Bændablaðið - 23.03.2017, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017
HROSS&HESTAMENNSKA
Fagráð í hrossarækt samþykkti
drög að áætlun kynbótasýninga
hrossa árið 2017 á fundi sínum á
dögunum. Sýningaráætlunin er
með líku sniði og undanfarin ár.
Þó byrja sýningar viku seinna en
í fyrra og verður því dæmt lengra
fram í júní í ár.
Heimsmeistaramót íslenska
hestsins mun fara fram í Hollandi
dagana 7.–13. ágúst og eru því síð-
sumarssýningarnar heldur seinna í
ágúst miðað við árið í fyrra. Opnað
verður fyrir skráningar á vorsýn-
ingar í apríl en frekari upplýsingar
má nálgast á vefsíðu RML.
Fjórðungsmót á Vesturlandi
Fjórðungsmót verður haldið á
Vesturlandi í ár, nánar tiltekið í
Borgarnesi, daganna 28. júní–2.
júlí.
Hross sem eru í eigu aðila
á Vesturlandi, Vestfjörðum,
Húnavatnssýslum eða Skagafirði
eiga þátttökurétt á mótinu og
er miðað við að lágmarki 25%
eignarhlut, að því er fram kemur
í tilkynningu frá RML. „Ákveðin
fjöldi efstu hrossa í hverjum flokki
eiga þátttökurétt á mótinu og er
því ekki um einkunnalágmörk að
ræða (sjá fjölda í meðfylgjandi
töflu). Miðað er við að 68 kyn-
bótahross verði á mótinu. Til að
auðvelda bestu klárhrossum með
tölti að komast inn á mótið verður
10 stigum bætt við aðaleinkunn
klárhrossa í sætisröðun hrossa inn
á mótið. Þetta er sama leið og var
farin fyrir síðasta landsmót hvað
klárhrossin varðar. Þegar kynbóta-
sýningar byrja næsta vor verður
birtur stöðulisti í WorldFeng sem
sýnir hvaða hross eru inni á mótinu
hverju sinni. Ef fleiri en eitt hross
eru jöfn í síðasta sæti inn á mótið
þá er þeim öllum heimil þátttaka á
mótinu. Eins verða eigendur hrossa
sem vinna sér þátttökurétt á mótinu
en ætla sér ekki að mæta með þau
af einhverjum ástæðum beðnir um
að láta vita fyrir ákveðna dagsetn-
ingu, þannig að hægt sé að bjóða
hrossum sem eru neðar á listanum
þátttöku á mótinu,“ segir í tilkynn-
ingu RML.
Sara frá Stóra-Vatnsskarði á Landsmóti 2016, knapi er Sara Rut
Heimisdóttir.
Ný keppnisgrein í hestamennsku ryður sér til rúms hér á landi:
TREC í takt við íslenska reiðmennsku
Innleiðing nýrrar keppnis-
greinar stendur nú yfir hjá
Landssambandi hestamanna-
félaga. Um er að ræða þrauta-
og víðavangshlaup, svokallað
TREC, sem hefur verið að breið-
ast út um Evrópu.
Greinin svarar eftirspurn eftir
nýrri nálgun og fjölbreyttari keppn-
isgreinum á íslenskum hestum en
hún hentar vönum sem óvönum
reiðmönnum. TREC kallar einnig
fram það besta í góðum reiðhesti,
að sögn Sigurðar Ævarssonar, því
hesti sem vegnar vel í greininni sé
frábær hestur fyrir alla.
Rík hefð er fyrir ferðamennsku
á hestum á Íslandi. Reyndar fer sú
grein vaxandi með auknum straumi
erlendra ferðamanna sem vilja upp-
lifa náttúru og víðerni landsins á
baki fótvissum, þjálum og traustum
íslenskum fáki. Þá er ekki ýkja langt
síðan hesturinn var aðal samgöngu-
tæki þjóðarinnar og okkar þarfasti
þjónn. Þótt öldin sé nú önnur og
hestamennska sé stunduð í gjör-
breyttri mynd er reynt að halda í
hefðir og aðferðir með ýmsu móti.
Ein birtingarmynd þess er keppn-
isgreinin TREC sem virðist vera að
ryðja sér til rúms í íslenskri hesta-
mennsku.
TREC, sem er stytting á franska
heitinu „Techniques de Randonnée
Équestre de Compétition“, er
keppnisgrein í reiðmennsku sem
kannar færni og samspil hests og
manns. Greinin er upprunnin í
Frakklandi og er til þess fallin að
efla færni í almennum útreiðum.
Þrjár tegundir þrauta
Samkvæmt opinberu regluverki
samanstendur TREC af þrenns
konar þrautum; gangtegundastjórn-
un á um 150 m braut, þrautabraut
sem nemur 1,5–5 km langri leið
og ratleikur sem er um 25–35 km
víðavangshlaup. Enn sem komið er
hefur aðeins verið keppt í þrauta-
braut og gangtegundastjórnun hér
á landi. Verkefnin sem þátttakendur
taka að sér eiga sér stað í náttúruleg-
um aðstæðum í víðavangshlaupinu
og býður íslensk náttúra þar upp
á fjölbreytta möguleika. Í þrauta-
braut þurfa þátttakendur að takast á
við ýmis verkefni, bæði á baki og í
hendi, s.s. að fara yfir brú, stökkva
yfir hindrun, ríða gegnum hlið án
þess að sleppa af því hendinni. Í
gangtegundastjórn reynir á aga og
þjálfun hests sem og gott samspil en
þar er þátttakendum ætlað að sýna
snerpu og stjórnun á hægum og
hröðum útfærslum af gangtegund.
Góð reiðmennska og vel taminn
hestur njóta sín vel í TREC, þar sem
keppnin reynir á útsjónarsemi og
ratvísi knapans ásamt þjálni hests
og, upp að vissu marki, gæði gang-
tegunda án þess þó að gera kröfu
um yfirburða ganghæfileika.
„TREC er keppnisgrein sem
hentar öllum sem hafa áhuga á
hestamennsku og er í raun keppni
í alhliða hestamennsku,“ segir
Sigurður Ævarsson, en hann situr
í TREC-nefnd hjá Landssambandi
hestamannafélaga.
„Það að hestur sé traustur, mjúk-
ur, þjáll og að knapinn höndli verk-
efni eru mjög í takt við íslenska reið-
mennsku, hvort sem um er að ræða
smalamennsku, ferðalög, bústörf
og heilt yfir okkar náttúrulegu og
frjálslegu frístundahestamennsku,“
segir Valur Ásmundsson, sem
einnig situr í nefndinni.
Íslenski hesturinn sniðinn
að TREC
Sigurður segir að fyrir um áratug
hafi þáverandi sendiherra Íslands
í Frakklandi, Tomas Ingi Olrich,
vakið athygli Landssambands
hestamannafélaga á greininni, en þá
var mikil gróska í TREC þar í landi.
„Í framhaldi sendi Lands-
sambandið nokkur ungmenni til
Frakklands til að keppa Í greininni
en um leið kynntu fulltrúar frá
stjórn LH sér greinina. Fyrir um 4
árum gekk LH svo í FITE, sem eru
alþjóðasamtök hestaferðamennsku
og hafa fulltrúar frá LH og nokkrum
hestamannafélögum haldið hróðri
TREC á lofti síðan þá.“
Eitt þeirra er hestamannafélagið
Funi í Eyjafirði sem heldur TREC-
keppni á Melgerðismelum ár hvert.
„Þetta hefur verið rauður þráð-
ur í æskulýðsstarfinu og árið 2013
og 2014 vorum við einnig með
æfingar og keppnir fyrir fullorðna.
Á Melgerðismelum höfum við tekið
fallegt svæði upp á hól í útjaðri
skógræktarinnar undir þrautabraut.
Þar er t.d. hlið, tröppur, brú, hindr-
anir, skurður og brautin fer að hluta
til inn á milli trjáa,“ segir Valur.
Fjölhæfni og geðslag íslenska
hestinn eru vel til þess fallin að nota
í TREC.
„Okkar íslenski hestur er frábær
í þetta verkefni og reiðhefð okkar
er byggð á sama grunni, þ.e. ferða-
og vinnuverkefnum með hestinum
í gegnum aldirnar. Geðslagið og
vinnusemi þessa einstaka kyns er
sniðin í þetta verkefni,“ segir Valur.
„Til þess að farnast vel í TREC þarf
Á Melgerðismelum má finna skemmtilega TREC-þrautabraut í útjaðri skógræktarinnar. Þar er t.d. hlið,
tröppur, brú, hindranir, skurður og brautin fer að hluta til inn á milli trjáa.
Hestamannafélagið Sprettur stóð fyrir TREC-keppni árið 2013 þar sem
keppendur þurftu að leysa ýmis verkefni í þrautabraut.
Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrun.hulda.palsdottir@gmail.com
Kynbótasýningar hrossa sumarið 2017