Bændablaðið - 11.01.2018, Qupperneq 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 11. janúar 2018
Sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra ákvað 30. desember
síðastliðinn að fella úr gildi allar
heimildir færeyskra fiskiskipa til
að stunda veiðar innan íslenskrar
lögsögu á árinu 2018.
Í þessu felst að þær reglugerðir
sem gilda um heimildir færeyskra
fiskiskipa til veiða innan íslenskrar
lögsögu voru felldar úr gildi frá og
með 1. janúar 2018.
Kristján Þór Júlíusson sjávar-
útvegsráðherra segir að ekkert
nýtt sé að frétta um stöðu málsins.
„Staðan sem við okkur blasir er
að íslensk skip fá ekki að veiða
kolmunnakvótann sinn í færeyskri
lögsögu og því hafa færeysk skip
ekki heldur veiðiheimildir í okkar
lögsögu.
Þegar Færeyingar ákváðu að loka
á veiðar Íslendinga á kolmunna í
færeyskri lögsögu lokuðust
ákveðnar dyr sem verður að opna á
ný. Að mínu mati eru þetta ákveðin
vonbrigði en engu að síður staða sem
við þurfum að takast á við og ég bíð
næstu viðbragða frá Færeyingum.
Samkomulag náðist ekki
Aðdragandi málsins er að á árlegum
fundi sjávarútvegsráðherra Íslands
og Færeyja í Þórshöfn í Færeyjum
12. til 13. desember síðastliðinn
náðist ekki samkomulag um
veiðiheimildir Færeyinga í íslenskri
lögsögu og um gagnkvæman aðgang
að lögsögum ríkjanna vegna veiða
á kolmunna og norsk-íslenskri síld
árið 2018.
Á vef sjávarútvegsráðuneytisins
segir að á fundinum hafi Ísland
boðið óbreyttan samning frá fyrra
ári en Færeyjar krafist aukinna
heimilda til veiða á botnfiski í
íslenskri lögsögu ásamt afléttingu
takmarkana á manneldisvinnslu á
loðnu. /VH
Tegund N P2O5 P Vatnsl. P K2O K Ca Mg S B Se
Fyrirframgr.
15. mars
Greitt fyrir
15. maí
Greiðslu-
dreifing
LÍF 27 27,0 4,3 2,4 48.796 kr. 50.387 kr. 53.039 kr.
LÍF 27-6-6 27,0 6,0 2,5 76% 6,0 5,0 2,3 59.760 kr. 61.709 kr. 64.957 kr.
LÍF 27-6-6+Se 26,6 5,9 2,5 76% 5,9 4,9 2,3 0,0015 66.669 kr. 68.843 kr. 72.466 kr.
LÍF 24-13 24,0 13,0 5,7 89% 2,4 1,4 2,0 57.251 kr. 59.118 kr. 62.229 kr.
LÍF 24-13+Se 24,0 13,0 5,7 89% 2,4 1,3 2,0 0,0015 60.968 kr. 62.957 kr. 66.270 kr.
LÍF 24-5+Se 24,0 5,0 2,2 91% 2,7 1,5 2,8 0,0015 53.909 kr. 55.667 kr. 58.597 kr.
LÍF 20-12-8+Se 20,0 12,0 5,2 90% 8,0 6,7 1,7 1,0 2,5 0,0015 60.452 kr. 62.424 kr. 65.709 kr.
LÍF 20-10-10 20,0 10,0 4,3 91% 10,0 8,3 2,0 1,1 2,0 56.746 kr. 58.596 kr. 61.680 kr.
LÍF 20-10-10+Se 20,0 10,0 4,3 91% 10,0 8,3 2,0 1,1 2,0 0,0015 60.175 kr. 62.138 kr. 65.408 kr.
LÍF 20-6-10+Se 20,0 6,0 2,6 92% 10,0 8,3 2,2 1,2 2,0 0,0015 57.860 kr. 59.746 kr. 62.891 kr.
LÍF 20-5-12+Se 20,0 5,0 2,2 91% 12,0 10,0 2,1 1,2 2,5 0,0015 58.253 kr. 60.152 kr. 63.318 kr.
LÍF 19-15-10 19,0 15,0 6,6 90% 10,0 8,3 1,5 0,8 2,0 0,0015 63.905 kr. 65.989 kr. 69.462 kr.
LÍF 19-11-13+Se 18,5 11,0 4,8 90% 13,0 10,8 1,7 1,0 2,0 0,0015 62.178 kr. 64.206 kr. 67.585 kr.
LÍF 17-15-12 17,0 15,0 6,5 91% 12,0 10,0 1,5 0,8 2,2 0,22 60.560 kr. 62.535 kr. 65.826 kr.
LÍF DAP - 18,0 46,0 20,0 90% 72.865 kr. 75.241 kr. 79.201 kr.
LÍF Kornað kalk 35,0 1,5 32.868 kr. 33.940 kr. 35.726 kr.
Sala og ráðgjöf
Sími 540 1100
www.lifland.is
lifland@lifland.is
Reykjavík
Lyngháls
Borgarnes
Borgarbraut
Akureyri
Óseyri
Blönduós
Efstubraut
Hvolsvöllur
Ormsvöllur
Fjölkorna gæðaáburður frá Grassland Agro á Írlandi
Fáðu LÍF í tún og akra
Birt verð eru pr. tonn án virðisaukaskatts og miðuð við gengi evru 8. janúar 2018. Lífland áskilur sér rétt til verðbreytinga ef til kemur vegna gengisþróunar.
Flutningstilboð á áburði
Hafðu samband við söluráðgjafa okkar í síma 540 1138
eða á aburdur@lifland.is og fáðu nánari upplýsingar
um áburðarúrvalið
Svona hljóða tilboðin
A ) Fyrirframgreiðsla með greiðslu fyrir 15. mars 8% afsláttur
B ) Greiðsla fyrir 15. maí 5% afsláttur
C ) Greiðsludreifing.
Ein vaxtalaus greiðsla með gjal daga 1. október
Sjö mánaðarlegar, vaxtalausar greiðslur 1. hvers mánaðar
frá maí til og með nóvember.
Söluráðgjafar okkar bjóða sérkjör á flutningi víða um land ef tekin
eru 6 tonn (10 stórsekkir) eða meira af áburði.
Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar um tilhögun flutninga.
HLUNNINDI&VEIÐI
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið:
Ósættir milli Íslands og
Færeyja um fiskveiðar
Frá höfninni í Þórshöfn í Færeyjum. Mynd /HKr.
Fyrsta grásleppa
ársins
Sigurður Kristjánsson á Ósk
ÞH veiddi fyrir skömmu fyrstu
grásleppu ársins 2018. Sigurður
var á þorskveiðum í Skjálfanda
og lagði nokkur net í austanverðan
Flóann.
Á vef Landssambands smábáta-
eigenda er haft eftir Sigurði að
grásleppan hafi verið vel haldin og
komin í hana hrogn en hann sagði
líka að hann hefði aldrei séð jafn
lúsuga grásleppu.
Sigurður segist hafa sleppt
grásleppunni með þeim orðum að
hún væri velkomin aftur í netið
hjá sér eftir að vertíðin hefst um
20. mars á þeim slóðum sem hann
leggur. /VH
Meðferð hrogna
Í byrjun hrognavertíðar vill
Matvælastofnun minna á
mikilvægi góðrar meðhöndlunar
fisks og fiskafurða.
Við meðhöndlun hrogna er
mikilvægast að rétt sé staðið að
meðferð og frágangi við slægingu
um borð í skipum eða slægingarstöð.
Halda skal mismunandi
tegundum aðskildum ef selja á hrogn
undir fisktegundaheiti. Ef hrogn eru
seld sem þorskhrogn eiga það að
vera hrogn úr þorski. Ef tegundum
er blandað saman skal merkja þau
sem blönduð hrogn og tilgreina
tegundir. Annað er blekkjandi fyrir
kaupendur. Skv. 11. grein laga nr.
93/1995 um matvæli er óheimilt að
hafa matvæli á boðstólum eða dreifa
þeim þannig að þau blekki kaupanda
að því er varðar uppruna, tegund,
gæðaflokkun, samsetningu, magn,
eðli eða áhrif. /VH