Bændablaðið - 26.01.2017, Side 38

Bændablaðið - 26.01.2017, Side 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. janúar 2017 „Ferðin gekk í alla staði vel og allir komu heilir heim, það er fyrir mestu,“ segir Ari Jóhann Sigurðsson í Varmahlíð í Skagafirði, en í síðustu viku fór hann ásamt fleiri vöskum mönn- um í leiðangur hvers tilgangur var að sækja kindur sem orðið höfðu eftir í Staðarafrétt á liðnu hausti. Heim var komið eftir vel heppnaða aðgerð með fjórar kindur sem allar eru komnar til síns heima. Um helgina var síðan farið í annan túr og þá heimtust 5 kindur til viðbótar. Með Ara Jóhanni í för í fyrri ferðinni voru þeir Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum, Þorbergur Gíslason, Glaumbæ, Ólafur Bjarni Haraldsson, Brautarholti, Arnór Gunnarsson, Varmahlíð og Birgir Hauksson, Valagerði. Fóru kapp- arnir á þremur fjórhjólum og tveim- ur sexhjólum, vel búnir með allar græjur sem til þarf í leiðangur af þessu tagi sem og með góðan fjar- skiptabúnað. „Ferðin tók í allt fjóra og hálf- an tíma. Við lögðum af stað um kl. 11 þegar orðið var vel bjart, veður var ljómandi gott, frost og logn og ágætis ferðaveður hélst allan tím- ann,“ segir Ari Jóhann. Farið var í svonefnd Vesturfjöll, fjöllin norð- ur af Vatnsskarði. Lagt var af stað frá Gautsdal, norður Laxárdal og í gegnum Litla-Vatnsskarð. Þaðan var haldið út Víðidal og á móts við Gvendarstaði, bæ sem fór í eyði um aldamótin 1900, sáust fjórar kindur sem héldu sig utan í Stakkfellinu. Hafa haldið sig á afréttinum frá því í haust „Við höfum vitað af þessum kindum frá því í haust, rjúpnaskytta sá þær í október og svo sáust þær við eft- irgrenslan um áramótin,“ segir Ari Jóhann, en enn eru á þessum slóð- um, í Staðarafrétt, einhverjar eftir- legukindur. Vitað er um tvær kindur sem sáust á Hryggjardal í desem- ber sem ekki eru fundnar, auk þess sem ein kind heldur sig á Miðdal. Á þrettándanum voru tvær kindur sótt- ar vestur á Miðdal, þannig að nú er búið að sækja sex kindur. Þá fundust tvö hross í Reykjarskarði í síðustu viku sem saknað hafði verið síðan í haust. „Það verður eflaust farið í fleiri ferðir á næstunni, svona til að kíkja yfir svæðið, en það veltur á veðrinu, maður fer ekki nema veður og skyggni sé gott. Við höldum ekki í annan slíkan leiðangur með öllum þeim mannskap og útbúnaði sem til þarf upp á von og óvon,“ segir hann. Vel gekk að handsama kindurnar sem náð var í í Staðarafrétt í síðustu viku, tík Guðmundar á Eiríksstöðum var með í för og komst hún í veg fyrir þær. Eftirleikurinn var nokkuð auðveldur og allar voru kindurnar settar upp á hjólin til þess að gera á skömmum tíma. Þrjár kindanna eru í eigu Erlu Lárusdóttur á Sauðárkróki og þá átti Friðrik Stefánsson í Glæsibæ eitt lamb. /MÞÞ Skagafjörður: Heilmikill leiðangur gerður eftir kindum í Staðarafrétti – Tvær ferðir síðustu daga og alls níu kindur heimtar Það voru nokkrar festur í ferðinni, þessi sýnu verst. En allt bjargaðist enda vanir menn á ferð og öllu vanir. Arnór Gunnarsson sleppti ekki takinu af eftirlegukindunum. Vígalegir kappar. Ari Jóhann Sigurðsson, Ólafur Bjarni Haraldsson, Guð- mundur Valtýsson, Birgir Hauksson og Arnór Gunnarsson. Ferðaþjónustan Laxárbakki í Hvalfjarðarsveit Laxárbakki er lítið ferðaþjónustu fyrirtæki sem býður upp á gistingu og veitingar allt árið. Laxárbakki er staðsettur í Hvalfirði á bökkum „Laxár“. Hann er vel staðsettur við þjóðveg 1, aðeins 12 km frá Akranesi og 17 km frá Borganesi. Laxárbakki er tilvalin bækistöð fyrir frekari ferðalög um Vesturlandið, auk þess sem nánasta nágrenni býður upp á ótalmarga spennandi möguleika fyrir ferða- og útivistarfólk. Stutt er á alla helstu ferðamannastaði á suðvesturlandi eins og Húsafell, Langjökul, Þingvelli, Hvalfjörð og Snæfellsnes. Einstakt fuglalíf er á staðnum og mikið er af góðum gönguleiðum eins og Akrafjall, Hafnarfjall, Skarðsheiði, Skessuhorn, Síldarmannagöngur, Glymur o.fl. Mjög góð aðstaða er í veislusalnum fyrir fermingar, giftingar, ættarmót, hópefli, gönguhópa, hestahópa og aðra hópa. Laxárbakki er einnig frábær staður fyrir aðdáendur norður- ljósa því þar skapast oft mjög góð skilyrði til að njóta fegurðar þeirra. Ferðaþjónustan á Laxárbakka býður upp á gistingu í 12 glæsilegum studióíbúð- um fyrir allt að 31 manns og 6 svefnherbergi í gistihúsi fyrir allt að 14 manns. Stór veitingarstaður er á staðnum sem tekur allt að 100 manns í sæti. Sjá nánar heima- síðu Laxárbakka: http://www.laxarbakki.is og heimasíðu fasteignamiðstöðvarinnar: http://www.fasteignamidstodin.is Sumarstörf í boði Landgræðsla ríkisins óskar eftir starfsfólki í sumarstörf Landgræðsla ríkisins er þekkingar- og þjónustustofnun. Markmið hennar eru verndun gróðurs og jarðvegs og bætt landgæði. Stofnunin starfar samkvæmt lögum um landgræðslu nr. 17/1965 og lögum um varnir gegn landbroti nr. 91/2002. Höfuð¬stöðvar Landgræðslunnar eru í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Landgræðslustjóri situr í Gunnarsholti og þar er aðsetur landverndarsviðs, þró- unarsviðs og skrifstofu fjármála og rekstrar. Héraðssetur eru staðsett í Gunnarsholti, á Egilsstöðum, Húsavík, Sauðárkróki, Hvanneyri og í Reykjavík. Helstu verkefni sumarstarfsmanna Á Landverndarsviði: 1. Aðstoð á héraðssetrum Landgræðslunnar, tvær stöður fyrri háskólanema, nánar á land.is. 2. Viðhald girðing á starfssvæði Landgræðslunnar á norðurlandi, staðsett í Mývatnssveit, ein staða. Á Þróunarsviði: Aðstoð við rannsóknir hjá Landgræðslu ríkisins, tvær stöður fyrri háskólanema, nánar á land.is. Gunnarsholt Rangárþingi ytra: 1. Aðstoð í mötuneyti, þrif og aðstoð við móttöku gesta, ein staða. Gistiaðstaða í boði í Gunnarsholti Hæfni Stundvísi, ábyrgð, þjónustulund og snyrtimennska skilyrði. Bílpróf er nauðsynlegt. Vinnuvélaréttindi æskileg í starf merkt 2 Um er að ræða 100% stöður sem henta hvort sem er konum eða körlum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Fjármálaráðherra f.h. ríkisins við viðkomandi stéttarfélag. Umsóknarfrestur er til 16. febrúar næstkomandi. Æskilegt er að við- komandi geti hafið störf í maí. Umsókn skal fylla út og senda rafrænt á heimasíðu Landgræðslunnar land.is, http://land.is/storf-i-bodi/. Einnig má senda umsókn til Landgræðslu ríkisins, Gunnarsholti, 851 Hella. Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörg B. Ólafsdóttir starfs- mannastjóri, í síma 488 3000 eða á netfangið sigurbjorg@land.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.