Bændablaðið - 06.09.2018, Side 22

Bændablaðið - 06.09.2018, Side 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 201822 „Við erum ánægð með viðtökurnar og þetta er ótrúlega gaman,“ segir Hólmfríður Bóasdóttir, sem ásamt eiginmanni, Kristjáni Óskari Ásvaldssyni, og foreldrum hans, þeim Ásvaldi Magnússyni og Helgu Dóru Kristjánsdóttur, hafa opnað nýtt hótel í Holti í Önundarfirði, það heitir Holt Inn. Þau gjörbreyttu gamla barnaskólanum í Holti og reka þar nú hótel. Tókst að opna á réttum tíma „Við hófumst handa við þetta verkefni þegar leið að páskum en af fullum krafti í byrjun maí. Við gerðum heilmiklar endurbætur á húsnæðinu og lagfæringar, m.a. voru sett baðherbergi inn á öll 11 herbergin sem til reiðu eru,“ segir Hólmfríður. Hún segir að menn hafi heldur betur látið hendur standa fram úr ermum, því von var á fyrsta hópnum í gistingu 18. júní. „Það voru nú ekki allir jafn bjartsýnir á að þetta tækist og sumir höfðu á orði að við yrðum heppin ef okkur tækist að opna fyrir verslunarmannahelgi. En þetta tókst fyrir tilsettan tíma og allt hefur gengið samkvæmt áætlun fram til þessa,“ segir hún. Hólmfríður segir að reksturinn hafi gengið að óskum, einkum í ljósi þess að um er að ræða nýjan gistimöguleika í fjórðungnum. „Við erum bara að stíga fyrstu skrefin og höfum ekki enn farið á fullt í markaðssetningu, það er í nógu öðru að snúast svona fyrsta kastið,“ segir hún. Viðtökur gesta hafi verið framar vonum, meðaleinkunn á bókunarvefnum booking.com sé góð og það sé ánægjulegt. Gestir á Holt Inn eru í bland Íslendingar og erlendir ferðamenn. Samgöngur setja strik í vetrarferðamennskuna „Fólk hér um slóðir talar um að lausaumferðin sé heldur minni en undanfarin ár, en við erum nýgræðingar í ferðaþjónustunni og höfum ekki viðmið við fyrri ár,“ segir Hólmfríður. Ferðaþjónusta á Vestfjörðum sé þó enn með þeim hætti að hún er mest yfir sumarmánuðina og detti alveg niður þegar vetur gengur í garð. Dynjandisheiði loki við fyrstu snjóa og sé ekki opnuð fyrr en vori á ný, en hótelhaldarar að Holti binda vonir við ný Dýrafjarðargöng sem nú er unnið að og opni eftir eitt til tvö ár. Það muni bæta samgöngur til mikilla muna. „En við hér í Holti erum vel í sveit sett, miðsvæðis í Vestfjarðarhringnum og þannig í alfaraleið.“ Margt forvitnilegt að sjá og skoða Skólahaldi var hætt í Holti árið 1999, en sjálfseignarstofnunin Holt-Friðarsetur keypti skólahúsið og hefur rekið í því gisti- og félagsheimili auk kirkjumiðstöðvar. „Það er ýmislegt áhugavert að sjá og skoða hér í næsta nágrenni,“ segir Hólmfríður og nefnir m.a. mikið og áhugavert fuglalíf, falleg fjara dragi ferðalanga að og þá eru margar og fjölbreyttar gönguleiðir í nágrenninu. Kirkja hefur verið í Holti frá því um 1200 og var talið gott prestakall á árum áður. Margir sögufrægir prestar hafa sett svip sinn á mannlífið um tíðina, en nefna má að Brynjólfur Sveinsson biskup fæddist í Holti og þar er minnismerki um hann. FERÐAÞJÓNUSTA Hólmfríður Bóasdóttir og Kristján Óskar Ásvaldsson ásamt börnum sínum, en Leigja gamla barnaskólann í Holti í Önundarfirði: Góðar viðtökur við nýju hóteli á sögufrægum stað – Miklar endurbætur á húsnæði og gestir eru ánægðir Margrét Þóra Þórsdóttir mth@bondi.is Heilmiklar endurbætur voru gerðar baðherbergi inn á öll 11 herbergin Reksturinn hefur gengið að óskum, en Holt Inn er nýr gistimöguleiki fyrir ferðalanga á Vestfjörðum.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.