Bændablaðið - 26.01.2017, Page 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2017
Í haust hafa orðið töluverðar
breytingar hjá RML, nýir starfs-
menn, ný hlutverk eldri starfs-
manna og starfsmenn að færa sig
um set. Hérna fylgir samantekt og
kynning á því sem hefur verið að
gerast í haust og fram til áramóta í
starfsmannamálum en það er einlæg
ósk okkar hjá RML að viðskiptavin-
ir séu meðvitaðir um uppbyggingu
og starfsemi RML og viti að við
tökum alltaf vel á móti ykkur.
Vignir Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri: Vignir hefur starfað
hjá RML frá upphafi en hann var þá
ráðinn sem fjár-
málastjóri. Vignir
sinnir starfi fram-
kvæmdastjóra til
haustsins, eða á
meðan Karvel,
sem var upphaf-
lega ráðinn fram-
kvæmdastjóri, er
í leyfi. Vignir er með starfsstöð á
Akureyri.
Helga Halldórsdóttir fjármála-
stjóri: Helga hefur starfað hjá RML
frá upphafi en hún var ráðin sem
verk efnastjóri
tæknimála. Hún
hefur séð um
reikningagerð,
tæknimál starfs-
manna og fleira en
tók við sem fjár-
málastjóri í haust
þegar Vignir tók
við framkæmdastjórastöðunni. Helga
starfar á Hvanneyri.
Stefanía Jónsdóttir bókari:
Stefanía er ný hjá RML. Hún var ráðin
í haust sem bókari en þegar Helga
fluttist yfir í fjár-
málastjórasætið
hefur Stefanía
tekið við hluta
af verk efnum
Helgu eins og
útskrift reikn-
inga og sam-
skipti við við-
skiptavini sem
hafa spurningar
eða athugasemdir við reikningana.
Við bjóðum Stefaníu velkomna í hóp-
inn og vonum að viðskiptavinir eigi
við hana gott samstarf í framtíðinni.
Stefanía er með starfsstöð á Akureyri.
Sigurður Guðmundsson ráðu-
nautur: Sigurður kom inn nýr í haust.
Hann er með framhaldsmenntun á
sviði viðskipta
og kemur sterkur
inn í rekstrarhóp
RML sem er að
vinna mjög flott
starf með bænd-
um og í góðum
tengslum við
fjármálafyrirtæki.
Við vonum að bændur verði duglegir
að hafa samband og fá ráðgjöf varð-
andi reksturinn. Starfsstöð hans er á
Hvanneyri.
Baldur Örn Samúelsson ráðu-
nautur: Baldur hefur starfað hjá
RML í rúmt ár, aðallega í ráðgjöf um
fóðrun til bænda
á Suðurlandi
en hann var
með starfsstöð
á Selfossi. Nú
hefur Baldur
fært sig um set
á Hvanneyri.
Baldur mun
sinna fjölbreyttari nautgriparæktar-
verkefnum eins og kynbótaráðgjöf
og kúadómum. Við bjóðum Baldur
velkominn á Vesturland en minnum
á að hann sinnir áfram bændum af
öðrum landsvæðum í samræmi við
þá stefnu RML að ráðunautar starfa
á landsvísu.
Sigurlína Magnúsdóttir ráðu-
nautur: Sigurlína byrjaði seint í
haust hjá RML
sem almennur
ráðunautur en
hennar helstu
áherslur verða
á nautgripa-
rækt. Hún hefur
starfað þétt með
Eiríki Loftssyni þar sem hún fær þjálf-
un í fóðuráætlanagerð. Með vorinu
fer hún einnig að skoða kvígur og því
eiga skagfirskir bændur eftir að sjá
meira af henni eftir því sem líður á.
Starfsstöð hennar er á Sauðárkróki
og mun hún því sinna að mestu
verkefnum þar í sveit en auðvitað á
það sama við um Sigurlínu eins og
aðra ráðunauta RML að hún vinnur
á landsvísu og veitir bændum alls
staðar að af landinu ráðgjöf eftir því
sem það á við.
Harpa Birgis-
dóttir ráðunautur:
Harpa byrj aði
seinnipart hausts
hjá RML sem
almennur ráðu-
nautur. Hún hafði
aðeins unnið sem
verktaki í lamba-
dómum fyrir RML
áður en hún byrjaði sem ráðunautur.
Hennar helsta verksvið verður, eins og
Sigurlínu, í nautgriparæktinni en þar
sem Harpa er á fámennri starfsstöð á
Blönduósi kemur hún til með að sinna
þeim fjölbreyttu verkefnum sem upp
koma á svæðinu.
Snorri Þor-
steinsson ráðu-
nautur: Snorri
byrjaði um ára-
mótin hjá RML.
Hann hefur fram-
haldsmenntun í
jarðvegsfræðum
og mun starfa í
faghópi jarðræktarinnar. Snorri er
með starfsstöð á Hvanneyri en eins og
áður hefur komið fram eru ráðunautar
vel hreyfanlegir og með nútímatækni
eigum við auðvelt með að sinna við-
skiptavinum alls staðar að af landinu.
Snorri og aðrir úr jarðræktarhópi veita
ráðgjöf um endurræktun, áburðaráætl-
anir eða annað sem tengist jarðrækt.
Sigtryggur Veigar Herbertsson
bútækniráðu-
n a u t u r :
S i g t r y g g u r
var kynntur til
leiks í síðasta
Bændablaði en
hann byrjaði
hjá RML um
áramótin. Hann
hefur sérmenntun á sviði aðbúnaðar og
tækni og kemur því til með að fylla
í það skarð sem verði hefur á þessu
sviði síðustu mánuði. Sigtryggur er
með starfsstöð á Akureyri en veitir
bændum í framkvæmdahug ráðgjöf
um allt land.
Við hvetjum viðskiptavini, gamla
sem nýja, að fylgjast með okkur á
heimasíðunni www.rml.is en þar er
hægt að fá frekari upplýsingar um
starfsmenn og starfsemi RML.
/Berglind Ósk Óðinsdóttir,
starfsmannastjóri RML
Mannauður hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Spinder fjósainnréttingar eru
hannaðar og prófaðar eftir
ströngustu gæðakröfum og miða
að velferð bæði dýra og manna.
Áralöng reynsla hefur leitt af sér
innréttingakerfi sem auðvelt er
að aðlaga að nánast öllum þörfum
nútímafjósa.
Við afgreiðum stíur, jötugrindur
og milligerði í mörgum stærðum
og gerðum og í flestum tilfellum er
afgreiðslutíminn stuttur og varan
flutt heim í hlað.
Hafðu samband:
bondi@byko.is
INNRÉTTINGAR
byko.is
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Árið 2002 urðu töluverðar
breytingar á starfsumhverfi garð-
yrkjunnar. Innflutningstollar voru
lækkaðir eða afnumdir og gerður
var samningur milli ríkisvaldsins
og garðyrkjubænda. Þessi samn-
ingur var nefndur aðlögunarsamn-
ingur þar sem honum var ætlað að
laga atvinnugreinina að breyttu
samkeppnisumhverfi.
Teknar voru upp beingreiðslur í
gúrkum, papriku og tómötum en á
móti var opnað fyrir tollfrjálsan inn-
flutning á þessum afurðum. Að þess-
um 15 árum liðnum hafa orðið miklar
breytingar í garðyrkjunni en í megin-
atriðum hefur atvinnugreinin styrkt
sig í sessi og staða hennar gagnvart
erlendri samkeppni er nokkuð góð í
dag. Eitt af því sem orðið hefur til þess
að styrkja atvinnugreinina er aukin
fagþekking. Á þessum tíma hefur
þróunarfé búgreinarinnar að stórum
hluta verið nýtt til kaupa á þekkingu
frá erlendum sérfræðingum sem hafa
heimsótt garðyrkjubændur reglulega í
fylgd innlendra ráðunauta. Þessi þekk-
ing hefur hjálpað bændum að þróa og
bæta framleiðsluna og einnig hefur
þetta samstarf styrkt mjög innlent ráð-
gjafarstarf. Það gefur auga leið að einn
til tveir innlendir garðyrkjuráðunautar
geta ekki sérhæft sig í öllum þeim
fjölmörgu framleiðslugreinum sem
finnast innan garðyrkjunnar og því
gott að geta keypt inn sérþekkingu
á ákveðnum sviðum. Eftir því sem
heimsóknum fjölgar eykst þekking
sérfræðinganna á íslenskum aðstæð-
um, persónuleg tengsl myndast og
gagnkvæmt traust leiðir af sér betri
og markvissari ráðgjöf. Auk þess að fá
sérfræðingana hingað, hafa garðyrkju-
bændur farið í kynnisferðir á þeirra
heimasvæði og notið leiðsagnar þeirra.
Fjölbreyttari starfsemi
Í byrjun voru fjögur sérsvið undir í
að grænmeti, með einn sérfræðing á
hverju sviði. Síðan bættust við jarðar-
ber (og önnur ber), svepparækt og líf-
rænar varnir.
Frá árinu 2002 hefur þróunarfé
garðyrkjunnar verið takmarkað við
æta hlutann, þ.e matjurtaframleiðsl-
una. Í nýjum búvörusamningi er gert
ráð fyrir að þróunarfé garðyrkju nýt-
ist öllum greinum garðyrkjunnar, þ.e
blómaframleiðslu og garðplöntufram-
leiðslu auk matjurtanna. Þetta þýðir
að þessi starfsemi verður aukin enn
frekar og í áætlun fyrir árið 2017 er
gert ráð fyrir að hingað komi 9 erlendir
sérfræðingar í alls 24 heimsóknir.
Aukinn kostnaður – gjald fyrir
heimsóknir
Þessum auknu umsvifum fylgir
óhjákvæmilega kostnaðarauki. Fagráð
í garðyrkju hefur mótað þá stefnu
að verja auknum hluta af þróunarfé
andi ári og þá verður auðvitað minna
til skiptanna í annað, t.a.m kynningar-
verkefni, tilraunaverkefni og ferða-
styrki. Auk þessa er gert ráð fyrir að
bændur greiði nú gjald fyrir hverja
heimsókn, og verður það miðað við
verðskrá RML.
Ef íslenskir garðyrkjubændur ætla
áfram að bæta samkeppnisstöðu sína
með fjölbreyttri framleiðslu er staða
þekkingar í greininni lykilatriði. Því er
nauðsynlegt að þróa og efla samstarf
við færustu sérfræðinga á hverju sviði
svo íslensk garðyrkja verði áfram með
á nótunum á heimsvísu.
/Helgi Jóhannesson, ráðunautur í
garðyrkju
RML starfar með erlendum
sérfræðingum í garðyrkju