Bændablaðið - 11.01.2018, Side 29
29Bændablaðið | Fimmtudagur 11. janúar 2018
á rafmagni. Menn tala um vesturbæ
Reykjavíkur sem dæmi. Þar er ekki
hægt að setja upp hleðslustöðvar.
Sólarsellur gætu mögulega hjálpað
þar til. Maður sér það fyrir sér líka
varðandi sumarbústaði úti á landi
sem og sveitabæi. Það er að eiga
sér stað sú þróun að menn ættu að
geta sett upp sólarsellur og hlaðið
inn rafhlöður heima hjá sér. Þannig
geta menn geymt orku þar til þörf er
á að nota hana.
Hér á Íslandi höfum við lítið þurft
að hugsa um þessa hluti vegna þess
að rafmagnið er ódýrt. Bretar og
fleiri þjóðir eru komin mun lengra
á þessari braut.
Okkur langar til að prófa þetta
og, ef það gengur vel, að leyfa öllum
að fylgjast með og veita almenningi
aðgang að þeim upplýsingum. Við
ætlum ekki að sitja að þessu ein. Við
erum tilbúin til að taka áhættuna og
borga kostnaðinn við þetta.“
Væntir þess að stofnkostnaðurinn
skili sér á átta árum
Þórarinn segir að búnaðurinn sem
hann ætlar að setja upp hér kosti allt
í allt um fjórar milljónir króna.
„Raforkusparnaðurinn miðað
við verð á kílóvattstund í dag er
um 500 þúsund krónur á ári. Þetta
er raforka sem ég myndi annars
kaupa af veitukerfinu. Það þýðir
að stofnkostnaðurinn ætti að skila
sér á átta árum. Þetta miðast við að
ég geti verið með 8 bíla í hleðslu
á 16 amperum sem er ansi mikið.
Við erum nú með 11 ampera
hleðslustöðvar og reyndar líka 16
ampera stöðvar og eina öfluga 60
ampera stöð.
Ég sé fyrir mér mikla möguleika
sem í þessu felast. Fólk sem á
mögulega bústað úti á landi, þar sem
raforka er mjög takmörkuð, getur t.d.
verið með sólarsellur uppi á þaki í
bústaðnum til að fullhlaða rafhlöðu
sem bæði nýtist til upphitunar og
fyrir rafbíl. Svo ekur það í bæinn og
tengist stöð hjá okkur og endurhleður
til að komast til baka. Svo er fólk
oft að fara í helgarferðir upp í
sumarbústað þar sem bíllinn stendur
megnið af tímanum óhreyfður. Þann
tíma má hæglega nota til að hlaða
rafbíl. Ég vona að með því sem við
erum að fara að gera, þá getum við
sýnt fólki fram á það að hindranirnar
við notkun rafbíla eru minni en við
höldum. Þess vegna er ég svo hrifinn
af því sem bændur eru að gera, að
vera með hleðslustöðvar úti um allt
land. Menn þurfa því ekkert að óttast
það að vera stopp úti í sveit.“
Hyggst kolefnisjafna IKEA á
Íslandi innan tíu ára
„Við ætlum að kolefnisjafna
fyrirtækið innan tíu ára, það er
okkar stefna og við ætlum að vera
leiðandi á því sviði. Það verður gert
á ýmsa vegu. Við ætlum að vera
leiðandi í að framleiða okkar eigið
rafmagn. Við ætlum að nota allan
þann lífræna úrgang sem fellur til hér
á veitingastaðnum til að framleiða
metangas og moltu.
Við erum með garðyrkjumarkað
hér fyrir framan húsið og draumurinn
er sá að við seljum þar okkar eigin
mold sem er í raun leifarnar af
kjötbollunum sem viðskiptavinir
matsölustaðarins skildu eftir á
disknum sínum. Þannig búum við
til vistvæna hringrás.“
Vill tankvæðingu fyrir lífrænan
úrgang
„Við erum ásamt nokkrum öðrum
stórum fyrirtækjum í veitingarekstri
að reyna að koma því í gegn að í
stað þess að setja ruslið í poka,
þaðan út í tunnu og síðan í ferli hjá
Sorpu, þá séu veitingastaðir með
tanka fyrir lífrænan úrgang. Það
er ekkert ósvipað og í gripahúsum
í landbúnaðinum. Síðan komi
tankbílar og dæli þessu upp og flytji
það í metangasverksmiðju.
Sem dæmi þá fer öll sú úrgangs
matarolía sem fellur til hér á
veitingastaðnum til að knýja að
hluta fiskiskipaflota Akureyringa.
Þannig eru skip Samherja að keyra á
steikingarolíunni frá IKEA. Þetta
er töluvert magn sem til fellur.
Fyrir utan þetta erum við
líka að spá í skógrækt og
munum stíga þessi skref
eins langt og við þurfum.“
Þórarinn segir að þetta
sé stefna sem bæði er að
hans frumkvæði og einnig
sé verið að nýta stefnu IKEA
hvað varðar framleiðsluhliðina,
þar sem t.d. eingöngu er notað
timbur í framleiðsluna sem er
umhverfisvottað. Þeir noti líka
eingöngu bómull sem er vottuð.
Pálmaolía sem notuð er við
matvælaframleiðslu er mjög
umdeild af umhverfisástæðum, en
þar segir Þórarinn að IKEA noti
eingöngu umhverfisvottaða olíu.
Þeir passa líka upp á að ýmis önnur
óheppileg efni séu ekki notuð við
framleiðsluna.
Ekki nóg að skipunin
komi að ofan
„Við erum svo að hugsa um hvað við
getum gert fyrir umhverfið er varðar
allt sem lýtur að versluninni sjálfri.
Þarna þurfa allir að hjálpast að og
ekki nóg að skipunin komi að ofan.“
Það eru peningar fólgnir í því að
vera umhverfisvænn
„Þess utan þá eru peningar fólgnir
í því að gera þetta vel. Það eru
peningar fólgnir í því að framleiða
metan úr sorpinu okkar í stað þess
að borga fyrir förgun. Í dag er það
þannig að við flokkum allt rusl og
fáum greitt fyrir bylgjupappann sem
við skilum til endurvinnslu og er
sendur til Svíþjóðar. Við að flokka
timbur sem til fellur í litað og ólitað
þarf ég að borga minna í förgun en
ella. Þarna spörum við okkur útgjöld
og fáum hugsanlega smá tekjur líka
við að sinna þessum málum.“
Peningalegir hagsmunir liggja í
eigin raforkuframleiðslu
„Það eru peningalegir hagsmunir
í því að framleiða eigið rafmagn.
Þá má líka horfa á það að ef við
framleiðum raforku inn á rafhlöður
þá spennujafnar það húsið. Það er
ekki nema tæpur mánuður síðan að
það sló niður eldingu í spennuvirki
vegna álversins í Straumsvík.
Þá fór rafmagnið af Garðabæ og
Hafnarfirði. Þrátt fyrir að við séum
með dísilvaraaflsstöð og með ufsa
til að tengja við tölvurnar svo þær
hangi inni á kerfinu, þá verður alltaf
tjón í slíkum tilvikum. Það verður
spennupunktur sem myndast við
höggið þegar rafmagn fer af og á.
Hér
v a r ð
því tjón
upp á milljónir
króna og slíkt gerist
nokkuð reglulega.
Þetta er tjón sem seljandi
raforkunnar bætir ekki, því
þú getur aldrei sannað að
orsökin sé vegna spennufalls.
Maður reynir ekki einu sinni að fara
í slíka vegferð.
Með því að vera með sólarsellur
á þakinu og hlaða rafmagni inn
á rafhlöður, þá virka þær eins og
þéttar og taka allt högg vegna
spennusveiflu í burtu. Þarna skapast
því afleiddur sparnaður fyrir okkar
tölvukerfi. Það er því ekki spurning
að það felast fjárhagslegir hagsmunir
í því að við framleiðum okkar
eigið rafmagn úr sólarorku,“ segir
Þórarinn Ævarsson.
Þórarinn vonast til að í framtíðinni geti IKEA á Íslandi framleitt sittt eigið rafmagn
með sólarorkurafhlöðum sem staðsettar yrðu á þaki byggingarinnar. Þá verði
allir matarafgangar sem til falla frá veitingastaðnum, sem og afgangsolía, nýtt
til gas- og moltugerðar.
S: 5272600 - www.velavit.is
Varahlutir - Viðgerðir
Vélavit
Sala Þjónusta
Varahlutir og viðgerðarþjónusta fyrir JCB lyftara