Bændablaðið - 26.01.2017, Síða 42

Bændablaðið - 26.01.2017, Síða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2017 Frumlegir knattspyrnuunnendur á Englandi: Fyrsti fótboltaleikvangur heims sem unninn er úr nytjum skógarins Arkitektastofan Zaha Hadid Architects bar sigur úr býtum í samkeppni um nýjan fótboltaleik- vang Forest Green Rovers FC í enska bænum Stroud. Það er ekki í frásögur færandi nema vegna þess að hann verður unninn úr nytjum skógarins og hefur byggingin þar af leiðandi lágt kolefnisspor og mun fullbyggður kallast sjálfbær leikvangur úr tré. Zaha Hadid Architects eru meðal annars þekkt fyrir að vinna með líf- ræn form þegar þeir hanna nýjar byggingar. Því fannst þeim tilval- ið að vinna með tré sem aðalhrá- efni fyrir fótboltafélagið sem hefur í lengri tíma gert út á sjálfbærni meðal annars með því að bjóða upp á grænmetisfæði fyrir leikmenn sína og áhangendur. Tré er áhugavert byggingarefni að mati arkitektastofunnar, vegna lágs koltvísýringsspors þess, því um þrír fjórðu hlutar af kolefnislosun leik- vangsins kemur frá byggingarefni hans. Að kröfu forsvarsmanna Forest Green Rovers FC verður efniviðurinn í leikvanginum að koma frá viður- kenndu sjálfbæru skógarlandsvæði. Arkitektastofan hefur einnig valið tré vegna þess hversu slitsterkt efni það er og fagurt. Hér verður einnig unnið út frá því að áhorfendastæði og gólf verði úr tré sem er vanalega smíðað úr steypu eða stáli. Leikvangurinn, sem mun rúma 5 þúsund áhorfendur, verður kolefn- ishlutlaus fyrir um 40 hektara stórt svæði í kring sem mun hýsa vistfræðilegan skemmtigarð. Svæðið á að þjóna gestum sínum sem íþrótta- og tómstundagarður sem leggur áherslu á græna tækni og sjálfbærni. /ehg Kíkt í smiðju Norðmanna: Markaðssetning ferðaþjónustu til sveita og afurða beint frá býli - kynningarferð fyrir íslenska bændur Norskir bændur hafa um árabil byggt upp ferðaþjónustu, afþrey- ingu og sveitaverslanir undir merk- inu „Hanen“. Hey Iceland í sam- vinnu við Beint frá býli og Opinn landbúnað stendur fyrir fræðslu- ferð þar sem áhersla er lögð á að kynnast starfsemi norskra bænda og ferðaþjónustuaðila í dreifbýli. Í ferðinni kynnumst við félaga- samtökunum Hanen (www.hanen.is ) og heimsækjum félagsmenn sem eru búsettir á landsbyggðinni og bjóða m.a. upp á mat beint frá býli, gistingu og afþreyingu. Einnig verða þekkt- ar náttúruperlur skoðaðar á leiðinni og í lokin njótum við góðra stunda í Bergen áður en haldið er heim til Íslands. Ferðatími er 25.–30. apríl og flog- ið er til Osló en heim frá Bergen. Markmið ferðarinnar er að kynnast því hvernig frændur okkar Norðmenn byggja upp ferðaþjónustu í dreifbýli Noregs undir merkjum Hanen. Í ferðinni fáum við að kynnast fjöl- breyttri starfsemi Hanen, m.a. fram- leiðslu beint frá býli, sveitaverslun, gistingu, veitingum og afþreyingu. Auk þess mun leið okkar liggja um stórbrotna náttúru í Vestur-Noregi. Haldið er frá Keflavík til Oslóar að morgni þriðjudags og á föstudegin- um lýkur skipulagðri dagskrá með staðarleiðsögn um Bergen. Á laugar- deginum er frjáls dagur en síðan er haldið heim til Íslands frá Bergen á sunnudeginum en áætluð lending er kl. 15 í Keflavík. Ferðin er sérstaklega skipulögð fyrir þá sem hafa áhuga á upp- byggingu landsbyggðarinnar með tengingu við ferðaþjónustu. Ferðin ætti að höfða vel til félaga innan Hey Iceland, Beint frá býli og Opins landbúnaðar, þ.e. aðila sem starfa í greininni og aðra áhugasama sem vilja læra af reynslu annarra, fá nýjar hugmyndir og efla samvinnu á milli þeirra sem starfa í ferðaþjónustu á landsbyggðinni. Þessa dagana er unnið að undir- búningi ferðarinnar, en snemma í febrúar verður send út ítarlegri dag- skrá með upplýsingum um kostnað. Ferðin verður í sölu hjá Bændaferðum, en í undirbúningsnefnd sitja fulltrúar frá Bændasamtökunum, Beint frá býli og Hey Iceland/Félagi ferðaþjónustubænda. UTAN ÚR HEIMI Sérstaðan getur skapað miklar tekjur: Heymjólk Það hefur lengi legið fyrir að sér- staða við framleiðslu landbúnað- arvara skiptir verulegu máli þegar kemur að markaðssetningu. Þetta þekkja íslenskir bændur mæta vel og víða erlendis hafa á undan- förnum árum skotið upp kollinum vörumerki sem byggja á einhvers konar sérstöðu. Stundum er það landið eða land- svæðið sem bent er á sem sérstöðu og má nefna sem dæmi norska Jarlsberg ostinn, sem er reyndar bara gouda ostur en nýtur sérstöðu víða um heim vegna upprunans. Það er sérstaðan sem skiptir máli þegar horft er til möguleikanna á hærra verði og auk- inni framlegð og bændur í Austurríki áttuðu sig snemma á því hvað upp- runinn og sérstaðan hefur mikil áhrif á möguleikana á bættri framlegð. Þeir, ásamt bændum í Sviss, voru með þeim fyrstu til þess að nýta sér Alpana sem sérstöðu við markaðssetningu á mjólk og mjólkurvörum og þeir hafa undanfarin ár verið í töluverðri sókn með fleiri vörur sem byggja á sérstöðu og er ein þeirra svokölluð heymjólk. Forn aðferð Heymjólk er, eins og nafnið gefur til kynna, mjólk sem framleidd er með fóðrun kúa á heyi. Þetta þykir e.t.v. sumum hálf broslegt en staðreyndin er að það er stór markaður fyrir þessa sérstöku mjólk sem byggir á þeirri fornu aðferð við framleiðslu mjólkur að kýrnar fá einungis gras af beit á sumrin og þurrhey á veturna. Annað gróffóður má ekki gefa kúnum en auk þess má fóðra kýrnar með kjarnfóðri, vítamínum og steinefnum. Vothey má ekki gefa þessum kúm en rann- sóknir hafa sýnt að sýrustig í vömb kúa sem ekki fá vothey verður annað og fitusýrusamsetning mjólkurinnar verður einnig önnur. Fyrir vikið er heymjólk nokkuð frábrugðin annarri mjólk hvað bragð snertir og sker sig því frá annarri mjólk. Þessi aðferð við fóðrun kúnna er auðvitað ekki ný af nálinni og hefur verið notuð í hundruð ára í Ölpunum. Áður notuð í harða osta Hér áður fyrr, áður en markaðssetn- ingarfólk áttaði sig á því að hægt væri að selja heymjólk sérstaklega, voru sérfræðingar í ostagerð fyrir löngu búnir að átta sig á því að heymjólk væri öðruvísi en önnur mjólk. Lengi vel var slík mjólk sótt sérstaklega á þau bú sem hana framleiddu og fór mjólkin fyrst og fremst í framleiðslu á ákveðnum hörðum ostum. Reynsla mjólkurfræðinganna hafði leitt þá til þess að nýta mjólkina í þessa ostagerð enda hentaði hún sérlega vel í slíka ostagerð þar sem heymjólkin var með mun lægra hlutfall smjörsýru-bakter- ía en önnur mjólk, en þær geta valdið óheppilegri gerjun í hörðum ostum. Skilgreiningin á heymjólk Þó svo að heymjólk hafi upphaf- lega verið markaðssett í Austurríki hefur þessi tegund mjólkur færst til margra annarra landa og er í dag einnig framleidd í Sviss, Frakklandi, Þýskalandi, Danmörku og vafalítið fleiri löndum. Fyrir vikið er núorðið til nákvæm skilgreining á því hvað þarf til, svo markaðssetja megi mjólk sem heymjólk. Heymjólk hefur því, rétt eins og lífrænt vottuð mjólk, fengið afar skýran og skilgreindan bakgrunn. Heymjólk getur einungis komið frá kúm sem fá aldrei vothey og skal rúmlega 60% af fóðri kúnna vera frá beit eða þurrheyi. Hinn hluti fóðursins má koma frá kjarnfóðri eða öðru slíku en þó engu fóðri eða fóð- urefnum sem hafa verið súrsuð eða hafa gerjast með einum eða öðrum hætti. Þá er bændum óheimilt að gefa kúnum rúlluhey hafi það verið pakk- að í plast! Mun dýrari framleiðsluaðferð Þau kúabú sem eru með vottun til framleiðslu á heymjólk fá ekki einungis greitt hærra afurðastöðva- verð fyrir mjólkina sökum sérstöð- unnar heldur einnig vegna hærri framleiðslukostnaðar. Þar sem gefa þarf kúnum hey á veturna, sem er mun dýrari framleiðsluaðferð við gróffóður en vothey, er kostnaður- inn töluvert hærri og hafa bændurnir sem framleiða heymjólk verið að fá í kringum 25% hærra afurðastöðva- verð en þeir sem framleiða hefð- bundna mjólk. Til þess að setja þetta í samhengi má einnig geta þess að afurðastöðvaverð erlendis fyrir líf- rænt vottaða mjólk, sem er enn dýrari í framleiðslu en heymjólk, hefur oft verið í kringum 45–50% hærra en hefðbundið afurðastöðvaverð. 8 þúsund vottuð bú Í Austurríki eru nú 8 þúsund kúabú með vottun og geta þau því fram- leitt heymjólk og alls nemur árleg framleiðsla á þessari tegund mjólkur rúmum fjögur hundruð milljónum lítra eða um 15% af heildarmjólk- ur-framleiðslu landsins. Þó svo að um lítið magn sé að ræða, sé litið til heildarframleiðslu landsins, þá er þetta hlutfall langtum stærra en í öðrum löndum Evrópusambandsins en árið 2014 nam vottuð heymjólkur- framleiðsla 3% af allri mjólkurfram- leiðslu Evrópusambandslandanna. Útflutningsvara Vegna langrar sögu heymjólkur í Austurríki eru þarlendar afurða- stöðvar fremstar í markaðssetningu á slíkri mjólk og mjólkurvörum sem unnar eru úr heymjólk. Í dag eru á markaði rúmlega 400 mis- munandi mjólkurvörur frá aust- urrískum afurðastöðvum sem eru unnar úr heymjólk og má þar nefna bæði osta, jógúrt, drykkjarmjólk og smjörgerðir. Mest af þessum vörum eru seldar til Þýskalands og Ítalíu en vegna smæðar framleiðslunnar í Austurríki hafa afurðastöðvarnar mest unnið að því að halda sér við þessa tvo markaði. Bannað að markaðssetja sem hollustuvöru Þó svo að heymjólk og heymjólkur- vörur séu fyrst og fremst markaðs- settar með tilvísun til uppruna og gamalla hefða þá höfðu sum minni afurðafélögin reynt að markaðssetja heymjólk sem sérstaka hollustuvöru og markaðssett hana sem hreinustu mjólkina á austurríska markaðinum. Slíka fullyrðingu sættu aðrir fram- leiðendur mjólkur sig ekki við og fengu, árið 2013, þarlenda dómstóla til þess að banna markaðssetningu á heymjólk sem byggði á fullyrðing- um sem ekki væri hægt að sanna. Heymjólk og heymjólkurvörur hafa því eftir það verið einungis markaðs- settar með tilvísun í upprunann og allar fullyrðingar um að slík mjólk eða mjólkurvörur séu betri en aðrar mjólkurvörur eru á bak og burt. Möguleikar hérlendis? Þegar horft er til þess hve miklum árangri Austurríkismenn hafa náð við markaðssetningu á heymjólk og vax- andi útbreiðslu hennar til landanna í kring og meira segja til Danmerkur, verður ekki hjá því komist að velta því upp hvort slík sérstöðumjólk gæti átt erindi inn á hinn íslenska markað. Við höfum langa hefð og reynslu af framleiðslu á þurrheyi og ef mark- aðurinn vill borga hærra verð fyrir slíka mjólk þá er um að gera að bjóða upp á þann valkost. Vegna smæð- ar markaðarins má vissulega setja spurningarmerki við framleiðslu á ferskvörum úr slíkri mjólk en fram- leiðsla á t.d. hörðum osti gæti verið áhugaverð. Snorri Sigurðsson sns@seges.dk Sviðsstjóri mjólkurgæðasviðs Dýralækninga- og gæðadeild SEGES í Danmörku Gamli góði heyvagninn kemur að góðum notum hjá þeim bændum sem eru með heymjólkurvottun. Á Íslandi leynast enn nokkrir slíkir undir hlöðuvegg. Það liggja mikil verðmæti í heyinu og sérstaða fólgin í því að fóðra ein- vörðungu með því. Í Austurríki er mikið gert úr hey- mjólk enda er 15% allrar framleiddrar mjólkur vottuð sem slík. Tölvumynd af framtíðarleikvangi knattspyrnufélagsins Forest Green Rovers FC í enska bænum Stroud. Myndir / Zaha Hadid Architects

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.