Bændablaðið - 06.09.2018, Síða 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 201842
Í Norður-Ameríku er á hverju ári
gefið út rit sem heitir Old Farmer's
Almanac, og inniheldur veðurspá
fyrir komandi vetur. Í almanakinu
fyrir 2019 er spáð mun mildari
vetri en var 2017–2018.
Í ritinu sem hefur verið gefið
út síðan 1792 er því spáð að á
Atlantshafsströnd Bandaríkjanna
megi búast við mildum vetri með
hitastigi yfir meðaltali. Kaldasta
tímabilið verði frá miðjum desember
og muni vara fram í miðjan febrúar.
Er þessi spá sögð glettilega lík spá
haf- og loftslagsstofnunarinnar
National Oceanic Atmospherics
Administration (NOAA).
Á Flórída og upp með ströndinni
upp undir New York er búist við
hlýjum og þurrum vetri. Þar norður af
og upp undir vötnin miklu og vestur
í Iowa, Arkansas og Louisiana verðu
hlýtt og blautt, en mildur snjóavetur
í Kansas og hluta af Missouri. Í
miðvesturríkjunum frá Texas og
upp í Norður- Dakota við landamæri
Kanada verði sólríkt og þurrt.
Í heild spáir Old Farmer's
Almanac því að sjókoma verði minni
en í meðalári á flestum svæðum, en
meiri vestur undir sunnanverðum
Klettafjöllum. Fremur kalt og
snjóasamt verði t.d. í Nýju-Mexíkó,
Arizona og í fjalllendi austurhluta
Kaliforníu.
Líka spáð frekar mildum
vetri víðast í Kanada
Í Kanada er því spáð að hitastigið í
vetur verði að jafnaði yfir meðallagi.
Kaldast verði í síðari hluta desember
eins og vænta mátti og fram í miðjan
febrúar.
Úrkoma mun verða undir
meðallagi í norðausturhéruðunum,
en yfir meðallagi í suðvestur-
héruðunum.
Snjókoma mun verða yfir
meðallagi í suðausturhéruðunum,
en undir meðallagi í norðvestur-
héruðunum með mestu snjókomunni
í seinni hluta janúar, mið-febrúar og
í fyrrihluta mars.
Apríl og maí 2019 munu
verða heldur kaldari og þurrari en
venjulega. Þá mun næsta sumar
verða heldur kaldara og þurrara en
í meðalári. Næsta haust mun hins
vegar verða blautara og kaldara en
meðaltalið segir til um. /HKr.
Það þekkja allir hugtökin fastur
og breytilegur kostnaður en dulinn
kostnaður er líklega minna þekkt
hugtak. Ef til vill mætti kalla
þetta falinn kostnað eða leyndan
kostnað en um er að ræða þann
kostnað á kúabúum sem fellur
til samhliða ákvörðunum og/eða
gerðum kúabænda varðandi val
á ákveðnum rekstrarleiðum við
framleiðslu mjólkur.
Þessir duldu kostnaðarliðir
eru ótal margir og eiga þeir það
sameiginlegt að á bak við þá eru
hvorki greiddir reikningar né bein
útgjöld, heldur hafa þessir duldu
kostnaðarliðir áhrif á kostnaðar-
og tekjuþætti við rekstur kúabúa. Í
þessari síðari grein af tveimur verður
farið yfir nokkra af þessum þáttum
en í þeirri fyrri var rætt um uppeldi,
fyrsta burðaraldur, frjósemi, endingu
og heilbrigðisástand.
Fóðrunin
Fóðurkostnaður á kúabúum er
langstærsti einstaki kostnaðar-
liðurinn við reksturinn og með
hagkvæmni og natni við fóðuröflun
og fóðrun má hafa veruleg áhrif á
reksturinn. Þar sem hver kýr er dýr
í framleiðslu, þ.e. að ala kvíguna
upp þar til hún verður að kú, er
mikilvægt að nýta hana sérstaklega
vel og hér skipta ýmsir þættir máli
en þó skiptir fóðrunin líklega mestu
máli bæði fyrir og eftir burð. Hér
er mikilvægast að líta á upphaf
geldstöðu, eða síðustu tvo mánuðina
fyrir fyrsta burð á kvígum, sem
upphaf mjaltaskeiðsins.
Margir kúabændur gera mistök
á þessu mikilvægasta tímabili
mjaltaskeiðsins en geldstöðufóðrunin
getur hæglega stýrt því hve mikið
gripurinn mjólkar eftir burð. Þannig
þarf holdafarið að vera kórrétt um
burð, svo kýrin geti náð hámarks
dagsframleiðslu en beint samhengi
er á milli hámarks dagsframleiðslu
og heildarafurða á mjaltaskeiðinu.
Því lægri sem hæsta dagsnyt er, því
minna mun kýrin framleiða. Fyrir
burð ætti því alltaf að hlúa sér-
staklega að fóðruninni og fylgjast
með holdafarinu. Séu kýr eða kvígur
að stefna í of mikla fitu þarf að skilja
þær frá og setja í aðhaldsfóðrun og
að sama skapi ef þær bæta ekki nægu
á sig á geldstöðunni þarf að bæta
þeim það upp.
Þó svo að víða hér á landi séu
kýr ekki fóðraðar með heilfóðri
þá er það klárlega sú aðferð sem
mestu skilar þegar horft er til
nýtingar á fóðri og samhengi við
mjólkurframleiðsluna. Að koma sér
upp búnaði til slíkrar fóðrunar getur
hinsvegar verið lengi að borga sig
upp á minni búum og því geta kostir
heilfóðrunar hreinlega verið minni
en sá stofnkostnaður sem þarf til að
byrja á heilfóðurgjöf. Þetta þarf hver
og einn að vega og meta.
Gróffóðurkostnaðurinn sjálfur
er oft á tíðum afar breytilegur á
milli búa og hér er ráðlegast að
bera kostnaðarliði búsins saman
við sambærilegt bú, þ.e. bú með
svipaða ársinnlögn mjólkur í
afurða-stöð og með svipaða áherslu
á kjötframleiðslu. Að bera saman
fóðrunarkostnað á milli búa er
enginn hægðarleikur, enda geta
forsendur verið afar ólíkar og oft
byggir val bænda á fóðursala á
fleiru en einingaverði fóðursins.
Í Kína, þar sem fóðurkostnaður
er oft í kringum 65-70% af
afurðastöðvaverði, eru greiningar
á fóðrunarkostnaði alltaf byggðar á
því að bera saman sambæri-leg bú og
út frá þeim samanburði er svo farið
yfir það hvort gera þurfi breytingar
á innkaupahegðun á viðkomandi
kúabúi eða ekki. Rauði þráðurinn
varðandi fóðurkostnað á kúabúum
þarf þó alltaf að vera sá sami: er hægt
að spara einhversstaðar en halda í
sömu afurðir?
Umhverfið
Umhverfi og góð hönnun kúabúa
getur haft töluverð áhrif á
hagkvæmni rekstursins og snýr þessi
þáttur m.a. að kúnum sjálfum. Til
þess að nýta kýrnar sem best þarf
að huga að gönguleiðum þeirra,
svo þær eyði ekki óþarfa tíma í
rölt enda er mikilvægast að þær
nýti tímann í annað hvort að éta,
að vera mjólkaðar eða í að hvílast.
Gönguleiðir geta einnig haft mikil
áhrif á velferð kúa og endingu og
eru til ótal dæmi um slæm áhrif
gólfs á velferð þeirra svo sem vegna
helti eða slysa vegna hálla gólfa. Þá
skiptir innréttingahönnun verulegu
máli og t.d. hönnun bæði legubása
og innréttinga í legubásum hafa
bein áhrif á hvíld kúa og velferð
þeirra s.s. vegna hættu á bakteríu-
sýkinga af völdum lélegs undirlags
eða legusærinda. Þá hefur slæm
loftræsting oft verið beintengd við
smithættu og svona mætti lengi telja.
Þá skiptir hönnun vinnuaðstöðunnar
fyrir þá sem í fjósinu starfa auðvitað
verulegu máli og tengist beint
afköstum við vinnu eins og vikið
verður að síðar.
En hönnun fjósa skiptir ekki
eingöngu máli fyrir gripina sem
þar búa og fyrir þá sem þar starfa
heldur getur góður frágangur einnig
haft rekstrarleg áhrif á afurðastöðina
sjálfa! Liggur það í réttri hönnun
fyrir aðkomu flutningabíla s.s.
eins og sláturbíla eða mjólkurbíla.
Þetta eru afar dýr farartæki og
kostnaðarsöm og því styttri tíma sem
tekur að þjónusta viðkomandi fjós,
því ódýrari verður flutningurinn.
Á FAGLEGUM NÓTUMUTAN ÚR HEIMI
Snorri Sigurðsson
snsig@arlafoods.com
Veðurspá vetrarins í Old Farmer's Almanac 2019.
Bandaríkin og Kanada:
Bændaalmanakið spáir
frekar mildum vetri
Norðmenn drekka orðið
hættulega lítið af mjólk
Mjólkurneysla í Noregi hefur
farið mikið niður á við undan-
farin ár án þess að fólk noti
önnur matvæli sem hafa nógu
hátt joðinnihald eins og mjólk
og mjólkurvörur. Þessu hafa
stjórnvöld áhyggjur af þar í landi
því of lítið af joði getur meðal
annars skaðað heila í fóstrum.
Ný rannsókn sem OsloMet
framkvæmdi í Noregi sýndi að
margar ungar konur þar í landi
vita ekki hvað joð er. Rúmlega
400 ungar konur tóku þátt í
rannsókn og engin þeirra hafði
eignast barn. Konurnar fengu
spurningar eins og hvað joð sé,
hvaða matvörur innihaldi joð og
af hverju joð er mikilvægt fyrir
fólk. Um 40 prósent kvennanna
vissu í miklu lágmarki svör við
spurningunum og það vekur
áhyggjur hjá framkvæmdaraðilum
könnunarinnar.
Einn þriðji hluti kvennanna höfðu
mjög lág joðgildi í líkamanum og
komu grænmetisætur verst út.
Einnig voru konur í hópnum sem
neyttu lítillar sem engrar mjólkur
sem komu illa út. Mikilvægasta
uppspretta joðs hjá Norðmönnum
er í gegnum neyslu á mjólk vegna
þess að á síðustu 70 árum hefur joði
verið bætt út í fóður kúa. Neysla á
mjólk hefur farið töluvert niður á
við síðastliðin 15 ár í Noregi. Þær
mjólkurvörur sem hafa hæst gildi
joðs eru brúnostur, mjólk, jógúrt og
súrmjólk. Mjólk og mjólkurvörur
leiða til um 60–80 prósent af
upptöku joðs hjá fólki í Noregi en
fiskur um 20 prósent. /ehg
Dulinn kostnaður hefur mikil
áhrif á rekstur kúabúa – Síðari hluti
Mynd / HKr.