Bændablaðið - 06.09.2018, Síða 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 2018 27
Garðyrkjustöð Sigrúnar á Flúðum:
Óhagstæðasta
sumarið í 20 ár
– Sóknarmöguleikar fyrir hvít- og kínakál
Sigrún Pálsdóttir í Garðyrkjustöð
Sigrúnar segir uppskeruhorfur
vera sæmilegar í besta falli, en
þau Þröstur Jónsson, maður
hennar, eru aðallega með hvítkál
í sinni ræktun og hafa verið á
undanförnum árum.
Um 150 tonn af hvítkáli er skorið
upp í meðalári á þessum árstíma hjá
Sigrúnu, en útséð er með að það
náist þetta árið vegna vætutíðar.
„Útplöntun seinkaði um tíu daga og
svo má segja að við höfum misst júlí
eiginlega alveg út. Það seinkar því
allri uppskeru og hún verður mun
minni þar sem allt vex hægar. Góðir
dagar í ágúst hafa bjargað því sem
bjargað verður,“ segir Sigrún.
Útiræktun stendur
tæpast undir sér
Garðyrkjustöð Sigrúnar er ein fárra
garðyrkjustöðva sem eftir eru á
Íslandi sem helgar sig eingöngu
útiræktun á grænmeti. „Útiræktun
hefur dregist saman á síðustu árum,
enda stendur hún tæpast undir sér
á Íslandi nema bændurnir geti gert
nánast allt sjálfir.
Afurðaverð til bænda hefur
staðið nokkurn veginn í stað.
Afkoman hjá okkur
hefur verið svipuð
á undanförnum
árum, enda höfum
við bara þurft að
vinna meira sjálf
þegar aðstæður – til
dæmis á markaði eða
tíðarfar – hafa verið
okkur óhagstæðar,“
segir Sigrún en þau
hafa stundað ræktun
á Flúðum í um 20 ár.
Hvítkál ekki bara
til kjötsúpugerðar
„Við höfum aðeins
verið að auka við
okkur í kínakálinu,
þar sem nokkrir
stórir ræktendur
hafa hætt eða dregið
saman ræktun
á undanförnum
misserum. Neysla á kínakáli hefur
hins vegar aðeins dalað á kostnað
annarra salattegunda, þannig að
það hefur ekki verið mikið svigrúm
til vaxtar í þeirri ræktun. Held það
mætti hins vegar alveg sækja fram
í markaðssetningu á kínakálinu, því
notkun á því í matreiðslu
er frekar einhæf hér á
landi og það er nánast
eingöngu notað til að
blanda saman við salat
af ýmsu tagi. Það sama
má segja með hvítkálið
– það býr yfir miklu
fjölhæfari matreiðslu-
möguleikum en bara
til kjöt súpugerðar. Við
sjáum að erlendis er
hvítkálið notað á mjög
fjölbreyttan hátt í
matreiðslu.
Ekki von á
rauðkálsuppskeru
Síðan erum við með
grænkál, spergilkál,
blómkál og rauðkál –
en þó talsvert minna af
þessum káltegundum
en hinum.
Reyndar er rauðkáls stykkið
okkar enn vel blautt og við gerum
okkur ekki von um mikla uppskeru
af því. Það má líklega segja að þetta
hafi verið versta sumarið sem við
höfum upplifað í okkar ræktun,“
segir Sigrún. /smh
Varahlutir og viðgerðarþjónusta fyrir JCB traktorsgröfur
S: 5272600 - www.velavit.is
Varahlutir - Viðgerðir
Vélavit
Sala Þjónusta
Storm Orka undirbýr nú mat á umhverfisáhrifum vegna
vindorkugarðs í landi Hróðnýjarstaða í Dalabyggð. Mat á
umhverfisáhrifum er unnið samkvæmt lögum nr. 106/2000
og reglugerð nr. 660/2015. Framkvæmdin er matsskyld
samkvæmt tölulið 3.02 í 1. viðauka laga um mat á
umhverfisáhrifum.
Mati á umhverfisáhrifum er ætlað að kanna nánar
umhverfisáhrif framkvæmdarinnar.
Drög að tillögu að matsáætlun hafa nú verið lögð fram
til kynningar og eru gögnin aðgengileg á vef Storm Orku
ehf., www.stormorka.is. Frestur til athugasemda er frá 6.
september til 21. september 2018.
Allir hafa rétt til að kynna sér drögin að tillögu að mats-
áætlun og leggja fram athugasemdir. Að auglýsingatíma
loknum verða drögin, ásamt þeim athugasemdum sem
berast, send Skipulagsstofnun til umfjöllunar.
Hægt er að koma ábendingum eða athugasemdum
til Sigurðar Eybergs hjá Storm Orku eigi síðar en
21. september 2018. Athugasemdir er hægt að senda
með tölvupósti á sigurdurj@stormorka.is eða skriflega á
Storm Orka ehf., Hróðnýjarstöðum, 371 Dalabyggð, merkt:
„Vindorkugarður í landi Hróðnýjarstaða”.
Opinn kynningarfundur verður haldinn í Dalabúð
miðvikudaginn 12. september kl. 20:00.
Drög að tillögu að matsáætlun80 - 130 MW vindorkugarður í landi Hróðnýjarstaða í Dalabyggð.
RHFhjól ehf.
Sími: 555 0595
Tilvalið
fyrir
Rafmagnshjól
Íslendinga
Lamb Inn Öngulsstöðum boðar til:
Málþings 16. - 18. nóvember
fyrir fólk sem starfaði í félagsmálum
bænda og afurðastöðva á árabilinu 1980 til 2010
Helgarprógramm með heimsóknum til bænda, móttöku hjá afurðastöðvum á svæðinu og málstofu um stöðu landbúnaðar á Íslandi í dag og að sjálfsögðu glens og gaman. Samantekt úr málstofunni verður komið á framfæri við Bændasamtökin.
Nánari upplýsingar veitir Jóhannes Geir Sigurgeirsson í
síma 892 8827 og í auglýsingu í næsta Bændablaði.
Sigrún og Þröstur hafa aðeins verið að auka hlut sinn í kínakálsræktuninni, en hvítkálsræktunin er ennþá langmest.
Sigrún Pálsdóttir. Myndir / smh