Bændablaðið - 26.01.2017, Blaðsíða 44

Bændablaðið - 26.01.2017, Blaðsíða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2017 Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Guðmundur Jóhannsson ábyrgðarmaður í nautgriparækt mundi@rml.is Niðurstöður skýrsluhaldsársins hjá mjólkurframleiðendum 2016 Niðurstöður skýrsluhaldsársins í mjólkurframleiðslunni 2016 hafa verið reiknaðar og birtar á vef Ráðgjafarmiðstöðvar landbún- aðarins www.rml.is. Hér á eftir verður farið yfir helstu tölur úr uppgjörinu. Þeir framleiðendur sem skiluðu upplýsingum um afurðir kúa sinna á nýliðnu ári voru 575 en á árinu 2015 voru þeir 580. Niðurstöðurnar eru þær helstar að 24.999,2 árskýr skiluðu 6.129 kg nyt að meðaltali. Það er afurðaaukning um 278 kg frá árinu 2015 en þá skiluðu 25.609,9 árskýr meðalnyt upp á 5.851 kg. Jafnframt eru þetta mestu með- alafurðir frá upphafi vega og í fyrsta skipti sem þær ná yfir 6.000 kg eftir árskú. Meðalbústærð á landinu reiknað- ist 43,5 árskýr á árinu 2016 en sam- bærileg tala var 44,0 árið á undan. Meðalbústærð reiknuð í skýrslu- færðum kúm var nú 59,5 kýr en 2015 reiknuðust þær 56,8. Mestar meðalafurðir voru í Skagafirði Þegar litið er á niðurstöður eftir svæðum kemur í ljós að í Skagafirði eru meðalafurðir mestar, 6.486 kg eftir árskú, en skammt undan er Austurland með 6.424 kg á árskú. Þar hafa afurðir aukist mjög milli ára en árið 2015 voru þær 5.848 kg/ árskú. Þriðja sæti verma Árnesingar en þar skilaði árskýrin að meðal- tali 6.379 kg. Stærst voru búin í Eyjafirði, 53,5 árskýr en minnst í Suður-Þingeyjarsýslu 27,9 árskýr. Meðalbúið aldrei stærra Meðalbústærð jókst umtalsvert milli ára enda jókst innlegg mjólk- ur um 4,3 milljónir lítra milli ára. Meðalinnlegg á bú með innlegg allt árið nam 250.182 lítrum samanbor- ið við 233.991 lítra á árinu 2015. Þetta er aukning upp á 6,92%. Á sama tíma fækkaði innleggjendum mjólkur um 40 talsins og voru kúabú í framleiðslu 580 talsins nú um ára- mótin 2016/17. Íslandsmet á Brúsastöðum í Vatnsdal Mest meðalnyt eftir árskú á nýliðnu ári, 2016, var á búi Brúsa ehf. á Brúsastöðum í Vatnsdal, 8.990 kg á árskú. Þar með féll fimm ára gamalt Íslandsmet þeirra Ólafs og Sigurlaugar í Hraunkot í Landbroti en það var 8.340 kg á árskú á árinu 2011. Búið á Brúsastöðum var fimmta afurðahæsta búið á árinu 2015 en vermdi efsta sæti listans árin 2013 og 2014. Árangur þeirra hjóna Gróu Margrétar Lárusdóttur og Sgurðar Eggerz Ólafssonar á Brúsastöðum undanfarin ár er stórglæsilegur enda hefur eftir honum verið tekið. Þau hlutu m.a. Landbúnaðarverðlaunin 2015 og má taka undir orð þáverandi landbúnaðarráðherra við afhendingu verðlaunanna um að búinu sé sinnt af miklum myndarskap, jafnt hvað umhirðu og góðan árangur varðar en jafnframt og ekki síður hvað ytra umhverfi og ásýnd viðkemur. Annað búið í röðinni árið 2016 var bú Þrastar Þorsteinssonar á Moldhaugum í Eyjafirði en þar var nytin 8.274 kg eftir árskú. Þriðja í röðinni við uppgjörið nú var bú Guðlaugar og Eybergs á Haunhálsi í Helgafellssveit en þar var meðalnyt árskúna 8.173 kg. Í fjórða sæti var bú Félagsbúsins á Syðri- Grund í Höfðahverfi við Eyjafjörð þar sem meðalafurðir árskúnna voru 8.129 kg. Fimmta búið var bú Péturs Friðrikssonar á Gautsstöðum á Svalbarðsströnd, meðalnytin þar var 8.091 kg eftir árskú. Næsta bú, nr. 6 á listanum, var bú Félagsbúsins á Espihóli í Eyjafirði með meðalafurðir upp á 8.049 kg eftir árskúna. Sjöunda og síðast þeirra sem náðu meðal- afurðum yfir 8.000 kg/árskú var bú Pálma Ragnarssonar í Garðakoti í Hjaltadal en þar reiknaðist meðalnyt árskúnna 8.029 kg. Meirihluti þeirra búa, sem hér hafa verið talin, fannst á hliðstæðum lista fyrir ári síðan og þau þeirra sem ekki voru í 10 efstu sætunum þá mátti finna á fyrstu síðu listans yfir afurðahæstu búin árið 2014, þannig að hér eru þeim sem til þekkja öll nöfn kunnugleg. Á 80 búum reiknaðist meðalnyt árskúa yfir 7.000 kg árið 2016 en 51 bú náði því marki árið 2015. Sigurður Kristjánsson Skýrsluhald sk@rml.is Ársuppgjör afurðaskýrslna nautgriparæktarinnar 2016 Uppgjörssvæði Árskýr Afurðir á árskú Fita % Prótein % Heilsárs- kýr Kýr á skýrslu Í skýrslu- haldi í des. 2016 Skiluðu skýrsl- um í des. 2016 Skiluðu skýrslum 2016 Skrá kjarn- fóður Kjarnf. á árskú kg Meðal-bú- stærð (árs- kýr) Meðal- bú- stærð (skýrsluf. kýr) Kjalarnesþing 282,9 5.128 3,98 3,26 170 410 6 6 7 2 1.254 40,4 58,6 Borgarfjörður 2.151,8 5.752 4,21 3,40 1.506 2.916 47 47 51 27 723 42,2 57,2 Snæfellsnes 668,0 6.238 4,47 3,37 459 953 19 18 21 7 782 31,8 45,4 Dalasýsla 407,5 5.535 4,10 3,42 255 562 8 8 9 4 748 45,3 62,4 Vestfirðir 628,7 5.535 4,09 3,44 450 792 17 17 17 10 936 37,0 46,6 Húnavatnssýslur og Strandir 1.371,4 6.194 4,22 3,41 937 1891 43 41 45 25 877 30,5 42,0 Skagafjörður 2.475,8 6.486 4,25 3,50 1.663 3.347 47 46 49 27 980 50,5 68,3 Eyjafjörður 4.703,9 6.235 4,24 3,46 3.157 6.402 83 82 88 41 611 53,5 72,8 Suður-Þingey- jarsýsla 1.481,2 5.990 4,23 3,49 1006 1.978 48 48 53 22 625 27,9 37,3 Austurland 978,9 6.424 4,20 3,48 688 1.292 22 22 23 13 794 42,6 56,2 Austur-Skaf- tafellssýsla 501,5 6.347 4,21 3,41 291 709 10 10 10 5 863 50,2 70,9 Vestur-Skaf- tafellssýsla 776,4 5.178 4,21 3,39 493 1093 23 23 27 10 469 28,8 40,5 Rangárvallasýsla 3.556,7 5.973 4,26 3,45 2.384 4.991 75 73 75 22 591 47,4 66,5 Árnessýsla 5.014,6 6.379 4,17 3,42 3.484 6.853 99 99 100 45 927 50,1 68,5 Samtals 24.999,2 6.129 4,22 3,44 16.943 34.189 547 540 575 260 765 43,5 59,5 Bú þar sem meðalnyt var yfir 7.800 kg/árskú Bú - árslok 2016 Skýrsluhaldarar Fjöldi árskúa Afurðir kg/ árskú 560112 Brúsastaðir Brúsi ehf 50,9 8.990 650926 Moldhaugar Þröstur Þorsteinsson, Moldhaugum 60,8 8.274 370179 Hraunháls Guðlaug og Eyberg 28,1 8.173 660220 Syðri-Grund Félagsbúið Syðri- Grund 51,8 8.129 660104 Gautsstaðir Pétur Friðriksson 98,6 8.091 651005 Espihóll Félagsbúið Espihóli 61,4 8.049 570925 Garðakot Pálmi Ragnarsson 65,2 8.029 660519 Stóru-Tjarnir Stóru-Tjarnir ehf 51,8 7.981 761412 Núpur Björgvin Rúnar Gun- narsson 83,9 7.950 860326 Skíðbakki Rútur og Guðbjörg - Skíðbakka 1 59,8 7.925 870909 Skáldabúðir Gunnbjörn ehf 58,4 7.923 870840 Reykjahlíð Búkostir ehf. 70,5 7.914 570314 Sólheimar Valdimar Óskar Sigmarsson 36,2 7.904 350513 Hvanneyri Hvanneyrarbúið ehf. 68,8 7.859 Nythæstu kýrnar árslok 2016 Kýr Faðir Árs- afurðir Prótein Fita Bú 0676 Nína 02016 Ófeigur 13.833 3,95 4,02 560112 Brúsastaðir 0336 Hrísa 02012 Skurður 13.779 3,33 4,20 850319 Austurhlíð 0684 Stebba Dýra. 04009 Salómon 13.621 3,84 3,59 560112 Brúsastaðir 1161 Skvís 0965 Óskar 13.594 3,82 4,17 570210 Gil 1348671- 0131 Króna 1349391-0198 13.400 3,22 3,78 350802 Ásgarður 0624 Pol- lýanna 03014 Hegri 13.181 3,91 4,04 560112 Brúsastaðir 1229 Urður 00010 Laski 13.148 2,86 2,84 350513 Hvan- neyri 0695 Surtla 09047 Gæi 13.110 3,33 3,72 650926 Mold- haugar 1722 Aska 08058 Vegbúi 12.869 3,18 3,70 770190 Flatey 0439 Klukka 07049 Húfur 12.733 3,51 4,14 651110 Græ- nahlíð 0683 Brella 07049 Húfur 12.708 3,31 3,52 870934 Gun- nbjarnarholt 0562 Raun 06039 Bag- galútur 12.611 3,12 4,26 871058 Hrep- phólar 0857 Rita 03014 Hegri 12.483 3,65 3,76 870840 Reyk- jahlíð 0342 Lilja 09048 Stuldur 12.413 3,40 4,55 560106 Hnjúkur 0917 Yrsa 08041 Sigurfari 12.380 3,26 3,82 871080 Auðsholt 1 0961 Lína 08068 Teningur 12.306 3,82 4,02 660102 Efri- Dálksstaðir 1528281- 1129 Svipa 10038 Svipur 12.194 3,35 4,16 650926 Mold- haugar 0599 Björt 02001 Glæðir 12.147 3,46 3,36 660440 Dæli 1445621- 0150 Korna 98046 Hræsingur 12.069 3,59 3,90 560112 Brúsastaðir 0537 Lilja 02042 Þrymur 12.033 3,46 4,02 570925 Garðakot 1359891- 0258 Rola 06001 Dreitill 12.033 3,74 5,37 360592 Laxárholt 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.