Bændablaðið - 26.01.2017, Blaðsíða 50

Bændablaðið - 26.01.2017, Blaðsíða 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. janúar 2017 Bókin Heiða – fjalldalabóndinn eftir Steinunni Sigurðardóttur hlaut Fjöruverðlaunin, bók- menntaverðlaun kvenna, sem voru veitt við hátíðlega athöfn í Höfða 19. janúar síðastliðinn. Bókin hlaut verðlaunin í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis, en hún fjallar um sauðfjárbóndann Heiðu Guðnýju Ásgeirsdóttur á Ljótarstöðum í Skaftártungu. Öðrum þræði segir bókin frá baráttu hennar gegn virkjunar- áformum í sveitinni. Í framhaldi af þeirri baráttu fór Heiða í fram- boð til sveitarstjórnar og á þar nú sæti fyrir óháða framboðið Sól í Skaftárhreppi. Hún bauð sig einnig fram í síðustu alþingiskosningum fyrir Vinstri hreyfinguna - grænt framboð og er varaþingmaður á Suðurlandi. Skylda að vernda landið Í umsögn dómnefndar um bókina segir: „Steinunn Sigurðardóttir skrifar í Heiðu, fjalldalabóndan- um um unga konu sem er marg- slunginn persónuleiki, full af andstæðum og fer eigin leiðir í lífinu. Heiða er einyrki á afskekktu sauðfjárbúi sem hellir sér út í sveitarstjórnarstörf vegna and- stöðu sinnar við hugmyndir um Búlandsvirkjun í Skaftárhreppi, enda ljóst að virkjun myndi gerbreyta náttúrufari héraðsins. Bókin sýnir bónda sem segist hafa tímabundin umráð yfir landinu og telur það skyldu sína að vernda það. Deilur um virkjunina valda úlfúð í samfélaginu en sagan dregur einnig upp mynd af tryggri fjölskyldu og góðum grönnum. Heiða er persóna sem vekur áhuga lesandans og Steinunn hefur gert meistaraleg skil.“ Heiða – fjalldalabóndinn hlaut Fjöruverðlaunin MENNING&LISTIR Leikfélag Hveragerðis er 70 ára: Garðyrkjumenn sýna strippdans „Leikritið segir frá nokkrum garðyrkjumönnum og fleirum sem ákveða að auka tekjurnar með því að koma fram og sýna strippdans. Sérstaklega bera þeir hag félaga síns fyrir brjósti þar sem hann er atvinnulaus og á það á hættu að missa samband við son sinn borgi hann ekki með- lagið. Við erum átján leikarar og Jón Gunnar Þórðarson leik- stýrir verkinu, frjór og drífandi leikstjóri sem félagið er heppið með,“ segir Hjörtur Benediktsson, formaður Leikfélags Hveragerðis, sem frumsýnir leikritið „Naktir í náttúrunni“ sem byggt er á kvikmyndinni „The full monty“ föstudaginn 27. janúar. Leikritið er staðfært að Hveragerði og nágrenni, ma. fléttast inn í verkið Eden og Tívolíið sáluga, Kjörís, Heilsustofnun og Hótel Örk svo eitthvað sé nefnt. 70 ára afmæli Leikfélag Hveragerðis á 70 ára afmæli á þessu ári, stofnað 1947 og alltaf jafn ungt og ferskt. „Það er gaman og þakklætisvert þegar allt fer af stað, að það skuli alltaf vera til einstaklingar sem tilbúnir eru að leggja hönd á plóg, hvort sem er við smíðar, málningarvinnu, sauma, hár- greiðslu , andlitsmálun og annað sem til fellur við svona uppsetningu fyrir utan sjálfan leikinn. Það er dýrmætt þegar fólk finnur tíma fyrir listina meðfram brauðstritinu. Ekki má heldur gleyma fjölskyldum þessa fólks sem mætir á æfingar og í aðra vinnu, nánast hvert kvöld í 6 til 8 vikur. Því fólki ber einnig að þakka fyrir þolinmæðina,“ segir Hjörtur og bætir við: „Hveragerðisbær hefur alltaf sýnt félaginu mikinn velvilja og stuðning, sem ber að þakka, og gera sér ljóst að það er hverju bæj- arfélagi heiður að hafa öfluga leik- starfsemi innanbæjar sem laðar að fjölda fólks ár eftir ár á sýningar. Þess má geta að í öll þessi 70 ár hefur Leikfélagið sett upp eina eða fleiri sýningar árlega og aldrei fall- ið úr ár. Menningarstarfsemi hér hefur frá upphafi verið mikil enda hefur Hveragerði verið sannkallaður menningarbær,“ segir formaðurinn. Uppselt er á frumsýninguna 27. janúar. Önnur sýning verður laugar- daginn 28. janúar og þriðja sýning sunnudaginn 29. janúar. Sýningar hefjast kl. 20.00 og miðaverð er kr. 3.000, fyrir hópa, 10 eða fleiri, kr. 2.500. Miðapöntunarsími 863-8522. Sýnt er í Leikhúsinu Austurmörk 23. /MHH Hjörtur Benediktsson, formaður leikfélagsins, fer með hlutverk í sýningunni en hann hefur verið einn af aðalleikurunum í gegnum árin í Hveragerði. Mikil tilhlökkun er fyrir sýningunni hjá Leikfélagi Hveragerðis þar sem nokkrir leikarar muna sýna strippdans á sviðinu. Stjórn félagsins segir ómetanlegt að eiga fólk sem hefur gert sýninguna að veruleika, hvort sem er í stóru eða smáu. Útskriftarsýning Ljósmyndaskólans 2017: Aðkallandi málefni samtímans Sjö útskrifanemendur úr Ljós- myndaskólanum standa fyrir sýningu á verkum sínum í Lækningaminjasafninu á Sel- tjarnar nesi. Sýningin verður opnuð 28. janúar og stendur til 12. febrúar. Í verkunum takast nemendurnir á við ýmis aðkallandi málefni. Má þar nefna heimilisofbeldi, föður- missi, fólksflótta úr sveitum lands- ins, kynþroska stúlkna, aðskilnað og einmanaleika svo nokkuð sé nefnt. Mundi Verk Steinunnar Grímu Kristins- dóttur, MUNDI, fjallar um hverf- andi byggð í sveitum landsins. Myndefni hennar er Guðmundur Magnús Þorsteinsson, bóndi á Finnbogastöðum í Árneshreppi á Ströndum. „Annars vegar fólksflótta úr sveitum og hins vegar það að verða einn eftir þegar allir flytja burt í leit að lífsfyllingu. Fólk flytur í burtu af ýmsum ástæðum, sækir í skóla, makaleit og vill fjölbreyttari störf. Ég tók fyrir íslenska bóndann en afkoma hans er slæm þrátt fyrir að allir á býlinu hjálpist að við störfin. Þegar einungis tvær hendur eru eftir til að vinna öll verkin aukast líkurn- ar á að gefa þurfi lífsstarfið upp á bátinn og sjá á eftir öllum dýrunum í sláturhúsið.“ Sjö nemendur útskrifast Nemendurnir sem útskrifast að þessu sinni eru: Elma Karen, Hafsteinn Viðar Ársælsson, Hanna Siv Bjarnadóttir, Laufey Elíasdóttir, Steinunn Gríma Kristinsdóttir, Steve Lorenz og Þórdís Ósk Helgadóttir. Sýningin verður haldin í Lækningaminjasafninu á Sel- tjarnarnesi og stendur frá 28. jan- úar til 12. febrúar. Opið verður frá fimmtudögum til sunnudags frá kl. 12.00-18.00. /VH Bókakápa Heiðu. MUNDI - Guðmundur Magnús Þorsteinsson, bóndi á Finnbogastöðum í Árneshreppi á Ströndum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.