Bændablaðið - 24.05.2018, Side 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. maí 2018
„Ef þetta verkefni verður ekki
sett inn í beinu framhaldi af
Skriðdalsbotni á 4 ára áætlun
fyrir komandi haustþing
jafngildir það stríðsyfirlýsingu,“
segir Andrés Skúlason, oddviti
Djúpavogshrepps, og vísar þar til
uppbyggingar heilsársvegar um
Öxi með fullri þjónustu líkt og
gildir um aðra vegi.
Andrés segir að miðað við
reiknilíkön þau sem notuð eru innan
Vegagerðarinnar hafi verið sýnt fram
á að heilsársvegur um Öxi muni
greiða sig upp á þremur til fjórum
árum. Ástand vegarins er verulega
slæmt nú á vordögum, forarvað og
djúpir drullupyttir gera að verkum
að bílar beinlínis sitja fastir.
Axarvegur liggur á milli
Djúpavoghrepps og Fljótsdalshéraðs
og var fyrsti vegslóðinn um Öxi
ruddur af miklum vanefnum á
sjöunda áratug liðinnar aldar. Þar
fór Hjálmar Guðmundsson, ýtustjóri
frá Berufirði, fremstur í fylkingu,
þannig að í orðsins fyllstu merkingu
ruddi hann brautina. Lengi vel var
vegurinn einungis ruddur slóði og
lækir óbrúaðir, en um síðustu aldamót
var bragarbót gerð á Axarvegi, m.a.
var ekið í hann fínna efni og hann
þannig úr garði gerður að hann var
vel fær öllum fólksbílum. Mesti
veghalli á mjög afmörkuðu svæði
upp úr botni Berufjarðar er um 20%
sem gerir að verkum að erfitt er að
halda uppi þjónustu á veginum yfir
veturinn.
16 þúsund bílar fóru yfir
í ágúst í fyrra
Andrés bendir á að vegna þeirrar
miklu vegstyttingar sem í boði
er á milli Suðausturlands og
Miðausturlands um Axarveg hafi
umferð farið stigvaxandi með
árunum. Hvergi sé heldur önnur eins
stytting í boði á öllum hringveginum,
um 71 kílómetri miðað við
svonefnda Fjarðaleið. Í ágústmánuði
í fyrra fóru um 16 þúsund bílar um
Axarveg, þrátt fyrir að vegurinn
standist engan veginn nútímakröfur
sem til vega eru almennt gerðar.
„Miðað við þá miklu eftirspurn
sem er eftir þessari vegstyttingu af
hálfu samfélaga innan svæðisins og
ekki síður almennra vegfarenda má
furðu sæta að ekki skuli vera búið að
ljúka uppbyggingu vegarins,“ segir
Andrés.
Settur inn í flýtiframkvæmd
fyrir 11 árum
Hann segir að árið 2007 hafi nýr
Axarvegur verið á meðal þeirra 11
samgönguverkefna sem þá sitjandi
ríkisstjórn tók ákvörðun um að
setja á dagskrá undir yfirskriftinni
„Flýtiframkvæmdir“ og var þá
stefnt að því að nýr Axarvegur
yrði tilbúinn árið 2012. Nú er
svo málum komið að öllum þeim
framkvæmdum sem nefndar voru
í Flýtiframkvæmdaverkefnunum
er lokið nema Axarvegi. Þó hefur
Samband sveitarfélaga á Austurlandi
lagt ofuráherslu á Axarveg sem
forgangsframkvæmd í samþykktum
sínum um árabil.
Axarvegur er meginvegtenging
íbúa í Djúpavogshreppi við helsta
þjónustukjarnann á Austurlandi,
Egilsstaði. „Hver einn og einasti
íbúi í hreppnum ekur ekki aðra
leið þegar Axarvegur er fær, því er
einkennilegt að þegar fer að snjóa,
á þessu annars snjólétta svæði er
yfirleitt beitt svokallaðri G-reglu
innan Vegagerðarinnar sem þýðir
að vegurinn fær enga þjónustu yfir
langt tímabil,“ segir Andrés.
Stóraukin umferð og vegurinn
þolir ekki álagið
Auk þess sem umferð fólksbíla um
Axarveg hefur stóraukist undanfarin
ár gildi það sama um umferð stórra
bifreiða eins og hópferðabíla og
vöruflutningabíla með tengivagna,
sem mjög hefur fjölgað á þessum
slóðum. Við það geta að sögn
Andrésar skapast háskalegar
aðstæður, enda er vegurinn fjarri því
að vera í fullri breidd.
„Vor og haust þurfa vegfarendur
að búa við það vegna hins mikla
umferðarþunga að vegurinn þolir
ekki álagið og hleypur allur upp í
forarvað og djúpa drullupytti, þannig
að bílar eiga það beinlínis til að sitja
fastir. Þá skrapa menn botninn úr
bílunum þegar háir hryggir verða
í djúpum hjólförum. Þrátt fyrir að
sama sagan endurtaki sig á hverju
vori með leysingum og djúpum
drullupyttum fara að jafnaði um 200
bílar um veginn á hverjum degi. Það
gera menn vegna vegstyttingarinnar
og segir það eitt og sér hver þörfin
fyrir nýframkvæmd þarna er orðin
brýn,“ segir Andrés.
Vegstyttingin skiptir íbúa á
Djúpavogi, á ferð til Egilsstaða,
verulegu máli, en leiðin yfir Öxi
styttir leiðina í heild um 142
kílómetra í allt. Að sumarlagi fara
að jafnaði á milli fjögur og fimm
hundruð bílar yfir Öxi á hverjum
degi.
Samgöngur eru forsendur
sameiningar
Andrés segir að nú í haust muni
ráðherra samgöngumála leggja fram
nýja samgönguáætlun bæði til lengri
og skemmri tíma. Ljóst sé, miðað
við samþykktir SSA og áherslur
landshlutans í samgöngumálum, að
enginn afsláttur verði gefinn fyrir því
að koma heilsársvegi um Öxi inn í 5
ára áætlunina.
„Það eru uppi vísbendingar um
að á allra næstu árum geti komið
til sameiningar sveitarfélaga í
landshlutanum, m.a. er horft til
Djúpavogshrepps og Fljótsdalshéraðs
í þeim efnum ásamt mögulega fleiri
sveitarfélögum. Íbúar virðast hafa
áhuga á að láta á frekari sameiningar
reyna. Forsendur fyrir slíkum
sameiningum eru augljóslega bættar
samgöngur og þá er bara um eina
leið að ræða til að leysa þann vanda
og ber allt að sama brunni, engin
önnur leið né betri er í boði heldur en
heilsársvegur yfir Öxi,“ segir Andrés.
Kostnaður um 2,8 milljarðar
Hann bendir á að þingmenn
kjördæmisins hafi lýst yfir stuðningi
við framkvæmdina, en samkvæmt
kostnaðargreiningu er talið að hún
muni kosta um 2,8 milljarða króna.
Samstaða sé einnig í breiðari hópi
þingmanna um nauðsyn verkefnisins
og því sé í hæsta máta sérkennilegt
að ekki skuli enn vera búið að ljúka
þessari langbrýnustu nýframkvæmd
í vegagerð á Austurlandi.
Þessa dagana er vegstubbur í
Skriðdalsbotni að fara í útboð, sú
framkvæmd er í raun fyrsti áfangi
að nýjum heilsársvegi yfir Öxi
segir Andrés og telur einsýnt að
samgönguráðherra verði að setja
framhald vegarins yfir Öxi inn
í áætlunina í beinu framhaldi af
þeim framkvæmdum sem senn fara
í gang. /MÞÞ
Ný stjórn var kjörin á aðalfundi
Beint frá býli sem haldinn var á
Brjánslæk á Barðaströnd 14. apríl.
Þann 15. maí skipti stjórn með
sér verkum og er Petrína Þórunn
Jónsdóttir frá Korngrís í Laxárdal,
í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, nýr
formaður.
Aðrir í stjórn með henni eru Sölvi
Arnarsson, ferðaþjónustubóndi í
Efstadal 2 í Bláskógabyggð, og
ritari er Sigrún Helga Indriðadóttir,
bóndi og listakona, Stórhóli í
Lýtingsstaðahreppi hinum forna.
Svipaður félagafjöldi
frá ári til árs
Félagar í Beint frá býli hafa, að
sögn Petrínu, frá stofnun verið í
kringum 80–90 talsins. „Félagatal
hefur haldist nokkuð vel í jafnvægi,
nokkrir fara út aðrir koma inn á
hverju ári. Það má segja að með Beint
frá býli hafi heilmikið unnist síðustu
tíu ár fyrir lítil matvinnslufyrirtæki
bænda sem vinna úr eigin vörum.
Litlar matvælavinnslur hafa verið
skilgreindar og gefnar hafa verið út
nýjar reglugerðir um þær. Einnig
hefur verið gefin út gæðahandbók
sem félagsmenn geta nýtt sér,“ segir
Petrína.
Áfram unnið að góðum málum
„Það sem hefur áunnist eru stór
skref fyrir bændur. Margt fleira á
eftir að gera í þessum málaflokki til
að skilgreina litlar einingar frá þeim
stóru – og mun ný stjórn fara yfir
alla þá hluti og reyna að vinna áfram
það góða starf sem fyrri stjórnir hafa
unnið.
Mikil endurnýjun er í stjórn Beint
frá býli og því er þó nokkuð verk
fram undan fyrir nýja stjórnarmenn
að koma sér inn í þau mál sem eru
þegar á borðinu – sérstaklega vegna
þess að félagið fagnar tíu ára afmæli
í ár.
Að sögn Petrínu snerist fundurinn
15. maí eingöngu um stjórnarskiptin,
en fundur nýrrar stjórnar verður
haldinn að loknum sauðburði og
vorverkum. /smh
Petrína nýr formaður
Beint frá býli
Ísland og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna:
Ráðstefna um ábyrga
matvælaframleiðslu
Samstarfsvettvangur um Mat-
væla landið Ísland efnir til ráð-
stefnu um ábyrga matvæla-
framleiðslu og heimsmarkmið
Sameinuðu þjóðanna, fimmtu-
daginn 31. maí í Hörpu í Reykjavík
kl. 13.00–16.00.
Á ráðstefnunni verður sérstaklega
fjallað um hvernig fyrirtæki í
matvælageiranum geta tileinkað sér
ábyrga framleiðsluhætti, t.d. þegar
kemur að minni sóun, hagkvæmni,
umgengni við auðlindir, aukinni
sjálfbærni, orkunotkun og bættri
umgengni við umhverfið.
Tækifæri fyrir íslenska
matvælaframleiðendur
Serena Brown, stjórnandi hjá KPMG
á Englandi, heldur erindi þar sem hún
fjallar um sjálfbæra þróun og tækifæri
fyrir íslensk matvælafyrirtæki.
Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís,
ræðir um samkeppnisforskot á
grunni ábyrgðar og upplýsingagjafar
og Einar Snorri Magnússon hjá
Coca Cola European Partners
segir frá starfsemi síns fyrirtækis
í málaflokknum. Heiðrún Lind
Marteinsdóttir hjá SFS segir frá
ábyrgum fiskveiðum og í seinni
hluta ráðstefnunnar verða sagðar
reynslusögur úr ýmsum áttum, m.a.
úr landbúnaði, brugggeiranum,
iðnaði, hótelrekstri og landgræðslu.
Heimsmarkmið SÞ boða
framfarir á heimsvísu
Markmið Sameinuðu þjóðanna um
sjálfbæra þróun eða heimsmarkmiðin,
sem samþykkt voru á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna 2015, boða
framfarir á heimsvísu. Þau snúa
að samfélaginu í víðasta skilningi,
s.s. framleiðsluháttum, notkun á
orku, samvinnu, útrýmingu á fátækt
og hungri og eiga að tryggja góða
heilsu og vellíðan svo fátt eitt sé nefnt.
Markmiðin eru sautján að tölu ásamt
169 undirmarkmiðum og ber ríkjum
heims að ná þeim fyrir árið 2030.
Á ráðstefnunni verður krufið til
mergjar hvernig markmiðin snerta
íslenska matvælaframleiðslu, allt
frá stefnumörkun til aðgerða sem
fyrirtæki, stofnanir og stjórnvöld
koma að. Leitast verður við að
varpa ljósi á tækifæri og áskoranir
sem markmiðin hafa á íslenska
matvælaframleiðslu.
Að ráðstefnunni standa
Bændasamtök Íslands, Háskóli
Íslands, Íslandsstofa, Matís,
Matarauður Íslands, Samtök
ferðaþjónustunnar, Samtök fyrirtækja
í sjávarútvegi og Samtök iðnaðarins.
Enginn aðgangseyrir er að
viðburðinum og hann er öllum
opinn. Fundarstjóri er Elín Hirst
fjölmiðlakona. Skráning er á
vefnum si.is. /TB
FRÉTTIR
Petrína Þórunn Jónsdóttir frá Korn-
grís í Laxárdal er nýr formaður Beint
frá býli.
Vor og haust þurfa vegfarendur að búa við það að vegna hins mikla umferðarþunga þolir vegurinn ekki álagið og
hleypur allur upp í forarvað og djúpa drullupytti, þannig að bílar eiga það beinlínis til að sitja fastir. Þá skrapa menn
botninn úr bílunum þegar háir hryggir verða í djúpum hjólförum. Myndir / Andrés Skúlason
Háskalegar aðstæður skapast jafnan á veginum yfir Öxi á vorin:
Þolir ekki umferðarálagið og hleypur
upp í forarvað og djúpa drullupytti
– Stríðsyfirlýsing, segir oddviti, verði verkefnið ekki sett inn í samgönguáætlun
RÁÐSTEFNA MATVÆLALANDSINS ÍSLANDS
M
AT
VÆLALANDIÐ
ÍSLAND
FJÁRSJÓÐUR
FRAMTÍÐAR