Bændablaðið - 24.05.2018, Síða 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 24. maí 2018
Eins og flestir vita tók í gildi
ný reglugerð við ýmsum
umferðarbrotum þann 1. maí
síðastliðinn. Þar sem að ég tel
mig vera atvinnubílstjóra ákvað
ég að renna yfir reglugerðina
svona rétt til þess að kynna mér
breytingarnar og í leiðinni reyna
að fækka mínum óþarfa sektum
aðeins.
Við lesturinn fannst mér
reglugerðin vera frekar torlesin, en
á köflum ágætis skemmtilesning.
Í of mörgum tilfellum fannst mér
orðalagið vera illskiljanlegt og
skildi eftir fleiri spurningar en svör
og lítið um frávik samanber að í
ár hafa margir ferðalangar þurft að
vera með nagladekk á ferðum á milli
landshluta þrátt fyrir að nagladekk
megi ekki nota í maí, en sektin fór
úr 5000 í 20.000 á dekk.
Útgefið af samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneytinu, 28.
febrúar 2018, undirskrifað: Sigurður
Ingi Jóhannsson.
Reglugerð no. 288:
Í fyrstu grein er strax endað á
eftirfarandi:
Heimilt er að víkja frá ákvæðum
í viðaukum ef veigamikil rök
mæla með því.
Hér er greinilegt að maður þarf
að vera með röksemdir á hreinu
við umferðarlagabrot ætli maður
að komast upp með brotið.
Svo í 2. gr. er þetta:
Lögreglustjóra ber að veita
sakborningi 25% afslátt af
sektarfjárhæð sem ákveðin
er af lögreglustjóra, ef
sakborningur greiðir sektina
ásamt sakarkostnaði að fullu
innan 30 daga frá dagsetningu
sektar á vettvangi, sektarboðs
eða undirritun sektargerðar
sem sakborningur hefur gengist
skriflega undir.
Lítil samantekt úr nýju
reglugerðinni
10. gr. Skyldur við
umferðaróhapp
1. mgr.:
Eigi numið staðar og veitt hjálp
(ekki slys á fólki) 20.000 sekt.
Hér finnst mér hart gengið
fram þar sem að á mjög mörg-
um stöðum er hættulegra að
stoppa en að halda áfram (þekki
þetta mjög vel þar sem ég þarf
reglulega að kalla til lögreglu
til að hafa blá blikkandi ljós
fyrir umferðinni til að ég geti
unnið mína vinnu í skjóli bláu
ljósanna við vegaaðstoð á biluð-
um bílum). Dæmi eru um mjög
alvarleg slys á þeim sem eru að
veita hjálp þeirra sem eru í nauð
í vegköntum.
18. gr. Akstur við biðstöð
hópbifreiða o.fl.
1. mgr.:
Eigi virtur forgangur hópbif-
reiðar til aksturs frá biðstöð
20.000. Stjórnandi hópbifreiðar
vanrækir aðgát við akstur frá
biðstöð 20.000.
Hér er svolítið mikill tví-
skinnungur og þessar tvær línur
alveg óskiljanlegar fyrir mig.
32. gr. Ljósanotkun
1. mgr.:
Ökuljós eigi tendruð í dagsbirtu
20.000.
2. mgr.: Ökuljós eigi tendruð
þegar birta er ófullnægjandi
20.000.
3.–8. mgr.: Óheimil eða röng
notkun ljósa 20.000.
Miðað við þessar línur eru
greinilega mjög margir í
mikilli sektarhættu á nýrri
bílum sem eru bara með
„ledljósin“ kveikt að framan,
en þau ljós eru ekki ökuljós,
en samkvæmt lögunum eiga
að vera ökuljós að framan og
afturljós kveikt þegar ekið er í
umferð.
36. gr. Almennar reglur um
ökuhraða
1.–3. mgr.: Ökuhraði eigi
miðaður við aðstæður 20.000.
Hér er reglugerð sem er of
sjaldan skoðuð, en ökuhraði er
ótrúlega sjaldan lækkaður þó
að vegur sé illfær eða nánast
ónýtur.
Um sviptingu ökuréttinda:
37. gr. Almennar
hraðatakmarkanir:
Í þessari grein og töflu fannst
mér vanta miklar útskýringar
samanber að þegar ekið er á
tvöföldum hámarkshraða tapa
menn ökuskírteininu um tíma.
Einnig vantar nánari upplýs-
ingar um hámarkshraða ýmissa
ökutækja samanber að sé verið
að draga bíl með dráttartógi
má aldrei fara upp fyrir 30
km hraða (og sé einhver svo
óheppinn að vera mældur á 61
km hraða tapar sá sem dregur
ökuréttindunum).
45. gr. Ölvunarakstur:
Almenna reglan er ökuleyfis-
missir við ölvun, þó er ein grein
svolítið loðin.:
6. mgr.: Stjórnað eða reynt að
stjórna hjóli eða hesti undir
áhrifum áfengis eða annarra
örvandi eða deyfandi efna
20.000. Svolítið undarlegt að
beita sektum hér, en hefði haldið
að stjórnun á reiðhjóli og hesti
í umferð væri ökuleyfissvipting
en ekki bara sekt (allavega er það
svoleiðis erlendis).
Löngu tímabært að hækka sekt
við símanotkun
47. gr. a. Notkun farsíma án
handfrjáls búnaðar við akstur
vélknúins ökutækis 40.000.
Mikil umræða hefur verið um hækk-
un á sekt við að nota farsíma þegar
bíl er stjórnað, en sú sekt hækk-
aði úr 5000 í 40.000. Það eru ekki
margir sem átta sig á að þegar þeir
eru stopp í umferðinni má ekki kíkja
á símann (t.d. á rauðu ljósi). Svo er
það skemmtilegasta setningin sem ég
rakst á við lesturinn á reglugerðinni:
72. gr. Öryggisbelti og annar
öryggis- og verndarbúnaður við
akstur bifhjóla.
5. mgr.: Öryggisbelti ekki notað
á bifhjóli 20.000. Ég er búin að
eiga og keyra mótorhjól í yfir 40
ár og ekki enn séð öryggisbelti
á mótorhjóli.
Sektir við umferðarlagabrotum eru misháar og stundum óskiljanlegar
– Sektir og orðalag í nýrri reglugerð getur verið ágætis skemmtun til lestrar
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
FARNAST ÁRS-GAMALL HNUSA SKAR
FÍFLA-
GANGUR TÆLA SPRIKL
SDRUNGI V E F N H Ö F G I
LAFGANGAR E I F A R AÐSTOÐFRÍA L I Ð
ATÁL G N S Ó L I N MATAR-ÍLÁT
N Æ P A RJÚFASKEL O P N A
GROBB
RÓTA
KLAFI S K A R A MATJURTSTEFNA A S P A S
TVEIR
EINSDÆLD
KÖLDURHÚSTOGVINDA
SUNNAN
LEIKUR
D R O P I SVIF STJÓRNADVALDIST R Á Ð A TALA MATGJÖF KDREITILL
R A K I SKAMMAGRÓÐI Á V Í T A KERALDIÆTÍÐ Á M USAGGI
A U ÞYKJASTHLUTI L Á T A S T HÁLFGRASBEYGÐU S T Ö RTVÍHLJÓÐI
U P P
MÆLI-
EINING
SKJÁLFA B A R DRYKKUR
RÚMT
KAPPSAMT V Í T T PESTNEÐAN
G SÓÐALÝÐ A T A HALLI S K Á I UMFRAMSTUNDA A U K
A F R I T HNAPPURUPPTÖK T A K K I ÁTTLYKT N VUPPSKRIFT
D Ó T T I R LÚÐULAKIÍ RÖÐ K A U Ð I GAT EAFKOM-ANDI
Y
S
L
K
U
R
R
A
OFNEYSLA
T
Ó
T
H
I
Ó
TRAÐK
F
T
SKREF
R
K
A
L
M
O
P
FHLÝJA
FJANDI
83
VARNA TRJÁ-TEGUNDAR HVIÐA
DÝRA-
HLJÓÐ ÓSKORÐAÐ BOGI SKÝLA
SVISS
FLYTJA
SVALL
SPIL
RÓL
KVABB
ORG
FLÓN Í RÖÐ
MANNS-
NAFN
FÁLM
SKJÁLFA
SKÓLI
SPRIKLBARN
BLAÐRA
RAUP
HRAÐAÐ
BEIN
MARGS-
KONAR
ÓLGU
UTANMÁL KROT TVEIR EINS
RAUÐ-
BRÚNI
FESTA
RÆTUR
SKYLDLEIKI
URGUR
SOÐNINGUR
SKVETTA Á
DANS
TALA
EINHVERJIR
LÉLEGT
MÓLAG
TVEIR
EINS
VAFI
AFHENDING
LÖGUNAR
RÁÐGERA
PILLAFARFA
OF LÍTIÐ
STAÐ-
SETTNING
NÁKOMIÐ
HYLLI
SPYRJA
FUGL
SPENDÝR
GANGÞÓFI SKURÐ-BRÚNBIT
SKAÐI
RÁS
VAFI
ÆST
VOG
TEYMA
HUGSA
URGA
KLÓSTORKA
ÁTT
84
Að morgni 19. maí 2018 á Hellisheiðinni hefði verið gott að vera á nagladekkjunum.
NÝ TÆKNI LOFT Í LOFT
Kynningar tilboð frá Daikin og erum við að
safna í sendingu á þessu tilboðsverði.
Daikin Siesta N35 0,8-6,7kW
Allt að 160m2
Fullt verð: 299.900.-
Tilboð: 199.900.-
Daikin S25 1,3-4,7kW
Allt að 80m2
Fullt verð: 199.000.-
Tilboð: 149.000.-