Bændablaðið - 26.01.2017, Qupperneq 48

Bændablaðið - 26.01.2017, Qupperneq 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2017 Við fengum jörðina leigða vorið 1993 og fluttum hingað það vor, keyptun jörðina árið 1997. Býli: Brekkugerði. Staðsett í sveit: Fljótsdal, N-Múlasýslu. Ábúendur: Jóhann F. Þórhallsson og Sigrún Erla Ólafsdóttir. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Tvö uppkomin börn: Þórveig og Þórhallur, tengdasonur, Jón Steinar Garðarsson Mýrdal og barnabarn, Óskar Máni. Fjárhundarnir Tumi og Rós frá Eyrarlandi. Stærð jarðar? Um 2.000–3.000 ha. Stærsti hluti lands er ofan 300 metra yfir sjó. Um 30 ha tún og 100 ha skógrækt. Gerð bús? Sauðfjárbúskapur og skógræktarbúskapur. Fjöldi búfjár og tegundir? 300 ær og 15 gangnahross. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Á vetrum eru það gjafir kvölds og morgna. Grisjun skógar um miðj- an dag og farið á hestbak. Sigrún sækir vinnu niður á Reyðarfjörð til Fjarðaáls. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Skemtilegast er sauð- burður og göngur. Mér finnst ekkert verk leiðinlegt sem tengist búskap, kannski helst bókhaldið. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Það er ekki gott að segja, ef afkoman heldur áfram að versna, eins og hún hefur gert frá hruni, bæði í sauðfénu og þá sérstaklega í skógræktinni, þá er nauðsynlegt að hefja annan rekstur á jörðinni til að tryggja afkomuna. Það er spurning hvað það ætti að vera. Hér eru hagstæðar náttúrufarslegar aðstæður til landbúnaðar. Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Við þurf- um að eiga öfluga bændaforustu sem stendur vörð um hagsmuni landbúnaðarins almennt. Það er einnig mikilvægt að við bændur stöndum vörð um okkar forystu- sveit, með málefnalegri gagnrýni og ábendingar um það sem betur mætti fara. Hvernig mun íslenskum land- búnaði vegna í framtíðinni? Við teljum að íslenskur landbúnaður geti átt bjarta framtíð ef það verð- ur staðinn vörður um hreinleika matvælaframleiðslunnar í landinu og passað upp á kolefnissporið í greininni. Hvar teljið þið að helstu tæki- færin séu í útflutningi íslenskra búvara? Í hreinleika búvaranna. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, ostur og grænmeti. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Hreindýrakjöt. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þegar fyrstu jólatrén voru seld. Líf og lyst BÆRINN OKKAR Laxaborgari hjúpaður tortillaflögum Ef samviskan er sterk en líkaminn kallar á skyndibita, er best að gera hollari skyndibita. Þar er ofurfæðan lax efstur á blaði. Laxeldi á Íslandi er að aukast og er því tilvalið að velja íslenskan lax í bland við bandarískar tortillaflögur, rasp og krydd – sem mætti kallast ný útgáfa af fiski í raspi. Laxaborgari › 1 bolli tortillaflögur - muldar (raspur) (mylja þær í matvinnsluvél eða bara kremja þær í opnum poka) › 1 stk. beinlaust laxaflak › 1 skallotlaukur, saxaður fínt › 2 hvítlauksrif, söxuð › 1 stórt egg › 1/3 bolli brauðmylsna (eða soðnar kartöflur til að binda borgarann saman) › 1 msk. chili-mauk › 1/2 tsk. chili-duft › 1/2 tsk. reykt paprika › 1/2 tsk. kúmenduft › 1/2 tsk. salt › 1/2 tsk. pipar › 2 matskeiðar söxuð fersk steinselja › 3 til 4 matskeiðar ólífuolía › 8 góð lítil bollubrauð › 6 sneiðar góður ostur › Smá brúskur af uppáhalds salat- inu þínu (mér finnst gott að gera rauðkáls-hrásalat) › 2 avókadó,(lárpera) skornar í sneiðar › Hveiti og eggjahvíta (til að hjúpa í rasp) Chili (krydd) majó › 1/2 bolli majónes › 1 tsk. chilimauk að eigin vali eða annað krydd, kryddjurtir, wasabi eða sinnep. Setjið tortillamylsnu á stóran disk. Gott að taka fyrst flögurnar í mat- vinnsluvél, eða merja fínt í rasp. Sumir vilja bæta sesamfræjum saman við. Saxið laxinn (eða skerið í bita), gott er að nota matvinnsluvél. Saxið þar til laxinn er í litlum bitum, en ekki alveg í fars. Takið laxinn og setjið í stóra skál. Bætið skallotlauk, hvít- lauk, egg, brauðmylsnu (eða jafnvel mörðum soðnum kartöflum), chili- sósu, kryddi, salti og pipar ásamt steinselju í skál. Hrærið í með skeið til að blanda öllu saman og þjappið svo blöndunni saman með hreinum höndum, eða notið einnota hanska. Skiptið blöndunni í um átta borgara, en miðið við stærð brauðsins sem á að nota. Setjð svo hveiti á disk og eggjahvítu á annan disk. Svo er borgarinn settur fyrst í hveitið, svo eggjahvítuna og svo í tortillamylsnuna. Hjúpið allan borgararann og endurtakið með alla hina. Hitið stóra pönnu yfir miðlungs hita og setjir tvær matskeiðar af ólífuolíu á pönnuna. Steikið borg- arana á báðum hliðum þangað til þeir eru gullnir á lit, í um tvær til þrjá mínútur á hvorri hlið (ég geri þetta í tveimur skömmtum). Látið hvíla í heitum ofni í að lágmarki á aðra mínútu eða í tvær til að tryggja að þeir eru heitir inn að miðju. Það er hægt að setja saman borg- arann með ýmsu meðlæti. Setjið grænt salat á botnbrauðið eða hrásal- at. Setja svo hamborgara ofan á og eftir smekk bragðbættu majónesi og lárperu. Berið strax fram! Krydd majónes Bætið bragðefnum að eigin vali við majónesið í hrærivél eða mat- vinnsluvél og maukið þar til það er slétt. Þú getur gert þetta vel í tíma. MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI Hjúpið allan borgararann með hveiti, eggjahvítu og tortillamylsnunni. Laxaborgarinn er hollur skyndibiti. Rauðkáls-hrásalat sem sett er á brauðbotninn. Brekkugerði Myndir / Þórveig Jóhannsdóttir

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.