Bændablaðið - 26.01.2017, Blaðsíða 12

Bændablaðið - 26.01.2017, Blaðsíða 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2017 Fréttir Stjórnmálaaflið Viðreisn fékk sjö þingmenn og 10,5% fylgi í síðustu alþingiskosningum. Eftir langan aðdraganda var mynduð ríkis- stjórn þar sem Viðreisn á þrjá ráðherra, þar á meðal ráðherra landbúnaðarmála. Í kosningabar- áttunni voru landbúnaðarmálin ekki efst á blaði en þó kom fram í máli frambjóðenda Viðreisnar að hreyfingin vildi gera róttækar breytingar á landbúnaðarkerf- inu. Fyrir mörgum er Viðreisn óskrifað blað en komandi mánuðir munu leiða í ljós áherslur þeirra við ríkisstjórnarborðið. Blaðamaður Bændablaðsins hitti Jónu Sólveigu Elínardóttur, þing- mann og varaformann Viðreisnar, að máli á dögunum. Þau ræddu meðal annars um stefnu flokksins og ríkisstjórnarinnar í landbúnaðar- málum, nýjan landbúnaðarráðherra og endurskoðun búvörusamninga. Viðreisn sem flokkur hefur talað fyrir Evrópusambandsaðild og telur ekkert að óttast fyrir íslenska bændur gerist Ísland aðildarland. Mýrdælingur með meistaragráðu í alþjóðasamskiptum Jóna Sólveig Elínardóttir er alin upp á bænum Sólheimahjáleigu austur í Mýrdal þar sem fjölskylda hennar stundar búskap. „Ég sótti alltaf mikið í að fara heim og það var alltaf mikil sveitastelpa í mér. Innan fjölskyldunnar hefur alltaf verið mikill áhugi á að ræða stjórn- mál og ég er komin frá miklu fram- sóknarheimili. Þrátt fyrir að það hafi komið snemma í ljós að ég væri ekki alltaf sammála fjölskyldunni í stjórnmálum þá hefur alltaf mátt vera ósammála og ræða málin. Við getum alveg tekist á um málin en við erum alltaf vinir,“ segir Jóna Sólveig. „Eftir stúdentspróf fór ég beint í Háskóla Íslands og kláraði þaðan BA-gráðu í frönsku. Svo fór ég í alþjóðastjórnmálin og tók meistara- próf í alþjóðasamskiptum. Í meist- aranáminu fór ég í starfsnám út til Parísar og vann í sendiráði Íslands. Eftir starfsnámið kom ég heim og skrifaði lokaritgerðina mína sem fjallaði um áhrif spænskra hags- munaaðila á sameiginlega sjávar- útvegsstefnu Evrópusambandsins.“ Eftir nám stofnaði Jóna Sólveig ráðgjafarfyrirtæki ásamt öðrum. „Það sérhæfði sig meðal annars í því að aðstoða lítil og meðal- stór nýsköpunarfyrirtæki að nýta sér þá styrki sem ESB hefur upp á að bjóða. Meðfram vinnunni hjá ráðgjafarfyrirtækinu vann ég hjá Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands ásamt því að stunda rann- sóknir á því hvernig hagsmunaaðilar höfðu áhrif og upplifðu sig á meðan á aðildarviðræðum Íslands við ESB stóð. Þar skoðaði ég aðallega hags- munaaðila tengda byggða-, land- búnaðar- og sjávarútvegsmálum.“ Jóna Sólveig og Viðreisn Jóna Sólveig segir að hún hafi byrj- að hjá Viðreisn fyrir um það bil tveimur og hálfu ári þegar byrjað var að móta stefnu og starf flokks- ins. „Ég sýndi þessari hreyfingu strax áhuga og tók þátt frá upphafi. Ég hafði í raun aldrei fundið flokk- inn minn fyrr en Viðreisn varð til. Það sem heillaði mig var frjálslynd stefna Viðreisnar og áhersla þeirra á að tryggja góða stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu. Annað sem ég kann að meta við Viðreisn er hversu faglega er staðið að öllu og virkt málefnastarfið er í málefnahópun- um.“ Viðreisn og landbúnaðurinn „Við höfum talað fyrir breytingum á styrkjakerfinu þar sem dregið verð- ur úr framleiðslutengdum styrkjum og farið frekar í beina styrki með áherslu á stuðning til nýsköpunar, jarðræktar og umhverfisverndar. Við höfum aldrei talað um að draga úr styrkjum til bænda, heldur breyta samsetningunni á þeim með það að markmiði að auka frelsi bænda til að gera það sem þeim hugnast best. Viðreisn er flokkur sem ber hag bænda fyrir brjósti og áttar sig á mikilvægi þess að viðhalda blóm- legri byggð um land allt.“ Tækifæri íslensks landbúnaðar Viðreisn hefur talað fyrir því að draga úr innflutningshömlum og segist Jóna Sólveig átta sig á því að það er viðkvæmt mál hjá bændum. „Það er í raun ákveðinn partur af því að hugsa til neytenda og auka valfrelsi þeirra. Á móti viljum við auka frelsi bænda til að gera það sem þeim hugnast best. Ég held að það séu ýmis tækifæri í aukinni sérhæf- ingu og áherslu á að markaðssetja okkar hreinu landbúnaðarafurðir bæði á erlendum mörkuðum en líka gagnvart erlendum neytendum hér heima. Þá sér í lagi gagnvart ferðamönnum sem hafa stækkað innlenda markaðinn svo um munar. Í þessu leika meðal annars alþjóð- legar gæðavottanir lykilhlutverk. Þær vottanir myndu sannreyna fyrir erlendum kaupendum að íslenskar landbúnaðarvörur eru mjög hreinar og erum við til að mynda að nota miklu minna af lyfjum en annars staðar í heiminum. Við eigum að halda áfram að framleiða gæðavör- una sem við erum að framleiða, en fá þá líka stimplana sem við þurfum til að koma henni inn á stóru hágæða- markaðina.“ Það felast í því mikil tækifæri fyrir bændur að selja vörur sínar beint til neytenda að mati Jónu Sólveigar. „Í því samhengi má horfa til ýmissa landa Evrópu, en þar þykir eðlilegt að bændur selji sínar vörur heima á bæ. Mér finnst að fólk ætti að eiga val um að kaupa beint af þeim bændum sem vilja selja beint og milliliðalaust heiman frá sér. Þeir bændur sem eru tilbúnir að taka á móti fólki og leyfa því að skoða það umhverfi sem framleiðslan á sér stað í eiga að vera frjálsir til að selja neyt- andanum vöruna ef honum líst vel á. Til þess að þetta sé mögulegt þarf að einfalda regluverkið til að auka möguleika bænda til beinnar sölu á sinni framleiðslu, án þess þó að slaka á eðlilegum heilbrigðis- og hreinlæt- iskröfum,“ segir Jóna Sólveig. Þorgerður Katrín sem landbúnaðarráðherra „Ég held að það séu tækifæri falin í því að fá einhvern inn í landbúnað- arráðuneytið sem spyr gagnrýninna spurninga, er ekki alinn upp í kerfinu og einhvern sem að getur komið inn með nýja sýn og getur horft á hlutina frá öðrum sjónarhóli. Mér finnst líka flott að það sé komin kona í þetta embætti, en hún er fyrsta konan sem er með landbúnaðar- og sjávarút- vegsráðuneytið.“ Breiðar áherslur við endurskoðun búvörusamninga Meðal fyrstu yfirlýsinga nýs land- búnaðarráðherra var að endurskipa ætti í nefndina sem var falið að vinna að endurskoðun búvörusamn- inganna og bendir Jóna Sólveig á að nýr ráðherra sé búinn að funda með Bændasamtökum Íslands um málið. „Það er verið að skoða endur- skipun í nefndina sem er falið að vinna að endurskoðun samning- anna, en ráðherra boðar breiðari aðkomu að samningagerðinni. Ráðherra er búinn að funda með Bændasamtökum Íslands og er á fullu að ræða við hagsmunaaðila. Það verða breyttar áherslur, en það er verið að skoða tollamálin, grænar áherslur og styrkjakerfið. Það verður hugað að hag bænda, að hag neyt- enda og það verður hugað sérstak- lega að umhverfinu,“ segir hún. Landbúnaðurinn og Evrópusambandið „Ég held að það séu mikil tækifæri fólgin í því fyrir íslenskan landbúnað að ganga í Evrópusambandið,“ segir Jóna Sólveig. Landbúnaður blómstri í Evrópu og það sé hægt að horfa til þess hvað ýmis ríki, meðal annars Danmörk, eru að gera þar með land- búnaðarstyrkjum frá ESB. „Það má ekki gera lítið úr því að samningaviðræður eru samn- ingaviðræður og Íslendingar geta samið við Evrópusambandið um landbúnaðarmál rétt eins og öll önnur ríki sem ganga þar inn. Það eru alls konar hlutir sem hægt er að horfa á, eins og þá sérstöku stöðu sem Ísland nýtur vegna legu lands- ins. Við liggjum mjög norðarlega og það eru sérstakir styrkir fyrir land- búnaðarsvæði sem liggja norðan við 62. breiddargráðu og ætti Ísland að geta notið góðs af því. Svo eru ýmsir dreifbýlis- og byggðaþróunarstyrkir sem myndu standa Íslendingum til boða. Íslenskir bændur þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að þeir fái minni styrki ef Ísland gengur í ESB. Í samningaviðræðum Íslands við ESB var alveg orðið ljóst að sam- bandið myndi ekki standa í vegi fyrir því að íslenska ríkið myndi sjá til þess að íslenskir bændur fengju jafn háa styrki fyrir og eftir inngöngu Íslands.“ Kom á óvart að IPA-styrkir voru afþakkaðir „Í samningaviðræðum Íslands að ESB á sínum tíma áttu íslenskir bændur þess kost að fá svokallaða IPA-styrki. Þessir styrkir hefðu meðal annars hjálpað bændum að undirbúa sig fyrir nýtt styrkjaum- hverfi með inngöngu í ESB. Það kom mér á óvart að þáverandi landbúnaðarráðherra neitaði að taka við þeim styrkjum. Þessi ákvörðun hefði getað komið sér mjög illa fyrir íslenska bændur ef við hefðum lokið aðildarviðræðunum og gengið í ESB, því þá hefðu íslenskir bændur staðið á núllpunkti og ekki getað fullnýtt sér landbúnaðarstyrki ESB strax,“ segir Jóna Sólveig. Aldrei talað fyrir því að draga úr stuðningi „Viðreisn ber hag bænda fyrir brjósti og við höfum aldrei talað fyrir því að draga úr styrkjum til bænda. Við erum flokkur sem áttar sig á mik- ilvægi þess að viðhalda blómlegri byggð um land allt. Maður skil- ur alveg að fólk sé hugsi þar sem Viðreisn er nýr flokkur sem talar fyrir kerfisbreytingum í landbún- aði. Hins vegar höfum við alltaf talað um mikilvægi þess að auka hag og frelsi bænda til að gera það sem þeim hugnast best. Við teljum að það séu gífurlega mörg tækifæri falin í breytingum, en breytingar eru nauðsynlegar fyrir framþróun,“ segir Jóna Sólveig Elínardóttir, þingkona Viðreisnar. /Ástvaldur Lárusson Jóna Sólveig Elínardóttir, varaformaður Viðreisnar: „Breytingar eru nauðsynlegar fyrir framþróun“ – segir mikil tækifæri fólgin í því fyrir íslenskan landbúnað að ganga í Evrópusambandið „Viðreisn ber hag bænda fyrir brjósti og við höfum aldrei talað fyrir því að að viðhalda blómlegri byggð um land allt,“ segir Jóna Sólveig Elínardóttir. Ljósmynd / TB Úr málefnaskrá Viðreisnar: Landbúnaður verði venjuleg atvinnugrein Í málefnaskrá Viðreisnar, sem samþykkt var á landsþingi flokksins í september síðastliðnum, og aðgengileg er á vefsíðunni vidreisn.is eru róttækar breytingar lagðar til á íslenskum landbúnaði. Í fyrirsögn stefnunnar segir orðrétt: „Landbúnaður verði venjuleg atvinnugrein“. Síðan segir í texta að landbúnaður eigi að lúta lögmálum almennrar samkeppni og sömu almenn lög eigi að gilda um hann og annan atvinnurekstur. Um landbúnað segir að öðru leyti: „Stuðningi við bændur á að breyta þannig að hann stuðli að aukinni hagræðingu, framleiðniaukningu og nýsköpun í greininni. Bændur eiga að fá frelsi til þess að vinna og markaðssetja afurðir sínar sjálf- ir og stuðla að innri samkeppni í greininni. Allri framleiðslu- og sölustýringu af hálfu ríkisvaldsins á að hætta en í staðinn verði veittir beinir styrkir til bænda í formi búsetu- og svæðisstyrkja. Tollar og innflutningshöft á landbúnaðarvörur verði afnumin í skynsamlegum áföngum samtímis því að landbúnaðurinn stígur inn í samkeppnisum- hverfi með breyttu stuðningskerfi. Mikilvægt er að ýta undir aukna fjölbreytni og nýsköpun í landbúnaði með stuðningi við hluti á borð við skógrækt, landgræðslu, vöruþróun, lokun framræsluskurða, smávirkjanir og ferðaþjónustu. Þriggja fasa línur auka orkugæði og skapa möguleika á smávirkjunum sem væri nýr atvinnumöguleiki í sveitum.“ Heimild: www.vidreisn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.