Bændablaðið - 23.03.2017, Blaðsíða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017
Landið:
Samráðshópur bænda um loftslagsmál
og visthæfan landbúnað
Ég tel augljóst að bændur og
búalið á Íslandi hverfi, líkt og
svo margir aðrir, æ dýpra með ári
hverju inn í loftslagsmálin.
Aukinn skilningur á þróun veð-
urfars á Íslandi og annars staðar og
innilegri óskir grípa um sig; óskir
um að sporna við óæskilegum
breytingum í veðurfari og ásetn-
ingur um að geta brugðist við því
sem ekki verður breytt. Svo seint
bregst mannkyn við að við munum
þurfa að leggja fram mikla vinnu og
gríðarlegt fé á heimsvísu næstu ára-
tugi vegna allt of hraðrar og mikillar
hlýnunar sem umsvif manna eiga
stóran þátt í nú á tímum. Æðruleysi
og samstaða skipta þar miklu máli;
líka þverpólitísk samstaða og vilji
til að leggja hugvit, vinnu og fé af
mörkum.
Á nýliðnu ársþingi Bændasamtaka
á Akureyri kom glöggt fram að
umhverfis- og loftslagsmál skipa æ
hærri sess í starfi heildar- og starfs-
greinasamtaka bænda.
Ég nefndi þar í stuttri ræðu að
bændur gætu lært af sjávarútvegs-
geiranum þegar kemur að samhæf-
ingu viðbragða innan landbúnaðar-
geirans. Talaði um samráðshópinn
Hafið sem stofnaður var 2014. Hann
er það sem kallast öndvegissetur
og skipaður fulltrúum fjölmargra
aðila innan sjávarútvegsins en líka
fulltrúum stofnana, fyrirtækja sem
koma að sjávarútvegi en teljast
ekki innan atvinnugreinarinnar og
enn fremur fulltrúi umhverfis- og
auðlindaráðuneytisins. Þarna eru
útgerðarfyrirtæki, tæknifyrirtæki,
háskólar, hagsmunasamtök önnur
en Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi,
orkufyrirtæki, rannsóknarstofnanir,
faghópafélög, svo eitthvað sé nefnt.
Á heimasíðu setursins (www.
hafid.info) stendur: „Markmið
félagsins er að skapa samstarfs-
grundvöll fyrir fyrirtæki, opinbera
aðila og rannsóknarstofnanir til þró-
unar á tækni, löggjöf og hverju því
sem stuðlar að verndun og sjálfbærri
umgengni um hafið. Hafið leitast
við að auka almennan skilning og
þekkingu á hafinu og mikilvægi
þess. Félagið stendur fyrir samstarfs-
verkefnum og leitar styrkja til þeirra
og starfseminnar í heild sinni, bæði
innanlands og erlendis. Hafið er
samstarfsvettvangur aðila sem nýta
vilja sameinaðan styrk til verndunar
hafsins.“
Allt er þetta nokkuð skýrt og hægt
að spegla yfir á landið og landbún-
aðinn. Hafið er rekið fyrir þátttöku-
gjöld og er nú með einn starfsmann
og margvísleg verkefni í deiglunni.
Til þess að stytta langt mál vil
ég halda því fram að bændur geti
tekið Hafið sér til fyrirmyndar í
grundvallaratriðum og stofnað til
öndvegisseturs á sínum forsend-
um og þeirra sem koma að því
að gera greinina vistvænni, sjálf-
bærari og loftslagsvænni, allt
frá Landgræðslunni og LhbÍ til
Nýsköpunarmiðstöðvarinnar, MS og
annarra eða minni fyrirtækja, auk
hagsmunasamtaka.
Ari Trausti Guðmundsson
Höfundur er þingmaður VG
í Suðurkjördæmi
LESENDABÁS
Myndin sýnir hvað Ha ð inniheldur og aðilum fjölgar um þessar mundir.
Ari Trausti Guðmundsson.
Ný sýn í byggðamálum:
Landsbankinn fyrir landsbyggðina!
Fyrir nokkru talaði Þóra
Arnórsdóttir í Kastljósi við ungan
erlendan sérfræðing í bankamál-
um, Rob Galasky. Þessi ágæti
maður sagði m. a. eitthvað á þessa
leið:
„Sigurvegararnir í bankamálum
verða þeir sem vinna út frá viðskipta-
vininum. Sá tími getur verið skammt
undan að gjaldkerinn í stúkunni í
útibúinu fái hærri laun en þeir sem
nú stimpla sig inn í bönkunum og
hirða hæstu launin.“
Sparisjóðirnir voru þrautreynt
fyrirkomulag
Sparisjóðirnir voru akkeri byggð-
anna. Þeir voru nokkurs konar
heimabankar eða samfélagsbankar
ef leyfist að nota það orð. Þar stjórn-
uðu heimamenn öllu innan stokks.
Aðalfundur einu sinni á ári. Spilin
lögð á borðið. Þegar ekki var hægt
að fá fimmeyring í stóru bönkunum,
þá lánuðu sparisjóðirnir sínu heima-
fólki. Til dæmis þegar menn voru að
koma sér upp þaki yfir höfuðið og
voru að bíða eftir húsnæðis- og líf-
eyrissjóðslánum. Peningar fólksins
sjálfs voru í vinnu heimafyrir. Það
var ekki um að tala að stóru bank-
arnir vildu lána fólki út á íbúðarhús
í einhverjum krummaskuðum. Þetta
er okkur minnisstætt.
Allur hagnaður sparisjóðanna
fór í uppbyggingu í heimahéraði.
Erum að bíta úr nálinni með það
þessi misserin að við glopruðum
þeim niður í krakkinu mikla. Nýlega
skrifaði Gunnar Skúli Ármannsson
læknir grein um Samfélagsbanka
Norður-Dakota í Bandaríkjunum í
það merkilega blað, Bændablaðið.
Þar segir að íbúar N-Dakota elski
bankann sinn því hann sé vinur
þeirra! Hér á landi þótti mörgum
vænt um sparisjóðinn sinn. Hvernig
skyldi því háttað í dag með bankana
okkar?
Landsbankinn verði fyrst og
fremst landsbyggðarbanki
Ekki vitum við betur en flestir
Íslendingar vilji jafnvægi í byggð
landsins. En þetta útþvælda og mis-
skilda hugtak þarf að endurskoða.
Allir landshlutar eiga að fá að njóta
sín. En því miður hefur svokölluð
byggðastefna stjórnvalda mistekist
að ýmsu leyti. Þarf ekki annað en
benda á Vestfirði í því efni.
Upplagt er að Landsbankinn
komi af fullum þunga inn í það
sérverkefni að snúa þeirri þróun
við, ef það er á annað borð hægt.
Bankinn verði skilgreindur sem
landsbyggðarbanki fyrst og fremst.
Erlendis eru nægar fyrirmyndir
slíkra fjármálastofnana sem við
Íslendingar getum lært af. Bankinn
verði einfaldlega gerður ábyrgur
gagnvart landsbyggðinni með því
að hjálpa mönnum til sjálfshjálpar
og komi þannig í stað hinna glötuðu
sparisjóða. Og laði fólkið þar að sér
með skynsamlegum og mannlegum
hætti. Með því móti yrði miklu oki
létt af Alþingi og ríkisstjórn.
Á Byggðastofnun heima í
Landsbankanum?
Svo leggjum við til að skoðað verði
hvort Byggðastofnun ætti ekki að
vera deild í Landsbankanum og ráð-
gefandi aðili fyrir hann. Þá verða
hæg heimatökin og menn munu líta
á þessi blessuðu byggðamál öðrum
augum en gert hefur verið.
Sumir segja að Landsbankinn
hafi gefið vondu köllunum á lands-
byggðinni mikla fjármuni með
afskriftum lána og slíku.
Við spyrjum: Er það raunin?
Hefur ekki bankinn afskrifað og
gefið til dæmis Reykvíkingum
miklu meiri fjármuni heldur en
þessum rugludöllum á landsbyggð-
inni? Hefur farið fram könnun á því
hjá hverjum Landsbankinn hefur
verið að afskrifa í gegnum tíðina?
Landsbankinn verði skilgreind-
ur sem banki landsbyggðarinnar í
eigu okkar allra eins og áður segir.
En auðvitað yrði starfssvæði hans
allt landið og miðin eins og verið
hefur frá upphafi bankans. Nokkurs
konar nýr sparisjóður þeirra sem
á landsbyggðinni vilja búa. Hann
vinni út frá viðskiptvininum og
fyrir hann fyrst og fremst. Eins og
bankamaðurinn Rob Galasky nefnir.
Allur hagnaður bankans færi til upp-
byggingar annars staðar á landinu
en á suðvesturhorninu. Ljóst er að
fjöldinn allur af erlendum bönkum
starfa að ákveðnum verkefnum. Þar
höfum við alls konar fyrirmyndir
sem áður segir.
Eru viðskiptavinirnir til fyrir
bankana?
Vel má hugsa sér að yfirstjórn hins
nýja Landsbanka verði að hluta til
skipuð fulltrúum landsbyggðarkjör-
dæmanna. Og að hinu leytinu full-
trúum starfsfólks bankans. Aukin
áhrif starfsmanna á stjórn og stefnu
bankans gætu orðið til mikilla bóta.
Í dag virðast menn forðast það eins
og heitan eldinn að starfsfólkið
komi þar við sögu.
„Nú er ný sala banka framund-
an og fjármálakerfi framtíðarinn-
ar á Íslandi í mótun, en umræðan
er innihaldslítil og heyrist varla.“
Svo segir Kristrún Heimisdóttir í
Mogganum og er umhugsunarefni.
Undirritaðir hafa kannski ekki
mikið vit á bankamálum frekar en
margir aðrir. Og þó. Við þekktum
sparisjóðakerfið nokkuð vel. Við
vitum að almennilegur banki þarf
að vinna fyrir viðskiptavini sína eins
og þeir gerðu. Við bendum á að það
þarf að skilgreina Landsbankann á
svipaðan hátt. Við teljum að með
þeim vendingum yrði til ný, áhrifa-
rík byggðastefna.
Svo er allt í lagi að nefna hér, að
upplagt væri að hinn nýi Landsbanki
hefði forgöngu um að afnema
bankaleynd af vissum bankagjörn-
ingum. Allir mestu fjárglæframenn
sögunnar hafa haft bankaleyndina
fyrir skjöld og brynju. Er ekki tími
til kominn að breyta þeirri vitleysu?
Að lokum:
Eru viðskiptavinirnir til fyrir
bankana, eða eru bankarnir
kannski til fyrir viðskiptavinina?
Hallgrímur Sveinsson
Bjarni G. Einarsson
Guðmundur Ingvarsson
Þingeyri við Dýrafjörð. Greinarhöfundar spyrja: „Hefur ekki bankinn afskrifað
og ge ð til dæmis Reykvíkingum miklu meiri fjármuni heldur en þessum
rugludöllum á landsbyggðinni?“ Mynd / HKr.