Bændablaðið - 26.01.2017, Side 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2017
Pure Natura er íslenskt nýsköp-
unarfyrirtæki sem sérhæfir
sig í framleiðslu á fæðuunnum
vítamínum og bætiefnum úr
lambainnmat, -kirtlum og jurt-
um. Unnið hefur verið að þróun
bætiefnanna í rúm tvö ár og eru
fjórar vörutegundir afrakstur
starfsins.
Hildur Þóra Magnúsdóttir, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að
fyrirtækið hafi verið stofnað í sept-
ember 2015, en þá höfðu eigendur
þess unnið í rúmt ár að því að kanna
kosti þess að nýta innmat og kirtla
í fæðubótarefni fyrir fólk.
Hildur segir að rekja megi hug-
myndina að baki fyrirtækinu til þess
að hún sótti námskeið sem Sigríður
Ævarsdóttir kenndi og snerist um
það hvað konur geta gert til að bæta
heilsu sína og líðan. „Sigríður fór
yfir það á námskeiðinu hversu við-
kvæm hormónastarfsemi kvenna er
fyrir ýmsum eiturefnum í umhverf-
inu og mikilvægi þess að velja rétt
þegar kemur að fæðu, snyrtivörum
og öðru sem kann að innihalda þessi
efni.
Við Sigríður tókum höndum
saman að námskeiði loknu og
fengum til liðs við okkur Rúnu
Kristínu Sigurðardóttur og Halldór
Gunnlaugsson, en saman eigum við
fjögur þetta félag. Frá upphafi hefur
fyrirtækið verið rekið á styrkjum og
með eigin framlagi eigenda,“ segir
Hildur.
Risastór fjölvítamíntafla
með öllu tilheyrandi
Hildur segir að hugmyndin sé fjöl-
þætt sem liggi að baki vöruþróuninni
og felur í sér nokkrar grundvallar
staðreyndir. „Sú fyrsta er sú að inn-
matur er einhver næringarríkasta
fæða sem völ er á. Hann er eins og
risastór fjölvítamíntafla með öllu
tilheyrandi, á formi sem líkaminn
þekkir og getur nýtt sér. Almennt er
hægt að segja að innmatur innihaldi
á bilinu 10–100 sinnum meira magn
næringarefna en vöðvar sama dýrs.
Þrátt fyrir staðfesta kosti innmat-
ar hefur neysla hans dregist saman
og má næstum segja að hann sé að
detta alveg út hjá yngri kynslóðum
hins vestræna heims. Á sama tíma
tengja fleiri og fleiri vísindamenn
saman skort ákveðinna næringar-
efna – til dæmis D-vítamína – við
fleiri og fleiri lífsstílssjúkdóma.
Önnur staðreynd er sú að slát-
urhús þurfa að eyða töluverðu
fjármagni árlega í förgun á hráefni
eins og innmat og kirtlum sem við
viljum nota í vörurnar okkar. Í stað
þess að farga þessu hráefni er hægt
að vinna úr því hágæða fæðubót
og búa þar með til pening í stað
sóunar. Við viljum styðja við aukna
sjálfbærni í dilkaslátrun. Minnka
sóun, auka meðvitund neytenda og
stuðla að fullnýtingu afurðanna í
heimabyggð.
Þriðja staðreyndin er sú að
svona starfsemi er atvinnuskapandi
og það vantar jú alltaf störf út á
land. Fjórða staðreyndin er, að ef
framleiðsla og sala þessara afurða
gengur vel þá skilar það vonandi
bóndanum hærri greiðslum fyrir
hvert lamb sem hann leggur inn
til slátrunar. Hugmyndin er sú að
ef allt gengur upp þá græði allir á
þessu verkefni,“ segir Hildur.
Aðkeypt þjónusta
rannsóknarfyrirtækja
Að sögn Hildar starfa tveir starfs-
menn hjá fyrirtækinu, auk eigenda.
Hildur Þóra er starfandi fram-
kvæmdastjóri eins og fyrr segir,
Sigríður sér um vöruþróun og
Rúna Kristín um sölu og mark-
aðsmál. „Fyrirtækið hefur nýtt sér
aðkeypta þjónustu rannsóknarfyrir-
tækja eins og Matís og ArcticMass
hingað til en mikil rannsóknarvinna
liggur einnig í því að fara yfir fyrri
rannsóknir sem gerðar hafa verið
af öðrum aðilum, mikið efni ligg-
ur t.a.m. fyrir um kosti þeirra jurta
sem við notum í framleiðsluna. Sem
betur fer eru einnig allir eigendur
Pure Natura vel menntað fólk sem
leggur mikinn metnað í sitt starf.“
Hraðþurrkað hráefni
„Við nýtum okkur tæknina og hrað-
þurrkum allt okkar hráefni við lágt
hitastig til að tryggja sem best gæði
þess og að þau skili sér til neyt-
andans,“ segir Hildur um vinnslu-
aðferðina. „Efni eins og ensím má
ekki hita yfir ákveðið hitastig til
að þau skemmist ekki og þurrkun-
in fer öll fram undir þeim mörk-
um. Allar jurtir eru handtíndar og
þurrkaðar í starfsstöðvum okkar að
Háeyri 6 á Sauðárkróki. Mölunin
fer einnig fram þar sem og blöndun,
en hylkjun og pökkun fer fram hjá
fyrirtækinu Vilkó sem er staðsett á
Blönduósi.“
Stefna á Bandaríkjamarkað
„Við stefnum með þessar vörur
á erlendan markað og horfum þar
sérstaklega til Bandaríkjamarkaðar.
Gangi það eftir og verði viðtökur
góðar má búast við að töluvert þurfi
af hráefni til að anna eftirspurn en það
ætti ekki að vera vandamál þar sem
allur sá efniviður sem þarf í fram-
leiðsluna er nú þegar til í nægjanlegu
magni til þess að anna henni.
Við erum með fjórar vörutegundir
sem tilbúnar eru til framleiðslu og
sölu núna þó fleiri séu nú þegar á
teikniborðinu. Það má gera ráð fyrir
að þessar fyrstu vörur komi á markað
mjög fljótlega. Þeim sem hins vegar
vilja nálgast vörurnar okkar núna er
bent á verkefnið okkar á Karolina
fund, en þar getur fólk tryggt sér vörur
úr fyrstu framleiðslulotunni okkar.“
Að sögn Hildar er nú farið í fjár-
mögnunarverkefni á Karolina fund
til að standa straum af stökki fram á
við í markaðssetningu. „Við höfum
fengið vel á annan tug milljóna í styrki
til þess að þróa vörurnar okkar. Auk
þess lánaði Byggðastofnun félaginu
fyrir uppsetningu á vinnslulínunni,
en annar kostnaður eins og laun og
rekstur hefur verið greiddur af eigend-
um. Nú eru vörurnar hins vegar til-
búnar og tími til kominn að fá fjárfesta
að borðinu með okkur, svo hægt sé að
leggja út í markaðssetningu á erlenda
markaði.“
Söfnunin stendur yfir til 10.
febrúar og er hægt að kynna sér
hana betur og taka þátt á síðu verk-
efnisins hjá Karolina fund, https://
www.karolinafund.com/project/
view/1199. /smh
Bætiefni unnin úr innmat lamba og jurtum:
Ætla sér á Bandaríkjamarkað
með vörurnar
– fjármögnunarverkefni í gangi á Karolina fund
Léttar og þægilegar
vatteraðar úlpur í mörgum litum
fyrir dömur og herra
Primaloft úlpur
Verð frá
22.900 kr.
Stæ ð S 3r ir: -M-L-XL-XXL- XL
Friendtex á Íslandi Praxis á Íslandi
Bonito ehf. • Friendtex • Praxis
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2870 • www.friendtex.is •www.praxis.is
Pantið vörulista hjá okkur praxis@praxis.is
Eigum til 3ja laga
gæða softshell jakka
á frábæru verði
Spennandi tækifæri í Árnesi
Skeiða – og Gnúpverjahreppi
Skeiða- og Gnúpverjahreppur óskar
eftir tilboðum í leigu á félagsheimilinu
Árnesi, reksturs á tjaldsvæði við Árnes
ásamt rekstri mötuneytis fyrir leikskóla og
grunnskóla sveitarfélagsins samkvæmt
meðfylgjandi gögnum og öðrum þeim
gögnum sem vísað er til.
Verkefnið felst í eftirtöldu:
A. Leiga á félagsheimilinu í Árnesi og því sem fylgir eins og framleiðslueldhús og
salarkynni fyrir veitingarekstur sem rúmar allt að 300 manns.
Undanskilið er rými fyrir skrifstofur sveitarfélagsins.
B. Reksturs á tjaldsvæði við félagsheimilið Árnes. Aðstaða fyrir 50-60 einingar með
rafmagni.
C. Rekstur mötuneytis fyrir grunn- og leikskóla í félagsheimilinu. Fjöldi matarskammta
er 90-100 meðan skólaárið stendur yfir. Leigutaki skal lúta skilmálum um efnainnihald
matar og matreiðslu í skólamötuneytum. Krafa er gerð um menntun í matreiðslu.
Gestastofan og margmiðlunarsýningin Þjórsárstofa er rekin í Árnesi í samstarfi við
Landsvirkjun. Um sýninguna verður gerður sérstakur samningur, því er ekki leitað að
verði í umsjón með henni.
Mögulegt er að bjóða í hvern þátt fyrir sig. Leigusamningar um eignirnar verða
ótímabundnir en uppsegjanlegir af hálfu beggja aðila með sex mánaða fyrirvara.
Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að taka eða hafna hvaða tilboði sem er.
Útboðsgögn og nánari upplýsingar veita Kristófer Tómasson sveitarstjóri Skeiða- og
Gnúpverjahrepps. Sími 486-6100 netfang: kristofer@skeidgnup.is eða Börkur Brynjars-
son verkfræðingur. Sími 898-9499 netfang: borkur@sudurland.is Tilboðum skal skila á
skrifstofu sveitarfélagsins eða á ofangreind netföng eigi síðar mánudaginn 13. febrúar
2017. Tilboð verða opnuð þann dag á skrifstofu sveitarfélagsins kl 16:00. Sveitarstjóri
Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
Í Skeiða og Gnúpverjahreppi búa tæplega 600 íbúar. Aðalatvinnuvegur er landbúnaður. Auk
þess er ferðaþjónusta vaxandi og er iðnaður stundaður í nokkrum mæli. Þéttbýliskjarnar eru við
Árnes og Brautarholt. Grunnskóli, Leikskóli, sundlaugar og bókasafn er í sveitarfélaginu. Ferða-
fólk leggur í vaxandi mæli, leið sína í gegnum sveitarfélagið, enda náttúruperlur og sögustaðir
margir í sveitarfélaginu. Nefna má Þjórsárdal og Áshildarmýri. Leiðir á hálendi Íslands liggja um
sveitarfélagið. Fjarlægð frá Reykjavík er um 100 km, frá Selfossi um 40 km og frá Flúðum 20 km.
Sigríður Ævarsdóttir, Hildur Þóra Magnúsdóttir og Rúna Kristín Sigurðardóttir.
Vörurnar sem Pura Natura hefur þegar skilað af sér.