Bændablaðið - 26.01.2017, Side 32

Bændablaðið - 26.01.2017, Side 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2017 Pure Natura er íslenskt nýsköp- unarfyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á fæðuunnum vítamínum og bætiefnum úr lambainnmat, -kirtlum og jurt- um. Unnið hefur verið að þróun bætiefnanna í rúm tvö ár og eru fjórar vörutegundir afrakstur starfsins. Hildur Þóra Magnúsdóttir, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að fyrirtækið hafi verið stofnað í sept- ember 2015, en þá höfðu eigendur þess unnið í rúmt ár að því að kanna kosti þess að nýta innmat og kirtla í fæðubótarefni fyrir fólk. Hildur segir að rekja megi hug- myndina að baki fyrirtækinu til þess að hún sótti námskeið sem Sigríður Ævarsdóttir kenndi og snerist um það hvað konur geta gert til að bæta heilsu sína og líðan. „Sigríður fór yfir það á námskeiðinu hversu við- kvæm hormónastarfsemi kvenna er fyrir ýmsum eiturefnum í umhverf- inu og mikilvægi þess að velja rétt þegar kemur að fæðu, snyrtivörum og öðru sem kann að innihalda þessi efni. Við Sigríður tókum höndum saman að námskeiði loknu og fengum til liðs við okkur Rúnu Kristínu Sigurðardóttur og Halldór Gunnlaugsson, en saman eigum við fjögur þetta félag. Frá upphafi hefur fyrirtækið verið rekið á styrkjum og með eigin framlagi eigenda,“ segir Hildur. Risastór fjölvítamíntafla með öllu tilheyrandi Hildur segir að hugmyndin sé fjöl- þætt sem liggi að baki vöruþróuninni og felur í sér nokkrar grundvallar staðreyndir. „Sú fyrsta er sú að inn- matur er einhver næringarríkasta fæða sem völ er á. Hann er eins og risastór fjölvítamíntafla með öllu tilheyrandi, á formi sem líkaminn þekkir og getur nýtt sér. Almennt er hægt að segja að innmatur innihaldi á bilinu 10–100 sinnum meira magn næringarefna en vöðvar sama dýrs. Þrátt fyrir staðfesta kosti innmat- ar hefur neysla hans dregist saman og má næstum segja að hann sé að detta alveg út hjá yngri kynslóðum hins vestræna heims. Á sama tíma tengja fleiri og fleiri vísindamenn saman skort ákveðinna næringar- efna – til dæmis D-vítamína – við fleiri og fleiri lífsstílssjúkdóma. Önnur staðreynd er sú að slát- urhús þurfa að eyða töluverðu fjármagni árlega í förgun á hráefni eins og innmat og kirtlum sem við viljum nota í vörurnar okkar. Í stað þess að farga þessu hráefni er hægt að vinna úr því hágæða fæðubót og búa þar með til pening í stað sóunar. Við viljum styðja við aukna sjálfbærni í dilkaslátrun. Minnka sóun, auka meðvitund neytenda og stuðla að fullnýtingu afurðanna í heimabyggð. Þriðja staðreyndin er sú að svona starfsemi er atvinnuskapandi og það vantar jú alltaf störf út á land. Fjórða staðreyndin er, að ef framleiðsla og sala þessara afurða gengur vel þá skilar það vonandi bóndanum hærri greiðslum fyrir hvert lamb sem hann leggur inn til slátrunar. Hugmyndin er sú að ef allt gengur upp þá græði allir á þessu verkefni,“ segir Hildur. Aðkeypt þjónusta rannsóknarfyrirtækja Að sögn Hildar starfa tveir starfs- menn hjá fyrirtækinu, auk eigenda. Hildur Þóra er starfandi fram- kvæmdastjóri eins og fyrr segir, Sigríður sér um vöruþróun og Rúna Kristín um sölu og mark- aðsmál. „Fyrirtækið hefur nýtt sér aðkeypta þjónustu rannsóknarfyrir- tækja eins og Matís og ArcticMass hingað til en mikil rannsóknarvinna liggur einnig í því að fara yfir fyrri rannsóknir sem gerðar hafa verið af öðrum aðilum, mikið efni ligg- ur t.a.m. fyrir um kosti þeirra jurta sem við notum í framleiðsluna. Sem betur fer eru einnig allir eigendur Pure Natura vel menntað fólk sem leggur mikinn metnað í sitt starf.“ Hraðþurrkað hráefni „Við nýtum okkur tæknina og hrað- þurrkum allt okkar hráefni við lágt hitastig til að tryggja sem best gæði þess og að þau skili sér til neyt- andans,“ segir Hildur um vinnslu- aðferðina. „Efni eins og ensím má ekki hita yfir ákveðið hitastig til að þau skemmist ekki og þurrkun- in fer öll fram undir þeim mörk- um. Allar jurtir eru handtíndar og þurrkaðar í starfsstöðvum okkar að Háeyri 6 á Sauðárkróki. Mölunin fer einnig fram þar sem og blöndun, en hylkjun og pökkun fer fram hjá fyrirtækinu Vilkó sem er staðsett á Blönduósi.“ Stefna á Bandaríkjamarkað „Við stefnum með þessar vörur á erlendan markað og horfum þar sérstaklega til Bandaríkjamarkaðar. Gangi það eftir og verði viðtökur góðar má búast við að töluvert þurfi af hráefni til að anna eftirspurn en það ætti ekki að vera vandamál þar sem allur sá efniviður sem þarf í fram- leiðsluna er nú þegar til í nægjanlegu magni til þess að anna henni. Við erum með fjórar vörutegundir sem tilbúnar eru til framleiðslu og sölu núna þó fleiri séu nú þegar á teikniborðinu. Það má gera ráð fyrir að þessar fyrstu vörur komi á markað mjög fljótlega. Þeim sem hins vegar vilja nálgast vörurnar okkar núna er bent á verkefnið okkar á Karolina fund, en þar getur fólk tryggt sér vörur úr fyrstu framleiðslulotunni okkar.“ Að sögn Hildar er nú farið í fjár- mögnunarverkefni á Karolina fund til að standa straum af stökki fram á við í markaðssetningu. „Við höfum fengið vel á annan tug milljóna í styrki til þess að þróa vörurnar okkar. Auk þess lánaði Byggðastofnun félaginu fyrir uppsetningu á vinnslulínunni, en annar kostnaður eins og laun og rekstur hefur verið greiddur af eigend- um. Nú eru vörurnar hins vegar til- búnar og tími til kominn að fá fjárfesta að borðinu með okkur, svo hægt sé að leggja út í markaðssetningu á erlenda markaði.“ Söfnunin stendur yfir til 10. febrúar og er hægt að kynna sér hana betur og taka þátt á síðu verk- efnisins hjá Karolina fund, https:// www.karolinafund.com/project/ view/1199. /smh Bætiefni unnin úr innmat lamba og jurtum: Ætla sér á Bandaríkjamarkað með vörurnar – fjármögnunarverkefni í gangi á Karolina fund Léttar og þægilegar vatteraðar úlpur í mörgum litum fyrir dömur og herra Primaloft úlpur Verð frá 22.900 kr. Stæ ð S 3r ir: -M-L-XL-XXL- XL Friendtex á Íslandi Praxis á Íslandi Bonito ehf. • Friendtex • Praxis Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2870 • www.friendtex.is •www.praxis.is Pantið vörulista hjá okkur praxis@praxis.is Eigum til 3ja laga gæða softshell jakka á frábæru verði Spennandi tækifæri í Árnesi Skeiða – og Gnúpverjahreppi Skeiða- og Gnúpverjahreppur óskar eftir tilboðum í leigu á félagsheimilinu Árnesi, reksturs á tjaldsvæði við Árnes ásamt rekstri mötuneytis fyrir leikskóla og grunnskóla sveitarfélagsins samkvæmt meðfylgjandi gögnum og öðrum þeim gögnum sem vísað er til. Verkefnið felst í eftirtöldu: A. Leiga á félagsheimilinu í Árnesi og því sem fylgir eins og framleiðslueldhús og salarkynni fyrir veitingarekstur sem rúmar allt að 300 manns. Undanskilið er rými fyrir skrifstofur sveitarfélagsins. B. Reksturs á tjaldsvæði við félagsheimilið Árnes. Aðstaða fyrir 50-60 einingar með rafmagni. C. Rekstur mötuneytis fyrir grunn- og leikskóla í félagsheimilinu. Fjöldi matarskammta er 90-100 meðan skólaárið stendur yfir. Leigutaki skal lúta skilmálum um efnainnihald matar og matreiðslu í skólamötuneytum. Krafa er gerð um menntun í matreiðslu. Gestastofan og margmiðlunarsýningin Þjórsárstofa er rekin í Árnesi í samstarfi við Landsvirkjun. Um sýninguna verður gerður sérstakur samningur, því er ekki leitað að verði í umsjón með henni. Mögulegt er að bjóða í hvern þátt fyrir sig. Leigusamningar um eignirnar verða ótímabundnir en uppsegjanlegir af hálfu beggja aðila með sex mánaða fyrirvara. Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að taka eða hafna hvaða tilboði sem er. Útboðsgögn og nánari upplýsingar veita Kristófer Tómasson sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Sími 486-6100 netfang: kristofer@skeidgnup.is eða Börkur Brynjars- son verkfræðingur. Sími 898-9499 netfang: borkur@sudurland.is Tilboðum skal skila á skrifstofu sveitarfélagsins eða á ofangreind netföng eigi síðar mánudaginn 13. febrúar 2017. Tilboð verða opnuð þann dag á skrifstofu sveitarfélagsins kl 16:00. Sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Í Skeiða og Gnúpverjahreppi búa tæplega 600 íbúar. Aðalatvinnuvegur er landbúnaður. Auk þess er ferðaþjónusta vaxandi og er iðnaður stundaður í nokkrum mæli. Þéttbýliskjarnar eru við Árnes og Brautarholt. Grunnskóli, Leikskóli, sundlaugar og bókasafn er í sveitarfélaginu. Ferða- fólk leggur í vaxandi mæli, leið sína í gegnum sveitarfélagið, enda náttúruperlur og sögustaðir margir í sveitarfélaginu. Nefna má Þjórsárdal og Áshildarmýri. Leiðir á hálendi Íslands liggja um sveitarfélagið. Fjarlægð frá Reykjavík er um 100 km, frá Selfossi um 40 km og frá Flúðum 20 km. Sigríður Ævarsdóttir, Hildur Þóra Magnúsdóttir og Rúna Kristín Sigurðardóttir. Vörurnar sem Pura Natura hefur þegar skilað af sér.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.