Bændablaðið - 26.01.2017, Page 26

Bændablaðið - 26.01.2017, Page 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2017 Vilko á Blönduósi flutt yfir í gamla mjólkursamlagið – Nýtt og stærra húsnæði eykur möguleika á öflugri starfsemi „Það er mikil ánægja með flutn- inginn, nú höfum við komið okkur fyrir í góðu húsnæði sem hentar okkar starfsemi prýðilega og þá heyrum við líka að margir hér eru ánægðir með að þetta húsnæði er loksins komið í gagnið á ný,“ segir Kári Kárason, framkvæmdastjóri Vilko á Blönduósi. Starfsemi fyr- irtækisins var um nýliðin áramót flutt í gamla mjólkursamlagshúsið í bænum, en það hefur staðið autt um árabil, eða frá því starfsemi samlagsins var lögð niður um ára- móti 2008 til 2009. Mun meira pláss Húsnæði samlagsins var notað sem geymsla fyrir ónýttan búnað að sögn Kára, þannig að heldur hefur lifnað yfir eftir að Vilko flutti þangað starf- semi sína. „Íbúar hér um slóðir eru kátir yfir því að líf hefur á ný færst í húsið.“ Vilko flutti úr 650 fermetra húsnæði og yfir í 1.500 fermetra. „Þetta er ansi mikil stækkun, við höfum nú ríflega helmingi meira pláss en áður og það eru viðbrigði. Helstu kostir nýja húsnæðisins eru þeir hversu auðvelt er að skilja starf- semi á milli okkar deilda að.“ Kári segir að umfangsmiklar endurbætur hafi verið gerðar á hús- næðinu og var hafist handa við þær í júlí í fyrrasumar. „Við höfum unnið að lagfæringum og endurbótum síðan, þeim lauk skömmu fyrir áramót og þá byrjuðum við að flytja okkur yfir. Við erum alveg himinlifandi yfir flutn- ingunum, þetta húsnæði er umtals- vert stærra en það sem við höfðum til umráða áður, það er rýmra um okkur hér þannig að við horfum nú til þess að bæta heldur í,“ segir Kári. Góður gangur í rekstrinum Rekstur fyrirtækisins hefur gengið vel undanfarin ár, „það hefur verið góður gangur hjá okkur, mikill vöxtur og útlitið fram undan er bjart,“ segir Kári. „Við sjáum fjölmörg tækifæri til framtíðar litið, m.a. í framleiðslu á blautvörum og eins erum við með augun opin fyrir nýjungum af ýmsu tagi því við höfum svigrúm til að bæta við okkur verkefnum. Í þeim efnum erum við m.a. að skoða möguleika varðandi vöruþróun, þar eru mörg tækifæri fyrir hendi. Við munum byggja á því vöruúrvali sem þegar er fyrir hendi en með aukinni þróun á okkar vörum sjáum við fram á að geta aukið okkur. Þetta eru skemmtilegir og spennandi tímar,“ segir hann. Starfsemin flutt frá Kópavogi til Blönduóss árið 1986 Fyrirtækið Vilko stendur á gömlum grunni, var stofnað í Kópavogi árið 1969. Kaupfélag Húnvetninga keypti félagið árið 1986 og flutti starfsem- ina norður á Blönduós. Aldamótaárið 2000 var fyrirtækinu breytt í hlutafé- lag og er það í eigu Ámundakinnar ehf., Ó Johnson & Kaaber, sveitarfé- laganna í Austur-Húnavatnssýslu auk nokkurra starfsmanna og einstaklinga. Stórbruni varð í fyrirtækinu árið 2004, en þá brann húsnæði fyrirtæk- isins til kaldra kola, en tveimur árum síðar var flutt í nýtt húsnæði og við það var svo byggt árið 2008, en þá hafði starfsemin aukist og búið að renna fleiri stoðum undir reksturinn með kaupum á félaginu Tindafelli sem átti og rak pökkunarverksmiðju fyrir vöru- merki sitt, Prima. Viðbótarhúsnæði var nýtt undir starfsemi Prima krydda, en Vilko ehf. á og rekur starfsemi í kringum tvö vörumerki, Vilko og Prima. Kryddbærinn Blönduós „Prima-kryddin eru þau mest seldu hér á landi og hefur þeim verið virkilega vel tekið meðal landsmanna. Salan í fyrra nam um 383 þúsund glösum og við erum ánægðir með þessar góður viðtökur. Reyndar hefur aðeins borið á því að menn halda að Prima sé erlent vörumerki og framleiðslan fari fram í útlöndum. Svo er aldeilis ekki, við framleiðum allt okkar krydd á Blönduósi og sífellt hefur um árin verið að bætast við úrvalið,“ segir Kári. Vöxtur í sölu á Vilko-vörum Vilko-vörulínan er hins vegar vel þekkt meðal landsmanna enda stytt- ist í að hálf öld verði liðin frá því þær komu fyrst á markað. „Vöxturinn í vörum okkar undir Vilko-merkinu hefur verið jafn og stöðugur undan- farin þrjú ár, salan hvert ár hefur toppað það sem á undan fór, hvert sölumetið á fætur öðru verið sett. Við slíkar aðstæður er ekki annað hægt en að vera ánægður,“ segir Kári. Undir vörumerki Vilko má finna m.a. súpur af ýmsu tagi, vöfflur og pönnukökur, pitsubotna og fleira. Flestar Vilko- vörur eiga það sammerkt að einungis þarf að blanda vatni saman við hrá- efnið og hræra það út áður en varan er matreidd. Eftirspurn eftir þjónustu hylkjadeildar Þriðja stoðin í rekstri Vilko er svo hylkjadeildin sem svo er nefnd, en Kári segir það verkefni hafa byrjað sem aukaverkefni sem vaxið hafi fiskur um hrygg og sé nú ekki síður mikilvæg undirstaða í rekstri fyrirtæk- isins en Vilko og Prima. „Við höfum fjárfest töluvert undanfarin ár m.a. í tækjum og búnaði til að hægt sé að bjóða upp á þessa framleiðslu hér hjá okkur,“ segir Kári, en fyrirtækið sér m.a. um að framleiða fyrir fyrirtækin Prótís og Iceherbs. „Það hafa einnig komið til okkar nokkrir aðilar og feng- ið að prufukeyra sín efni í hylkjadeild okkar. Á þessu sviði eru fyrir hendi möguleikar og við sjáum að eftirspurn eftir okkar þjónustu á þessu sviði er vaxandi.“ Kári segir að nú líti menn björtum augum til framtíðar, nýtt, betra og stærra húsnæði hvetji til þess að auka starfsemina, fjölga starfsfólki og skapa meiri vinnu í sveitarfélaginu. „Það er mikil eftirspurn eftir þeim vörum sem við bjóðum og eins eftir þeirri starfsemi sem við bjóðum í hylkja- deildinni,“ segir hann. Starfsmenn eru nú 8 talsins en Kári segir ljóst að þeim muni fjölga á árinu. „Markmiðið er að hér verði starfræktur 10 manna vinnustaður síðar á þessu ári.“ /MÞÞ Vertu viðbúinn vetrinum LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR SNJÓKEÐJUR Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna Kári Kárason, framkvæmdastjóri Vilko á Blönduósi, segir að nýtt, betra og stærra húsnæði hvetji til þess að auka starfsemina, fjölga starfsfólki og skapa meiri vinnu í sveitarfélaginu. Myndir Gunnar Tryggvin Halldórsson Vilko á Blönduósi hefur flutt starfsemi sína í gamla mjólkursamlagshúsið, en það hefur staðið autt í tæpan áratug. Vöxtur í vörum undir Vilko-merkinu hefur verið jafn og stöðugur undan- farin þrjú ár, salan hvert ár hefur toppað það sem á undan fór, hvert sölumetið á fætur öðru verið sett en í vörulínunni má finna m.a. súpur af ýmsu tagi, vöfflur og pönnukökur, pitsubotna og fleira.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.