Bændablaðið - 06.09.2018, Side 17
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 2018 17
Mælingar á uppsjávarfiski sýna
minnkandi lífmassa makríls,
síldar og kolmunna. Þéttleiki
makríls er 30% minni en meðaltal
síðustu fimm árin. Mun minna
mældist við Ísland en undanfarin
ár og mestur mælist þéttleikinn í
Noregshafi.
Lokið er samantekt sameiginlegs
uppsjávarleiðangurs Íslendinga,
Grænlendinga, Færeyinga, Norð-
manna og Dana, sem farinn var
á tímabilinu 30. júní til 6. ágúst
2018. Meginmarkmið leiðangursins
var að meta magn uppsjávarfiska
í Norðaustur-Atlantshafi að
sumarlagi.
Vísitala lífmassa
6,2 milljónir tonna
Í frétt á heimasíðu Haf rannsókna -
stofnunar segir að vísitala lífmassa
makríls hafi verið metin 6,2 milljónir
tonn, sem er 40% lækkun frá árinu
2017 og 30% lægri en meðaltal
síðustu 5 ára. Mestur þéttleiki
mældist í Noregshafi en mun minna
mældist á hafsvæðinu við Ísland
en verið hefur undanfarin ár. Líkt
og undanfarin ár var þéttleikinn á
Íslandsmiðum mestur vestan við
landið.
Magn norsk-íslenskrar síldar
lækkaði einnig og var vísitala
lífmassa metin 4,5 milljónir tonna,
sem er 24 % lækkun frá árinu 2017.
Útbreiðsla stofnsins var svipuð og
undanfarin ár fyrir fullorðna hluta
stofnsins þar sem mesti þéttleikinn
var norður af Færeyjum, fyrir austan
og norðan Ísland.
Þriðja árið í röð var lögð aukin
áhersla á að fylgjast með útbreiðslu
kolmunna og að meta stærð
stofnsins. Vísitala stofnstærðar
kolmunna sem er ársgamall og eldri
var 2,0 milljónir tonna sem er 11%
lækkun frá 2017. Kolmunni fannst á
mest öllu rannsóknarsvæðinu nema
í köldum sjó út af Austur-Grænlandi
og milli Íslands og Jan Mayen. Við
Ísland mældist mest af kolmunna
við landgrunnsbrúnina sunnan við
landið.
Kaldari sjór
Yfirborðshiti sjávar sunnan og
vestan við Ísland var um 1–2 °C
lægri en langtímameðaltal síðustu
20 ára en um 1–2 °C hærri norðan
við landið sem og við austurströnd
Grænlands. Í Noregshafi var
yfirborðshiti um og yfir meðaltali
síðustu 20 ára.
Heildar vísitala um magn
dýrasvifs á öllu rannsóknasvæðinu
lækkaði um tæpan fimmtung en
mikill breytileiki var milli svæða.
Þannig mældist um 18% aukning
vísitölunnar á hafsvæðinu við
Ísland en minnkun var í magninu í
Noregshafi og við Grænland.
Niðurstöður leiðangursins
hafa verið kynntar Alþjóða-
hafrannsóknaráðinu og eru
niðurstöðurnar, ásamt öðrum
gögnum, notaðar við mat á
stofnstærð makríls en ICES mun
birta ráðgjöf um aflamark síldar,
makríls og kolmunna þann 28.
september næstkomandi. /VH
Enginn makríll mældist í hvítum reitum og gulur-rauður litakvarðinn táknar
breytileika í magni. Stærð hringja sýnir magn makríls á togstöðvum sem
tonn/km2.
Mælingar á uppsjávarfiski:
Mest af makríl finnst nú við Noreg
Hvammstangi:
Hafró flutt í nýtt húsnæði
Starfsstöð Hafrannsókna-
stofnunar á Hvammstanga
hefur flutt starfsemi sína í
nýtt húsnæði á þriðju hæð að
Höfðabraut 6. Í húsinu eru
fyrir ýmis þjónustufyrirtæki
og opinberir aðilar sem hafa
starfsemi í húsinu.
Á heimasíðu stofnunarinnar
segir að með flutningnum
batni aðstaða starfsfólks hjá
starfsstöðinni frá því sem áður
var og möguleikar á samstarfi og
samskiptum aukist.
Hafrannsóknastofnun hefur
haft aðsetur í Selasetrinu á
Hvammstanga. Þrír starfsmenn eru
á starfsstöðinni á Hvammstanga
og sinna þeir selarannsóknum í
samstarfi við Selasetur Íslands.
Rannsóknaaðstaða verður
áfram að Strandgötu 1 þar sem
Selasetrið hefur sýningaraðstöðu.
/MÞÞ
Starfsstöð Hafrannsóknastofnunar á
sína í nýtt húsnæði.
uppsjávarleiðangri sumarið 2018. Myndir / Hafró