Bændablaðið - 24.05.2018, Síða 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 24. maí 2018
Nýlega afhenti starfsfólk Friðheima
björgunarsveitum Bláskógabyggðar
tvö fullsjálfvirk hjartastuðtæki að
gjöf en þetta eru Björgunarsveit
Biskupstungna og Björgunarsveitin
Ingunn.
Tækin voru keypt úr sjóð sem
kallast þjórfjársjóður (Tipssjóður)
sem ferðamenn hafa gefið í, þrátt
fyrir að ekki sé óskað eftir þjórfé,
hvorki í formi söfnunarbauks né við
uppgjör í lok þjónustu í Friðheimum.
„Það er ómetanlegt fyrir okkur
starfsfólkið, gestina okkar og nær-
samfélagið í heild að eiga svona
flottar björgunarsveitir að sem eru
ávallt í viðbragðsstöðu hvenær
sem er sólarhringsins. Þessar sveit-
ir vinna svo ótrúlega óeigingjarnt
starf og þurfa auðvitað að vera vel
tækjum búnar og er það okkur heiður
að geta lagt lóð á vogarskálarnar til
þess,“ segir Rakel Theodórsdóttir,
starfsmaður Friðheima. /MHH
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Starfsfólk Friðheima gaf
tvö hjartastuðtæki
– Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir
MHG Verslun ehf | Akralind 4 | 201 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is
ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN
HUSQVARNA
FS 400 LV
Sögunardýpt 16,5 sm
HUSQVARNA
K 760
Sögunardýpt 12,5 sm
HUSQVARNA
K 2500
Sögunardýpt 14,5 sm
HUSQVARNA
DM 230
HUSQVARNA
K 3600 MK II
Sögunardýpt 27 sm
HUSQVARNA
Steinsagarblöð
og kjarnaborar
Hringhella 12, 221 Hafnarfjörður · Sími 565 1489 · isror@isror.is · www.isror.is
Hjá Ísrör færðu einangruð
hitaveiturör frá LOGSTOR
– Stálrör
– Stálfittings og samsetningar
– Pexrör
– Pexfittings og samsetningar
– PexElextra sveiganlegri plaströr
– Pexfittings og samsetningar
Og svo allt annað sem þarf til
hitaveitulagna
Nýtt hjá ÍSRÖR
Bjóðum nú kaldavatnslagnir
PE-100 og PE-80 ásamt
tilheyrandi fittings
Bjóðum einnig snjóbræðslurör
PP og PE
Starfsfólk Friðheima, ásamt fulltrúum björgunarsveitanna í Bláskógabyggð, þegar hjartastuðtækin voru afhent
formlega.
Fram undan eru talsverðar
breytingar á starfsemi sameiginlegs
slökkviliðs Þingeyjarsveitar og
Skútustaðahrepps í kjölfar þess
að Vaðlaheiðargöng verða tekin í
notkun síðar á þessu ári.
Að undanförnu hafa sveitarfélögin
átt í viðræðum ásamt Slökkviliði
Akureyrar við Vaðlaheiðargöng
hf. um búnaðarkaup. Fram hefur
verið lagður samningur um
framlag Vaðlaheiðarganga hf. til
búnaðarkaupanna, en samkvæmt
honum skuldbinda Vaðlaheiðargöng
sig til að veita slökkviliðunum
framlag að upphæð 80 milljónir
króna vegna Vaðlaheiðarganga.
Sveitarstjórnir beggja sveitar-
félaganna, Þingeyjarsveitar og
Skútustaðahrepps, hafa staðfest
samninginn. /MÞÞ
Skútustaðahreppur:
Slökkvibúnaður