Bændablaðið - 06.09.2018, Page 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 201832
LÍF&STARF Á LANDSBYGGÐINNI
Dýragarðurinn Slakki í Laugarási í Biskupstungum 25 ára:
Yfir 25 þúsund manns hafa heimsótt dýra-
og skemmtigarðinn á afmælissumrinu
Helgi Sveinbjörnsson og
fjölskylda ákváðu að stofna
dýra- og skemmtigarð árið 1993
í garðyrkjustöðinni Slakka sem
þau stofnuðu 1985 en var síðar
úrelt. Þar höfðu þau ræktað
gúrkur og annað grænmeti, en
þeirri starfsemi var hætt 2002.
Nú eru liðin 25 ár frá stofnun
dýra- og skemmtigarðsins og
2016 tóku börnin og tengdabarn
við rekstrinum og hafa verið
öflug í uppbyggingunni.
Helgi segir að í garðyrkjustöðinni
hafi þau verið með tvær endur til
gamans sem hann byggði lítið hús
fyrir. Þá tóku þau að sér refayrðling
sem nefnd var Rósa. Fólk sem leið
átti í gróðrarstöðina til að kaupa
grænmeti hafði gaman af að skoða
dýrin og það vatt smám saman
upp á sig. Í framhaldi af þessu
var Slakki stofnaður sem dýra- og
skemmtigarður 1993. Var hann
strax mikið sóttur af fjölskyldum
sem leið áttu um Suðurland. Enginn
aðgangseyrir var rukkaður fyrst í
stað, en fólki gafst þó kostur á að
setja aura í fóðursjóð fyrir dýrin.
Ýmsar hugmyndir um að breyta
gróðrarstöðinni
„Við hjónin höfðum rætt að ef við
kæmumst út úr garðyrkjunni að
gera eitthvað annað á staðnum.
Setja upp heita potta í gróðurhúsinu
eða annað í þeim dúr sem aldrei
varð reyndar af, en dýrin voru alltaf
til staðar.
Síðan missti ég konuna
(Hólmfríði Björgu Ólafsdóttur)
árið 2002 og þá varð vendipunktur
í mínu lífi. Þá ákvað ég að fara að
breyta gróðurhúsunum. Það sama
ár var ákveðið að veita fjármagni
til úreldingar á gróðurhúsum til að
auðvelda fólki að hætta í greininni.
Ég sótti um strax sama haust og
fékk úreldingarstyrk gegn því
skilyrði að ég ræktaði ekkert í
húsunum næstu 10 ár. Ég mátti hins
vegar nýta þau í eitthvað annað.
Þessir peningar gerðu svo sem ekki
mikið en ég fór þó í að setja upp
golfvöll í einu húsinu.“
Fjölbreytt úrval framandi dýra
Frá 2002 hefur starfsemin hægt og
rólega undið upp á sig. Fyrir utan
fjölmörg forvitnileg og framandi
dýr, þá er þar boðið upp á veitingar
og mínígolf undir þaki sem nýtur
mikilla vinsælda, púttvöll og pool-
eða billjardstofu þar sem hægt er að
horfa á íþróttaviðburði í sjónvarpinu.
Það skiptir því ekki máli hvort það
er sól á lofti eða nokkrir dropar að
falla af himnum ofan, Slakki klikkar
ekki.
Börnin tekin við
Helgi segir að reksturinn hafi gengið
upp og ofan en þessu frumkvöðlastarfi
hafi eðlilega fylgt mikil vinna.
„Ég er nú kominn út úr þessu og
börnin hafa tekið við. Þar eru nú skráðir
eigendur Gunnur Ösp Jónsdóttir, elsta
barnið sem er framkvæmdastjóri. Svo
eru Egill Óli Helgason, yngri sonur
minn, og Rannveig Góa Helgadóttir,
yngri dóttir mín.“
25 þúsund gestir á 25 ára
afmælissumrinu
Gunnur Ösp segir að í sumar hafi
komið yfir 25 þúsund manns í
Slakka og ekki annað að heyra en
gestirnir séu ánægðir með það sem
þarna er að finna. Margir komi svo
þangað aftur og aftur og ár eftir
ár. Hún segir að í júnímánuði hafi
verið frekar rólegt, enda hafi margir
á suðvesturhorni landsins frestað því
að fara í einhver frí vegna stöðugra
rigninga.
„Í júlí gat fólk ekki geymt það
lengur að fara í frí og þá var stefnan
oft tekin á Slakka. Enda hægt að gera
sér ýmislegt þar til skemmtunar
innanhúss með börnunum þótt úti
væri rigning,“ segir Gunnur.
Erlendum gestum hefur líka
fjölgað mikið og erlendir starfsmenn
sem starfa í garðyrkjustöðvum á
svæðinu í kring hittast líka oft í
Slakka til að gera sér glaðan dag.
Miklar endurbætur
Slakki hefur tekið verulegum
breytingum á síðustu tveim
Stofnandi ásamt núverandi eigendum Slakka, barnabörnum og tengdasyni. Talið frá vinstri: Matthías Líndal
Jónsson, Baltasar Breki Matthíasson, Sigurrós Birta Matthíasdóttir, Gunnur Ösp Jónsdóttir, Egill Óli Helgason,
Helgi Sveinbjörnsson og Rannveig Góa Helgadóttir.
Slakki, sem hér sést í forgrunni, er vel í sveit settur á einu veðurblíðasta svæði landsins í Laugarási umlukinn
trjágróðri á allar hliðar. Skammt frá liðast Hvítá í átt til sjávar. Myndir / HKr.
Í gömlu gróðurhúsunum sem nú þjóna hlutverki dýragarðs er margt að sjá. Páfagaukurinn Fáfnir.
Í billjardstofunni í Slakka geta menn líka skemmt sér við að horfa á fótbolta.
Seifur veit sannarlega hvað hann
þarf að gera til að ná athygli gesta.
Kálfarnir í Slakka búa við gott atlæti.
vatnaskjaldbökur.
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is