Bændablaðið - 06.09.2018, Blaðsíða 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 201830
„Það er mikil gróska í ferða-
þjónustunni á Austurlandi,
uppbygging víða í fjórðungnum,
mikil fjölbreytni og margir
spennandi og ólíkir hlutir í gangi,“
segir María Hjálmarsdóttir sem
stýrir verkefninu Áfangastaðurinn
Austurland.
Verkefnið var sett af stað að
frumkvæði Ferðamálasamtaka
Austurlands, en Austurbrú stýrir
því. Markmið þess er að styrkja
aðdráttarafl og samkeppnishæfni
fjórðungsins, gera áætlun til lengri
tíma þar sem áhersla er á sjálfbæran
og arðbæran vöxt ferðaþjónustunnar,
sem og á svæðisskipulag, en um er
að ræða samfélagsátak sem skapar
ramma fyrir þróun áfangastaðarins
Austurlands.
Verkefnið hófst árið 2014 og hefur
mikið áunnist, að sögn Maríu.
„Við notum sérstaka aðferð til
að sjá út styrkleika og veikleika
svæðisins, tækifæri þess og ógnanir
og þannig var leitast við að svara
því hvernig best færi á að þróa
Austurland áfram og gera að öflugri
áfangastað. Við höfum fjallað um
persónuleika svæðisins og hvaða
minningar við viljum skapa hjá okkar
gestum,“ segir hún.
Metfjöldi á tjaldsvæðum
María segir sumarið hafa gengið
ágætlega í ferðaþjónustunni fyrir
austan, það hafi raunar farið fremur
hægt af stað, „en byrjaði svo
með hraði í júlí og haustið virðist
ætla að koma vel út,“ segir hún.
Gistináttafjöldi á tjaldsvæðum á
Austurlandi hefur aldrei verið jafn
mikill.
„Lausatraffík bjargaði líklegast
fyrri part sumars þar sem veðrið var
með eindæmum gott. Fjölmargir
Íslendingar voru á ferðinni þá í bland
við þá erlendu. Gistináttafjöldi á
tjaldsvæðunum í Hallormsstaðaskógi
er sá mesti sem við höfum skráð frá
upphafi,“ bætir hún við en mesti fjöldi
þar á undan var árið 2002. Fjöldinn
nú í ár er á bilinu 3 til 4 þúsund fleiri
nætur en var fyrra metárið fyrir 16
árum. Hlutfall erlendra gesta hefur
aukist töluvert á liðnum árum að sögn
Maríu og því hefur tímabilið lengst
fram á haustið. Enn er þó veturinn
erfiður, „og þar er verk að vinna með
vetrarferðamennsku á svæðinu.“
Mikil fjölbreytni fyrir austan
Austurland er stórt og fjölbreytt
landsvæði og hefur nokkra sérstöðu.
Kaupstaðir niður á fjörðum eru
margir og hver með sínu móti, en
hæglega er hægt að aka á milli
þeirra og upplifa hvað hver þeirra
og einn hefur upp á að bjóða. Þá
má nefna Héraðið með sínum
gróskumiklu skógum og hálendi
Íslands er innan seilingar, svo að
segja í bakgarðinum með sínum
víðlendum og jöklum. „Ferðalangar
geta upplifað ólíkt landslag, ólíka
stemningu allt eftir því hvar þeir eru
staddir í fjórðungnum hverju sinni.
Okkar sérstaða felst að mörgu leyti
í þessari fjölbreytni, því hversu ólík
svæði eru innan landsvæðisins,
gróskumiklir skógar, jöklar,
tilkomumiklir fossar, víðátta,
heillandi sjávarþorp allt eftir því á
hvar innan svæðisins ferðalangar
eru staddir,“ segir María.
Spennandi verkefni í gangi
Það er mikill hugur í Austfirðingum
og víða hefur á liðnum misserum
verið tekið myndarlega til hendinni
og eins eru spennandi verkefni
til eflingar ferðaþjónustunni í
farvatninu. Þar má nefna sem
dæmi uppbyggingu ylstrandar
við Lagarfljót, Vök-Bað sem
er stórt og mikið verkefni og
lyftir ferðaþjónustu fjórðungsins
verulega en stefnt er að því að
ylströndin verði tekin í notkun á
næsta ári, 2019. Framkvæmdir hafa
einnig staðið yfir á Óbyggðasetrinu
sem hlaut nýsköpunarverðlaun
Samtaka ferðaþjónustunnar árið
2016, en þar er verið að útvíkka
starfsemina og bæta í, m.a. með
heitri laug og stjörnuskoðunarhúsi,
fjallahjól eru nú einnig í boði auk
vinsælla hestaferða líkt og áður. Þá
er víða verið að taka til hendinni á
Egilsstöðum og nágrenni og við
hafa bæst matsölustaðir af ýmsu
tagi og gistimöguleikar eru nú fleiri
en nokkru sinni fyrr.
Tónlist, menning og matur
Á Austurlandi er sífellt verið
að bæta í líkt og gildir um aðra
landsfjórðunga, meira er til að
mynda um tónleikahald af ýmsu tagi
og matarmenningu hefur verið gert
hátt undir höfði. María nefnir m.a.
í því sambandi tónlistarveisluna
Havarí í Berufirði sem efnt var
til annað árið í röð nú í sumar.
Fjölmargir erlendir sem innlendir
gestir sóttu þá tónleika. „Hér um
slóðir hefur auk tónleika verið
staðið að alls konar viðburðum,
kvikmyndasýningum, fundum og
mannfögnuðum,“ segir hún en
þekktustu og fjölsóttustu viðburðir
eru Eistnaflug í Neskaupstað,
Bræðslan á Borgarfirði eystra og
Lunga á Seyðisfirði.
Á liðnu sumri var efnt til
viðburðar í Neskaupstað sem bar
heitið „Mat attack“ en þangað
kom kokkur frá Bandaríkjunum,
búsettur á Svalbarða, og tengdi
saman matvælaframleiðendur á
Austurlandi og útbjó ýmsa rétti
sem heimamönnum bauðst að
smakka á.
„Ég get líka nefnt nýja viðbót,
Diner á Egilsstöðum, þar sem
er að finna alvöru glymskratta,
mjólkurhristing og úrval bæði
bandarískra og íslenskra rétta að
velja úr á matseðli. Ís er þar líka
að finna í miklu úrvali. Dinerinn
er orðin ein helsta viðkomustöð
bandarískra ferðamanna hér á
landi,“ segir María.
Skilar sér að vanda til verka
„Hvarvetna þar sem verið er að
byggja upp eða bæta við hafa
menn upplifun gestanna sem
útgangspunkt. Það má segja að það
sé þemað hjá okkur fyrir austan, auk
þess að vanda vel til verka og leggja
áherslu á gæðin,“ segir María, en
hún nefnir í því sambandi nokkrar
nýlegar byggingar á viðkvæmum
svæðum þar sem mikið var í lagt
til að gera byggingar sem best úr
garði og að þær falli sem best að
umhverfi sínu. Þar er sem dæmi
nýlegt aðstöðuhús við Stórurð
á Vatnsskarði og sama áhersla á
vönduð vinnubrögð er við gerð
húss við Hafnarhólma á Borgarfirði
eystra sem lokið verður við á næsta
ári. Efnt var til samkeppni um húsin
og segir María það heilladrjúgt.
„Það hefur mikill metnaður verið
í gangi að bæta innviði og gera allt
á sem vandaðast hátt, það skilar sér
til lengri tíma litið og upplifun gesta
verður sterkari,“ segir hún. /MÞÞ
Auðkúlurétt við Svínavatn, A.-Hún. laugardaginn 22. sept. kl. 16.00
Árhólarétt í Unadal, Skag. föstudaginn 28. sept.
Deildardalsrétt í Deildardal, Skag. föstudaginn 28. sept.
Hlíðarrétt við Bólstaðarhlíð, A.-Hún. sunnudaginn 16. sept. kl. 16.00
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag. laugardaginn 29. sept.
Melgerðismelarétt í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 6. okt. kl. 13.00
Miðfjarðarrétt í Miðfirði, V. - Hún. laugardaginn 8. sept. kl. 9.00
Selnesrétt á Skaga, Skag. lau. 8. sept. og lau. 15. sept.
Skarðarétt í Gönguskörðum, Skag. laugardaginn 15. sept.
Skrapatungurétt í A.-Hún. sunnudaginn 16. sept. kl. 11.00
Staðarrétt í Skagafirði. laugardaginn 15. sept. kl. 16.00
Tungurétt í Svarfaðardal, Eyf. laugardaginn 6. okt. kl. 12.00
Unadalsrétt í Unadal við Hofsós, Skag. föstudaginn 28. sept.
Undirfellsrétt í Vatnsdal, A.-Hún. laugardaginn 22. sept. kl. 9.00
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. laugardaginn 6. okt. kl. 11.00
Þverárrétt í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 6. okt. kl. 10.00
Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún. laugardaginn 29. sept. kl. 12.30
Stóðréttir haustið 2018
Mikill áhugi er fyrir stóðréttum
ekki síður en fjárréttum. Hér
er listi yfir þær stóðréttir sem
upplýsingar lágu fyrir um þegar
blaðið fór í prentun. Listi yfir
fjárréttir er á blaðsíðum 28 og 29
ásamt korti sem sýnir staðsetningu
réttanna.
Fyrirvari er gerður á að einhverjar
villur kunni að hafa slæðst inn og
verður þá reynt að bæta úr því í
næsta blaði eftir því sem kostur
er. Sömuleiðis eru ábendingar vel
þegnar ef einhverjar réttir hafa orðið
útundan í upptalningu blaðsins. /TB
FERÐAÞJÓNUSTA
Margrét Þóra Þórsdóttir
mth@bondi.is
Aldrei fleiri gistinætur á tjaldsvæðum Austurlands
– Mikil gróska og uppbygging í ferðaþjónustu fyrir austan
Mynd / HKr.
Mynd / Rhombie Sandova