Bændablaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 52

Bændablaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. maí 2018 Sigrún Ólafsdóttir og Skúli Lárus Skúlason búa í Hallkelsstaðahlíð í Hnappadal. Þar reka þau sauðfjár- og hrossaræktarbú, en Sigrún er fædd og uppalin á bænum. Býli: Hallkelsstaðahlíð í Hnappadal. Staðsett í sveit: Gamla Kolbeinsstaðahreppi, nú Borgarbyggð. Ábúendur: Sigrún Ólafsdóttir og Skúli Lárus Skúlason. Guðmundur Margeir Skúlason, sonur þeirra og unnusta hans, Brá Atladóttir. Einnig búa í eldra húsinu móðursystkini Sigrúnar, Sveinbjörn og Anna Júlía. Sigrún er fædd og uppalin í Hallkelsstaðahlíð en móðurfólk hennar hefur búið í Hallkelsstaðahlíð um langa hríð. Sigrún og Skúli flytja að Hallkelsstaðahlíð árið 1992 og hefja búskap fyrst í félagi við móðurfólk hennar en taka síðan fljótlega alveg við búrekstrinum. Guðmundur Margeir og Brá eru nú komin í búreksturinn með þeim. Í Hallkelsstaðahlíð hefur í marga áratugi verið rekið stórt sauðfjárbú en auk þess voru kýr til ársins 2000. Hrossarækt hefur verið stunduð í a.m.k. 40 ár. Við erum með heimasíðuna www.hallkelsstadahlid.is, þar er hægt að fylgjast með. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Sjá hér fyrir ofan. Snotra, íslenskur fjárhundur, Ófeigur og Ponsa, skoskir fjárhundar. Yfirmeindýraeyðir er svo Lubbi ofurköttur, sem nýtur aðstoðar félaga sinna af sama kynstofni. Stærð jarðar? Eitthvað á fjórða þúsund hektarar. Gerð bús? Sauðfjár- og hrossa rækt- arbú. Auk þess er rekin hestamiðstöð sem býður upp á reiðkennslu, tamningar og alla almenna þjónustu við hestamenn. Á þessu ári var tekin í notkun ný reiðhöll sem stór bætir alla aðstöðu við kennslu, tamningar og þjálfun. Sigrún og Skúli hafa rekið tamningastöð frá árinu 1992 og kom Guðmundur Margeir inn í þá starfsemi um leið og hann hafði aldur til. Hann er nú menntaður reiðkennari og tamningamaður frá Háskólanum á Hólum. Brá er búfræðingur frá Landbúnaðarháskólanum á Hvann- eyri og nemur nú hjúkrun. Einnig erum við að fara af stað með ferðaþjónustu, gistingu í sumarhúsum og hestaleigu. Einnig höfum við um árabil selt veiðileyfi í Hlíðarvatn og boðið upp á tjaldstæði. En Hlíðarvatn er eitt af bestu bleikjuvötnum landsins. Fjöldi búfjár og tegundir? Um 700 vetrarfóðraðar kindur og hross innan við 100. Hundar og kettir. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Yfir vetrartímann fer drjúgur tími í hirðingar og gjafir. Tamningar, þjálfun og kennsla tekur svo megin partinn af deginum. Þau verkefni sem til falla í fjáhúsunum eru leyst eftir þörfum og í góðu samstarfi. Yfir sumartímann er enginn dagur eins en flestir dagar bjóða upp á tamningar, heyskap og nánast hvað sem er. Lífið í sveitinni er fjölbreytt. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Hápunktarnir í sauðfjárbúskapnum eru sauðburður og réttir. En í hestamennskunni er það að sjálfsögðu þjálfun og síðast en ekki síst að snúast í kringum ræktunina. Para saman eitthvað spennandi og sjá útkomuna. Leiðinlegu verkefnin eru svo fá að það tekur því ekki að muna eftir þeim. Tækla þau bara með jákvæðni þegar að þeim kemur. Við erum samt hætt að sá kartöflum ... Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Vonandi sem blómlegastan. Við erum bjartsýn, annað er ekki í boði. Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Forustufólkið er að leggja sig fram en betur má ef duga skal. Við bændur þurfum að auka samstöðuna og standa með þeim sem kjörnir eru til forustu. Forustan í öllum búgreinum þarf að vera sýnilegri og í meira sambandi við bændur. Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Ef að íslenskum bændum ber gæfa til að njóta stuðnings íslenskra neytenda eru þeim allir vegir færir. Einnig þarf að leggja höfuðáherslu á að bjóða erlendum gestum hágæða íslenskar landbúnaðarafurðir og gera það með stolti. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Tækifærin eru víða og felast helst í því að kynna vöruna með áherslum á hreinleika og það hversu lítil lyfjanotkun er í íslenskum landbúnaði. Þó svo að Ísland sé „stórasta“ land í heimi vita ekki allir af hreinleika búfjárstofna þar. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, algjört ófremdarástand ef að hún er ekki til, smjör, lýsi og Bónus piparsósan. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Léttreyktur lambahryggur og kindalundir berjast um fyrsta sætið. Sigrúnar sveitópitsa er svo skammt undan og laumast kannski fram úr. Vor-kjúklingur á ítalska vísu – fylltur með grænmeti Nú þegar vorið virðist loksins vera komið til Íslands er ekki úr vegi að draga fram vorlegan kjúklingarétt sunnan frá Ítalíu. Kjúklingur primavera › Einn kjúklingur sem búið er að klippa hrygginn úr (til að fylla og flýta fyrir eldun) › 2 msk. ólífuolía › salt › Ferskur svartur pipar › 1 tsk .ítalskt blaðkrydd › Einn kúrbítur, þunnt skorinn í fallegar sneiðar › 3 miðlungs tómatar, helmingaðir og skornir í þunnar sneiðar › 2 gular paprikur, þunnt sneiddar › ½ rauðlaukur, þunnt sneiddur › 1 kúla ferskur mozzarella-ostur Aðferð Hitið ofninn í 200 gráður – eða grillið. Setjið kjúkling á skurðbretti og klippið með góðum skærum bakhliðina úr (hrygginn). Aðferðin oft kölluð að fletja út. Skerið vasa í bringurnar en gætið þess að skera ekki alveg í gegn. Smyrjið með olíu og kryddið með salti, pipar og ítalska kryddinu. Fyllið hvern vasa til skiptist með kúrbít, tómötum, papriku og rauðlauk. Gott að rífa mozzarella-ost yfir. Bakið þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn, í um 25 mínútur. Ef nota á grill er gott að hvolfa kjúklingnum á stálbakka eða laust kökuform, þegar búið er að brúna skinnmegin – svo grænmeti detti ekki á milli grinda. Framreiðið með grilluðu grænmeti og sýrðum rjóma með graslauk. Döðlu-orkuboltar með ávöxtum Þessir boltabitar eru matmiklir og nógu sætir til að fá sér hollt millimál eða orku fyrir útiveru eða líkamsrækt. › 2⁄3 bolli (auk 1 msk. til skrauts) skeljalausar pistasíuhnetur › 4-6 stórar ferskar döðlur › 1⁄3 bolli tahinimauk (sesam) › 3 msk. hreint hlynsíróp › ¾ tsk. sjávarsalt › ¼ bolli (auk 2 msk. til skrauts) ósykrað kakóduft › 1 msk. ristuð sesamfræ Aðferð bolla pistasíuhnetur í matvinnsluvél þar til þær eru gróft hakkaðar. Setjið döðlur, tahinimauk, hlynsíróp, salt og ¼ bolla kakóduft saman við og vinnið þar til myndast kakómassi. Hnoðið í tíu 30 g kúlur (hver um sig verður á stærð við borðtennisbolta) og raðið á smjörpappír. Kælið þar til þær eru orðnar stífar, eða í um 20 mínútur. Á meðan þær kólna, myljið þá sesamfræ og restina (1 msk.) af pistasíuhnetum með mortéli eða beittum hnífi – þar til þetta er orðinn fínn mulningur. Færið yfir í litla skál. Setjið það sem eftir er af kakóduftinu (2 msk.) í aðra litla skál. Endurrúllið kúlurnar þar til þær eru sléttar og kringlóttar. Dýfið helmingnum af hverjum bolta í pistasíu- og sesamfræblönduna, svo hinn helminginn í kakóduft (má velta upp úr bræddu súkkulaði fyrst). Leggið aftur á bakkann og haldið köldu. Hægt er að gera kúlurnar mánuð fram í tímann og geyma þær í lofttæmdum umbúðum í frysti. Framreiðið með berjum og kíví. Bjarni Gunnar Kristinsson Matreiðslumeistari MATARKRÓKURINN LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR Hallkelsstaðahlíð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.