Bændablaðið - 23.03.2017, Qupperneq 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017
Eftirherman og „orginalinn“ ríða um héruð
– Fyrrverandi landbúnaðarráðherra og síðasti innfæddi Ingjaldssandsbúinn á faraldsfæti
„Það má nú deila um hver er meira
orginal,“ segir búfræðingur-
inn, stjórnmálafræðingurinn,
lífskúnstnerinn og eftirhermi-
sérfræðingurinn Jóhannes
Kristjánsson í samtali við tíðinda-
mann Bændablaðsins.
Hann er nú að hefja yfirreið um
héruð ásamt félaga sínum, Guðna
Ágústsyni, sem eitt sinn sat í stóli
ráðherra landbúnaðarmála. Munu
þeir í sameiningu og báðir í hóp
reyna að fá fólk sem til þeirra kemur
að hætta þeim ósið að halda niðri
í sér hlátrinum. Segir Jóhannes að
með góðum hlátri létti menn bæði á
sál og líkama sem spari þjóðarbúinu
gríðarlega fjármuni.
Jóhannes og Guðni hófu yfir-
reið sína í Grindavík en verða
í Félagsheimili Hrunamanna á
Flúðum föstudagskvöldið 24. mars
og verður húsið opnað klukkan
20.00. Þá verða þeir í Midgard á
Hvolsvelli laugardaginn 25. mars.
Þann 31. mars og 7. apríl verða
þeir félagar í Landnámssetrinu
í Borgarnesi. Síðan verða þeir í
Salnum í Kópavogi 8. og 12. apríl.
Allar þessar samkomur hefjast
klukkan 20.00.
Guðni var í sóknarnefnd með
Hallgerði langbrók
„Þetta eru eins konar sagnakvöld,
enda hæg heimatökin þar sem
annar okkar er með um eða yfir
tvö þúsund ára lífaldur. Við erum
svo heppin að með mér verður eini
núlifandi maðurinn sem var við-
staddur þegar kristni var lögtekin
hér á landi. Hann getur því staðfest
að allt sem þar fór fram hefur farið
fram síðan. Hann var til að mynda
með Hallgerði Höskuldsdóttur lang-
brók í sóknarnefnd að mér skilst og
var í hreppsnefnd með Skarphéðni,“
segir Jóhannes. Hann segir því lítið
vandamál að fletta upp í þeim sögu-
lega gagnabanka sem Guðni er.
„Nú, svo segjum við sögur af líð-
andi stund og lífinu sjálfu. Sumir
kalla slíkt uppistand, en held að þetta
verði allavega eitthvert ástand.“
Jóhannes segir að það hafi verið
óskað eftir því lengi að þeir félagar
riðu saman um héruð til að gleðja
fólk.
Síðasta barnið sem fæddist á
Ingjaldssandi
Eins og allir eiga að vita þá er
Jóhannes borinn og barnfæddur á
Ingjaldssandi, en hann er einn tólf
systkina. Snemma á síðustu öld
bjuggu þar vel á annað hundrað
manns, en í Mýrarhreppi, sem nær
yfir í Dýrafjörð, bjuggu 502 árið
1901 samkvæmt tölum Hagstofu
Íslands.
„Ég var síðasta barnið sem
fæddist á Ingjaldssandi, en þeir
Igjaldssandsbúar, sem síðar komu
í heiminn, fæddust allir utan sveit-
arinnar. Þegar ég fæddist þótti ekki
ástæða til að fara með móður mína
til læknis á Flateyri og þaðan af síður
suður. Enda myndi ég bara koma í
heiminn þegar ég væri tilbúinn – og
ég gerði það.“
Jóhannes segist enn eiga athvarf á
Ingjaldssandi þar sem hann reynir að
dveljast eins mikið og hann getur á
sumrin. Þó fátt sé orðið um fasta ábú-
endur allt árið þá dvelst fjöldi fólks
á Ingjaldssandi á sumrin og sækjast
brottfluttir þá eftir að heimsækja
æskustöðvarnar með fjölskyldum
sínum.
Af og til á sumrin en alla daga í
huganum
„Ég er þarna af og til á sumrin en alla
daga í huganum,“ segir Jóhannes.
„Mitt líf snýst mikið um tilveruna
á Ingjaldssandi. Ég miða t.d. allar
vegalengdir út frá vegalengdum
þarna fyrir vestan.
„Ég var einu sinni spurður
að því af sveitunga mínum hvað
Ramblan í Barcelona væri löng.
(La Rambla, er aðaltúristagatan í
borginni). Ég sagði honum að það
væri frá Sæbóli og alveg fram að
Álfadalshliði. Eins og menn vita
þá er algengt í fjölmiðlum að miða
hæð við Hallgrímskirkjuturn. Hjá
mér er það svipað, nema hvað ég
nota þá staðhætti á Ingjaldssandi
sem mér eru tamastir og allir eiga
að sjálfsögðu að þekkja.“
Ingjaldssandur „er“ nafli
alheimsins
„Þegar ég miða við loftlínu frá
heimili mínu fyrir vestan fram í
Hraun á Ingjaldssandi þá er það
um einn kílómetri. Eitt sinn var ég
úti að ganga og var spurður hvað
ég hafi gengið langt. Ég svaraði um
hæl; … ja, það er nú bara svona eins
og niður í samkomuhús. Eðlilega
eiga menn þá að vita hvað við er
átt. Allavega rengir mig enginn og
ég geng út frá því að það þekki allir
staðhætti á Ingjaldssandi.
Þegar ég segi að eitthvað sé jafn
hátt og kirkjan, þá á ég að sjálf-
sögðu við kirkjuna á Sæbóli, eins
og allir vita. Ég nota þetta líka þegar
útlendingar spyrja mig til vegar og
um fjarlægðir til ólíkra staða. Einn
spurði mig hvað það væri langt
úr vesturbænum í Reykjavík inn
í Laugardal. Ég sagði að það væri
líklega svipað og að Sæbóli. Annar
spurði hvað það væri langt frá mið-
borginni og út á flugvöll. Ég svaraði
því til að það væri svona álíka og
upp að Hálsi. Viðkomandi gerði
engar athugasemdir við það svo það
er greinilegt að flestir skilja þetta.
Enda er Ingjaldssandur í mínum
huga nafli alheimsins og hefur alltaf
verið. Þar af leiðandi hlýtur hann
einnig að vera það í huga annarra.“
Byrjaði formlega að skemmta 14.
febrúar 1976 klukkan
hálf ellefu
– Nú ert þú búinn að starfa lengi
sem skemmtikraftur, manstu
nákvæmlega hvenær þú byrjaðir?
„Já, ég byrjaði formlega 14. febr-
úar klukkan hálf ellefu árið 1976 í
Fóstbræðraheimilinu. Síðan hef ég
ekki stoppað, en ætlaði að hætta
1982 þegar ég fór í Háskólann en
ekkert varð úr því. Það sama ár
varð þetta aðalatvinnan mín og er
enn þó ég hafi auðvitað unnið við
margt annað líka. Þetta er svona
dæmi um það að maður ræður ekki
sínum næturstað. Eða eins og sagt
er; kóngur vill sigla en byr hlýtur
að ráða.“
Nú eru allir mótaðir í sama form
Nú hefur eflaust verið gaman að
fást við að herma eftir mörgum lit-
ríkum pólitíkusum í gegnum tíðina.
Finnst þér þessi þjóðflokkur ekki
vera orðinn fremur litlaus í dag?
„Það er meiri bragur á því að þeir
séu aldir upp á sama hátt og mótaðir
í sama form á leikskólum frá unga
aldri, öðruvísi en áður var. Ég held
að það séu til sérstakir einstaklingar,
en þeir ná bara ekki að skína í gegn-
um þetta sameiginlega eldi. Allt er
alið upp á því sama og ef einhver er
öðruvísi, þá er hann litinn hálfgerðu
hornauga. Allir eiga að vera eins.
Ég held samt að sérstöku einstak-
lingarnir séu enn til, en þeir eru bara
ekki dregnir fram á sjónarsviðið.
Auðvitað er svo misjafnt á
hverjum tíma hvaða persónur og
Markmið styrkveitinganna er að efla markaðssókn og ræktun íslenska hestsins.
Styrkhæf eru hvers konar verkefni er lúta að:
a) Kynbótum hrossa, fóðrun þeirra eða meðferð.
b) Tamningum og þjálfun hrossa sem stuðla að auknum árangri og ávinningi.
c) Markaðs-, kynningar- og nýsköpunarstarfi.
Lögð er megin áhersla á að styrkja átaks- og nýsköpunarverkefni sem geta orðið sjálfbær
eftir að þróunartímabili þeirra lýkur, útgáfu- og kynningarstarfsemi og hagnýtar rann sóknir.
Sjóðurinn hefur til ráðstöfunar 5,6 milljónir króna.
Í umsóknum skal gerð skýr grein fyrir verkefninu sem í hlut á, markmiði þess, fram kvæmda -
áætlun og ávinningi. Hverri umsókn skal fylgja greinargóð kostnaðaráætlun. Ráðuneytið
metur styrkhæfi umsókna og ákveður afgreiðslu þeirra.
Umsóknir skulu berast atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, Skúlagötu 4, 101 Reyk-
javík eða á netfangið postur@anr.is. Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl 2017.
Nánari upplýsingar veitir Kjartan Hreinsson í síma 545 9700. Einnig má senda fyrirspurnir
með tölvupósti á netfangið postur@anr.is.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir hér með
eftir umsóknum um styrki úr þróunarfjárframlagi til hrossaræktar
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
„Svona er þetta bara,“ segir búfræðingurinn Jóhannes Kristjánsson. „Upphaf og endir alls er íslenskur landbúnaður
og eins og allir vita er na i alheimsins á Ingjaldssandi.“ Mynd / HKr.
Ramblan í Barcelona La Rambla, eða
Laugavegur þeirra Barselónabúa .
Á Ingjaldssandi 1996. Jóhannes að kenna Vöku, þriggja ára dóttur sinni, á
traktorinn, enda ekki seinna vænna. Sjálfur var Jóhannes farinn að vinna
á dráttarvél í heyskapnum 7 ára. Hann mátti þó ekki fara akandi y r Sands-
heiðina fyrr en við tólf ára aldurinn og þá helst ekki mikið lengra en að Núpi
á jeppa föður síns. Þá var reglufargan ekki mikið að vefjast fyrir mönnum.
Það þarf nú líka að heyja þó enginn sé bústofninn, þó ekki til annars en að
halda sér við í fræðunum.