Bændablaðið - 24.05.2018, Side 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. maí 2018
Áhrifafólk í pólitík og efnahags-
umræðunni hefur verið gjarnt á að
stökkva á misvísandi hugmyndir
í umhverfismálum sem það telur
vera vænlegar til vinsælda. Þegar
grannt er skoðað eru það svo oftast
lausnir sem keyrðar eru áfram af
grímulausum peningahagsmunum
fremur en skynsemi.
Þar er sannarlega ekki öll vitleysan
eins og oft virðist þar harla lítið fara
fyrir gagnrýnni hugsun. Þannig verða
töfralausnir sem stokkið er á í dag
kannski dæmdar af sama fólki með
öllu óhæfar á morgun.
Í öllu óðagotinu kjósa menn
svo að líta framhjá langstærstu
póstunum, nefnilega mengun frá
iðnaði, orkuverum, flugvélum og
skipum sem eru gjarnan utan sviga.
Þar hefur samt verið bent á að 15
stærstu farþegaskipin menga meira
en allir bílar heimsins samanlagt.
Auk mengunar koltvísýrings er
brennisteinsvetnis- og sótmengunin
frá þessum skipum gríðarleg.
Fyrir hvert framleitt tonn af
áli er brennt yfir 1,5 tonnum af
kolum. Ekki er staðan skárri hjá
kísilmálmverksmiðjum. Reglu-
gerðarsmiðir ESB halda svo áfram
að ganga í skrokk á venjulegu
launafólki með enn meiri kröfum á
venjulega fjölskyldubíla. Ekki vegna
þess að þeir mengi mest heldur af því
að þeir þora greinilega ekki að hrófla
við áhrifamiklum stórfyrirtækjum
og útgerðum mengunarmestu
risaskipanna. Venjulegt launafólk
verður svo látið borga brúsann
– eins og alltaf – með auknum
gjöldum og sköttum, en ekki mestu
mengunarvaldarnir Kannski væri
farsælla að beita örlítilli gagnrýnni
hugsun fremur en að hlaupa eftir öllu
sem rétt er að okkur í þessum efnum.
Einu sinni þóttu dísilbílarnir
umhverfisvænstir
Rekinn var mjög harður áróður fyrir
því fyrir nokkrum árum að fólk
keypti dísilbíla vegna þess að þeir
væru sparneytnari en bensínbílar og
skiluðu því minna af koltvísýringi
út í andrúmsloftið. Slíkur áróður
var líka hart rekinn á Íslandi,
m.a. af fólki sem taldi sig mikla
umhverfissinna og hvatti fólk til að
skipta yfir í dísilbíla. Nú er meira
horft á losun nituroxíðs NOX fremur
en koltvísýrings og því beri helst að
banna dísilbíla. Þegar hafa verið
innleiddir kolefnisskattar á dísilbíla á
Íslandi vegna þessa og þá á að hækka
um 100%. Nýjustu dísilvélarnar eru
samt mun sparneytnari og menga
mun minna en þær vélar sem yfirvöld
sumra borga í Evrópu hafa áður notað
sem rök fyrir að banna dísilvélarnar.
Vetnið og hauggasið
Fyrir nokkrum árum áttu vetnis-
knúnir bílar og skip að leysa allan
mengunarvanda þjóðarinnar. Blásið
var í lúðra og ráðherrar stilltu sér
upp fyrir framan myndavélar. Lítið
heyrist nú af þeim málum. Sama
skrautsýningin var sett í gang þegar
allir áttu að kaupa sér gasknúnar
bifreiðar og keyra á hauggasi sem
búið var til úr sorpi. Afar hægt hefur
hins vegar gengið við að byggja upp
innviði vegna vetnis- og gasknúinna
bifreiða á Íslandi þótt þær séu mik-
ilvirkara innlegg í umhverfismálum
en rafbílavæðingin.
Sniðugu tvinnbílarnir ekki
sniðugir lengur
Tilkoma svonefndra tvinnbíla
(hybrid), með rafmótor og bensínvél
var talin hrein snilld og góð millileið
inn í hreina rafbílavæðingu. Nú
horfa menn fram á að bílar eins
og Toyota Prius og Mitsubishi
Outlander PHEV kunni að vera
bannaðir á götunum í Bretlandi
fyrir árið 2040 ásamt um 50 öðrum
tegundum tvinnbíla. Bæði hreinum
tvinnbílum og tvinn-tengibílum
samkvæmt frétt í Autocar 4. maí
sl. Er það sagður hluti af áætlun
umhverfismálaráðuneytis Breta
(DEFRA) frá því í júlí 2017. Breskir
bílaframleiðendur hafa brugðist
ókvæða við þessum áformum bresku
ríkisstjórnarinnar og segja að þau
gangi hreinlega ekki upp.
Rök breskra yfirvalda eru að
mælingar sýni að tvinnbílar eyði
meiru eldsneyti og mengi meira á
langkeyrslu en sambærilegir bens-
ínknúnir bílar. Ástæðan er einföld
eðlisfræði sem ræðst af hlutfallslega
meiri þyngd tvinnbíla en sambæri-
legra bíla sem eingöngu ganga fyrir
bensíni. Það fer einfaldlega meiri
orka í að aka þyngri bíl sem og að
umbreyta bensíni yfir í raforku. Þá
hefur líka verið bent á að fram-
leiðsla tvinnbíla skilji eftir sig stærra
kolefnisspor en framleiðsla bíla með
hefðbundnum vélbúnaði. Eins skilur
framleiðsla á lithium-rafhlöðum eftir
sig talsverða mengun gróðurhúsa-
lofttegunda og spillir jarðvegi og
grunnvatni á framleiðslustað.
Nú eru það „umhverfisvænu“
rafbílarnir
Nýjasta vinsældaútspilið á hinum
pólitíska vettvangi í umhverfis-
umræðunni er innleiðing rafbíla.
Allir eru hvattir til að skipta yfir í
rafbíla af umhverfisástæðum og helst
í gær. Það má engan tíma missa og
að leggja fram gagnrýnar spurningar
um þau mál jaðrar helst við guðlast.
Það hefur miðað hratt og örugglega
í uppbyggingu rafhleðslustöðva
vítt og breitt um landið þannig að
innviðauppbyggingin ætti ekki að
trufla frekari innleiðingu rafbíla.
Rafbílarnir eru vissulega
umhverfisvænni en hefðbundnir bílar
á notkunarstað vegna drifbúnaðarins.
Á móti kemur að framleiðsla þeirra
skilur eftir sig stærra kolefnisspor en
hefðbundinna bíla.
Á Íslandi er raforka að mestu
framleidd á umhverfisvænan hátt,
en svo er ekki víða um lönd þar sem
rafmagn er gjarnan framleitt með
kolum, gasi, olíu eða kjarnorku.
Því hafa sumir fræðimenn sett
varnagla við fullyrðingum um að
heildaráhrif af notkun rafbíla skili
minni loftmengun á jörðinni.
Mismunun beitt til að flýta
innleiðingu rafbíla
Þetta rafmagnsbílaútspil virðist hafa
heppnast vel því rafknúnir bílar
njóta ört vaxandi vinsælda á Íslandi
þrátt fyrir að þeir séu mun dýrari í
innkaupum en hefðbundnir bílar.
Rafbílarnir virðast líka rökrétt lausn
fyrir Íslendinga í ljósi vistvænnar
raforkuframleiðslu sem hér er.
Rafbílar skila ekki frá sér
koltvísýringi á notkunarstað.
Þeir henta því afskaplega vel í
þéttsetnum borgum þar sem loftgæði
eru af skornum skammti. Vaxandi
kaup á slíkum faratækjum hér á
landi stafa þó ekki síður af þeirri
staðreynd að beitt er niðurfellingu
á gjöldum. Það felur í sér verulega
mismunun í gegnum niðurfellingu
á innflutningsgjöldum og rekstrar-
kostnaði eins og þungaskatti,
miðað við hefðbundin ökutæki
með sprengihreyflum. Þarna getur
munað mörg hundruð þúsundum.
Samt eru rafbílarnir enn mun dýrari
í innkaupum en hefðbundnir bílar
með sprengihreyfli.
Hvað með framlag rafbíla
til slits á vegum?
Hlutfallsleg fjölgun rafbíla skapar
óleystan vanda í ríkisrekstrinum
þegar fram í sækir. Það er
vegna þess að tekjur ríkisins af
aðflutningsgjöldum og þungaskatti
af ökutækjum minnka til að standa
straum af kostnaði vegna slits á
vegum. Engar pólitískar áætlanir
hafa verið viðraðar hvernig ríkið
hyggst mæta slíku tekjutapi.
Sjálfbær geymsla á raforku enn
óleyst vandamál
Þróunin í hönnun rafbíla hefur
vissulega verið hröð, en fjöldi
vandamála er samt enn óleystur
varðandi rafhlöðurnar eins og sjálfbær
geymsla á raforku. Rafbílavæðingin
gæti því allt eins lent í ógöngum
eins og allar hinar umhverfisvænu
ökutækjainnleiðingarnar.
Það sem gleymst hefur í öllu óða-
gotinu er að framleiðsla á lithium-
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Umhverfisvænst þótti fyrir fáum árum að kaupa dísilbíla, svo hauggasbíla, vetnisbíla, tvinnbíla og nú síðast rafbíla:
Stokkið á skyndilausnir í samgöngumálum
sem þykja vænlegar til vinsælda
– Vísindamenn segja að ganga muni hratt á hráefnið í lithium-rafhlöðurnar og aðkallandi að finna nýja geymslutækni fyrir raforku
Hver myndi ekki vilja aka um á svona glæsilegri Tesla-rafmagnsbifreið? Tesla hefur verið í fararbroddi í hönnun
rafbíla á síðustu árum og komið fram með margar snjallar lausnir. Það dugði þó ekki til að halda í trú fjárfesta á
fyrirtækið. Þannig seldi Toyota alla hluti sína í Tesla sumarið 2017. Þar hóf Toyota samstarf í maí 2010 að kaupum
búnaði krefst öruggrar þjónustu. Því mun ekki vera að heilsa á Íslandi varðandi Tesla og trúlega ekki sérlega
Eitt af því sem þykir tær snilld í Tesla-bílunum er drifbúnaðurinn. Engin
olíusullandi vél, bara rafmótorar, en þeir gera samt ekkert ef þeir fá ekki
nægt rafmagn.
Iveco hefur sett á markað fyrsta stóra rafmagnssendibílinn. Flutningsgetan er
þó mun minni en í sams konar bíl með gasvél eða dísilvél. Metangasbíllinn er
Metangas verður til í náttúrunni,
verri lofttegund með tilliti til
Það er því afar áhrifarík leið til að
minnka þá mengun að brenna
metaninu í bílvélum. Metan er hægt
að framleiða á tiltölulega einfaldan
hátt, m.a. í sveitum. Metan er líka
föstu formi eins og hér sést og
gríðarmiklum mæli.