Bændablaðið - 06.09.2018, Side 1

Bændablaðið - 06.09.2018, Side 1
17. tölublað 2018 ▯ Fimmtudagur 6. september ▯ Blað nr. 522 ▯ 24. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is Vætutíðin í sumar á Suðurlandi hefur sett strik í reikninginn hjá garðyrkjubændum í útirækt. Enn getur brugðið til beggja vona hjá þeim með afkomuna í haust, en góðir dagar í lok ágúst og byrjun september gætu gert gæfumuninn. Hér eru þau Sigrún Pálsdóttir og Þröstur Jónsson í Garðyrkjustöð Sigrúnar við skurð á kínakáli. Rætt er við Sigrúnu á blaðsíðu 27. Mynd / smh Þungt hljóð í ungum bændum vegna stöðunnar í sauðfjárbúskapnum og sumir tala um að bregða búi: Búreksturinn fjármagnaður með tekjum utan búsins Staða sauðfjárbænda er erfið og á það ekki síst við um unga bændur sem tiltölulega stutt er síðan þeir hófu búskap. Margir þeirra vinna utan búsins og halda rekstri búanna gangandi með tekjum sem þeir afla utan búsins. Jóna Björg Hlöðversdóttir, Björgum í Þingeyjarsveit og formaður Samtaka ungra bænda, segir að meðlimir samtakanna séu mjög hugsandi yfir stöðu sauðfjárræktarinnar. Ungir bændur tala um að bregða búi „Hljóðið í mörgum ungum bændum, sem hafa verið að fjárfesta í sauðfjárrækt, er þungt og þeir segja margir að þeir hafi ekki haft tíma til að koma sér fyrir og borga niður lán eftir þeim áætlunum sem þeir gerðu vegna forsendubrests. Ég hef heyrt unga bændur tala um að fækka og jafnvel hætta búskap. Flestir vinna utan búsins og hafa fjárbúskap að aukastarfi og sumir hverjir eru að borga með búrekstrinum með tekjum utan búsins. Fyrir ekki svo löngu var nýliðun í landbúnaði stýrt inn á sauðfjárrækt með nýliðunarstyrkjum þrátt fyrir að því sé hætt í dag. Nýliðar sem ekki höfðu bakland leituðu því í sauðfjárrækt og lengi vel voru sauðfjárbændur hvattir til að framleiða sem allra mest.“ Óneitanlega erfið staða Jóna Björg segir að óneitanlega sé ástandið í sauðfjárrækt í dag ekki eins og best verður á kosið og að hún sé ekki með lausnina í hendi sér. „Um þessar mundir er mikið talað um frystingu á stuðningsgreiðslum og ef frystingin er miðuð við einhver ákveðin tímabil, þá er ég smeyk um að þar geti einhverjir bændur lent á milli og utan greiðslukerfisins.“ Sauðfjárrækt hluti af stóra planinu „Ég er bjartsýn að eðlisfari og trúi því að við viljum öll að það verði áfram sauðfjárrækt í landinu og að hagur sauðfjárbænda sé sem bestur. Að mínu mati á að aðstoða ungt fólk til að halda áfram búskap því það er það sem er að leggja allt undir og vill hafa búskap að lífsstarfi. Við getum ekki litið fram hjá því að ef ungt fólk hættir búskap er hætt við að það verði rof og að það detti hreinlega út kynslóð viljugra bænda. Það hlýtur aftur á móti að vera hluti af stóra planinu að viðhalda sauðfjárrækt í landinu og ég er sannfærð um að það séu bjartari tímar fram undan þrátt fyrir að staðan sé erfið í dag,“ segir Jóna Björg Hlöðversdóttir, formaður Samtaka ungra bænda. Staða sauðfjárbænda er sannar lega ekki góð. Að loknum samningafundi ríkis og bænda, sem haldinn var föstudaginn 31. ágúst, er ljóst að ekki er von á bráðaaðgerðum nú í haust. Bændur verða því að taka ákvarðanir sínar nú í haust með hliðsjón af því, að mati Unnsteins Snorra Snorrasonar, framkvæmdastjóra Landssamtaka sauðfjárbænda. /VH – Sjá nánar um málið á bls. 10 Jóna Björg Hlöðversdóttir, formaður Samtaka ungra bænda. Slæmar uppskeruhorfur í Flóahreppi 26 Engar aðgerðir fyrir sauðfjárbændur í haust 10 22 Efnagreining greinir heysýni

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.