Bændablaðið - 23.03.2017, Qupperneq 56

Bændablaðið - 23.03.2017, Qupperneq 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2017 Steinn er fæddur og uppalinn á Þernunesi og tók við búinu árið 2012 en Valdís flutti þangað 2013. Býli: Þernunes 2. Staðsett í sveit: Í sunnanverðum Reyðarfirði. Ábúendur: Steinn Björnsson og Valdís Hermannsdóttir. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Steinn á tvö börn úr fyrra sambandi, Lilju, 14 ára og Marinó, 10 ára, svo eigum við saman Hermann, sem er að verða 8 mánaða. Við eigum tvo smalahunda, Dropa og Grímu og einn sparihund, Skottu. Stærð jarðar? 1.200 ha. Gerð bús? Sauðfjárbú. Fjöldi búfjár og tegundir? 540 fjár og nokkrir hestar. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Gjafir kvölds og morgna og þess á milli er árstíðabundnum störfum sinnt, ásamt því að hestarnir eru hreyfðir. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Allt skemmtilegt, en bara misjafnlega mikið, skemmti- legustu störfin eru þó klárlega sauð- burður og smalamennskur ásamt heyskap í góðri tíð. Leiðinlegast er þegar búféð veikist eða slasast. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Í mjög svipuðu sniði eins og hann er núna, en þá ætlum við að vera komin með góða aðstöðu fyrir hestana og ríða meira út. Hvaða skoðun hafið þið á félags- málum bænda? Við höfum ekki miklar skoðanir á félagsmálum bænda. Hvernig mun íslenskum landbún- aði vegna í framtíðinni? Ef haldið er rétt á spöðunum, þá ætti honum að vegna vel í framtíðinni, til þess þurfa stjórnvöld og bændur að vinna vel saman. Það þarf að halda á lofti gæðum og hreinleika íslenska land- búnaðarins. Hvar teljið þið að helstu tæki- færin séu í útflutningi íslenskra búvara? Helstu tækifærin eru í raun útlendingar sem eru staddir á Íslandi, að fæða ferðamenn. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, bæði frá MS og Örnu, súr- mjólk, smjör og ostur. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Allar afurðir sauð- kindarinnar. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Við munum svo sem ekki eftir neinu sérstöku, en sauð- burðurinn í fyrra var einstaklega góður. Líf og lyst BÆRINN OKKAR Matreiðsla með börnunum – salat í krukku og orkustykki Það vita flestir hvernig á að gera dýrindis eftirrétti og ekkert mál að fá krakka til að borða þá, en það fer meiri tími í að fá börn til að borða salat til dæmis. Salöt í krukku hafa verið í tísku undanfarið, en hvernig á að gera salat sem krakkarnir vilja raunverulega borða? Svarið er að láta þau raða sjálf lagskipt í krukku og hrista svo fyrir framreiðslu. Salat í krukku Best er að gefa krökkunum þínum fulla stjórn yfir hvað á að setja í krukkuna – svo lengi sem þau nota að minnsta kosti fjórar tegundir af grænmeti. Til dæmis: gulrætur, baunir, maís, lárperu og jarðarber. Hægt er að bæta við skinku (eða hverju því sem fólk vill). 1. Fyrir mýkri matvæli á borð við lárperu og skinku er hægt að leyfa barninu að skera þau sjálft. Lárperu er hægt að skera með bitlausum smjörhníf og klippa skinku með skærum. 2. Byrjið með dressingu neðst svo salatið blotni ekki. Setjið um 2–3 matskeiðar af sósu eða dressingu í botninn. Svo raðið þið grænmetinu lagskipt; þyngsta grænmetið fyrst og svo lag eftir lag eftir þyngd. Efst er svo salatið. Röðin gæti þá til dæmis verið: gulrætur, skinka, baunir, maís, lárpera, jarðarber og grænt salat á toppinn. Svo má setja stökkt á toppinn eins og kartöfluflögur eða brauðteninga. Krakkarnir elska „kex“ þannig að það gerir salat meira aðlaðandi. Salatið er þá klárt, Á þessum tíma- punkti getur þú kælt salatið og borðað það síðar. En ef þið viljið borða það strax, er bara að hrista krukkuna og hún er klár. Honey Nut Cheerios orkustykki Hér er uppskrift að orkustykki með þurrkuðum ávöxtum, súkkulaði og sólblómafræjum. Það er tilvalið að nota hráefni í það sem er við höndina hverju sinni. Ég set próteinduft líka í það en þá er það meira fullorðins. Í því er fullkomin orka sem morgunmatur en það er líka gott að borða sem snakk, á ferðinni. › 1/4 bolli ósaltað smjör › 1/4 bolli hunang › 1/4 bolli ljós púðursykur › 1 msk. vanilludropar › 3 bollar Cheerios (eða svipað morg- un korn. Venjulegu Cheeriosi má skipta út fyrir minna sæt múslistykki) › 1 bolli rúsínur, fræ eða aðrir þurrkaðir ávextir og hnetur › um 1/2 bolli skraut til dæmis súkkulaði hjúpuð sólblómafræ, smá súkkulaði, korn til skrauts eða kakónibbur › ögn flögusalt Setjið álpappír í botninn á pönnu og setjið til hliðar. Gott er að pensla með ögn af smjöri eða olíu – og setjið svo til hliðar. Setjið smjör, hunang og púðursykur í skál sem má fara inn í örbylgjuofn. Hitið í um mínútu þar til þetta hefur bráðnað. Hitið blönduna næst á hærri styrk í eina mínútu, takið blönduna út og hrærið. Loks er blandan hituð á hæsta styrk í mínútu og svo hrært í henni. Þegar hún hefur verið hituð þrisvar er blandan orðin froðukennd og þá skal fara með gát með hana því hún er orðin að sjóðandi heitri karamellu og getur valdið hættuleg- um bruna. Hrærið vanillunni varlega saman við vegna þess að blandan getur soðið upp úr. Hrærið morgunkorni saman við. Hrærið rúsínum eða hnetum saman við. Setjið blönduna á pönnuna og þrýstið smjörpappír fast niður í blönduna með spaða. Má skreyta með fræjum og salti (eða skrautperlum). Setjið pönnuna í ísskáp og kælið í að minnsta kosti tvær til þrjár klukku- stundir eða yfir nótt – eða þar til stykkin eru alveg stíf. Geymist í loft- þéttu íláti í kæli í allt að tvær vikur eða í frysti í allt að sex mánuði. MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI Þernunes
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.