiðir hærra verð til innleggjenda en fæst við sölu þessar- ar mjólkur. /TB Stuðningsgreiðslur til sauðfjárbænda: Beingreiðslur í sauðfjárrækt ekki lengur greiddar fyrsta virkan dag í febrúar Jón Baldur Lorange, fram- kvæmdastjóri Búnaðarstofu Matvælastofnunar, segir að vegna nýrra búvörusamninga og í sam- ræmi við reglugerð um stuðning í sauðfjárrækt eigi að gera árs- áætlun um heildargreiðslur fyrir 15. febrúar. Fyrsta greiðsla á að fara fram í febrúar en í reglugerðinni kemur ekki fram nákvæmlega hvenær. Vakin er athygli á því að fyrstu greiðslur til sauðfjárbænda eru áætlaðar um miðjan febrúar sam- kvæmt nýjum búvörusamningi og í samræmi við reglu- gerð um stuðning við sauðfjárrækt nr. 1151/2016 sem var birt á síðustu dögum nýliðins árs. Matvælastofnun gerir ársáætlun um heildargreiðslur til framleiðenda fyrir 15. febrúar eins og áður segir. Um er að ræða beingreiðslur, gæðastýr- ingargreiðslur, greiðslur fyrir ull- arnýtingu og svæðisbundinn stuðn- ing. Beingreiðslur í sauðfjárrækt eru hluti ársáætlunarinnar og því var gert ráð fyrir að þær yrðu ekki lengur greiddar fyrsta virkan dag í febrúar eins og verið hefur. Jón Baldur segir hins vegar að í ljósi þess að það kæmi sér illa fyrir bændur að fá ekki neina greiðslu í byrjun febrúar, þá sé unnið að því að greiða beingreiðslur til sauðfjár- bænda strax í byrjun febrúar. Það yrði þá fyrirframgreiðsla, sem síðan verði hluti af ársáætlun- inni yfir allar stuðningsgreiðslur. /VH Jón Baldur Lorange. Valgeir Bjarnason hefur umsjón með áburðareftirliti Matvælastofnunar. Viðskipti með greiðslumark mjólk- ur milli handhafa eru óheimil frá og með 1. janúar 2017, nema milli lög- býla í eigu sama aðila, samkvæmt samningi um starfsskilyrði naut- griparæktar sem skrifað var undir 19. febrúar 2016. Ríkið hefur innlausnarskyldu á greiðslumarki gagnvart þeim sem óska eftir henni á árunum 2017-2019. Með innlausn greiðslumarks mjólkur er unnið skv. 9. gr. reglugerðar um stuðn- ing við nautgriparækt nr. 1150/2016. Handhafi greiðslumarks getur lagt fram beiðni um innlausn á ónotuðu greiðslumarki á þar til gerðu eyðublaði í þjónustugátt Matvælastofnunar. Með beiðni um innlausn skal fylgja stað- festing um eignarhald á lögbýli, sam- þykki ábúenda, sameigenda og þing- lýstu samþykki veðhafa jarðarinnar. Beiðni um innlausn er bindandi frá skiladegi beiðninnar um innlausn. Við innlausn á greiðslumarki skal seljandi endurgreiða greiðslur vegna greiðslu- marks yfirstandandi framleiðsluárs sem svarar til þess magns sem selt er. Matvælastofnun skal draga fjárhæð þessara greiðslna frá innlausnarverði við frágang innlausnar. Innlausnarverð er 138 kr./ltr. Fyrir innleyst greiðslumark greiðir ríkissjóður 138 kr./ltr. Innlausnarvirði greiðslumarks helst óbreytt frá aug- lýsingardegi innlausnarvirðis til 31. desember 2017. Greiðslumark framleiðanda þar sem engin framleiðsla fer fram í a.m.k. heilt verðlagsár skal ríkið innleysa á fyrsta innlausnardegi hvers árs, án þess að bætur komi fyrir. Nánari upplýsingar á mast.is. Arnar Bjarni og David O‘Hare.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.