Bændablaðið - 06.09.2018, Side 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 201846
Fyrir nokkru frumsýndi Bílabúð
Benna Opel Grandland sem fæst
í þrem mismunandi útfærslum.
Ég tók prufuakstur á Opel
Grandland X Innovation sem er
dýrasti bíllinn af Grandland. Það
sem í upphafi átti að vera 50 til 100
km prufurúntur endaði í tæpum
300 km. Það var einfaldlega svo
gott að keyra bílinn að ég endaði
í Þjórsárdal og til baka.
Í fyrstu byrjaði ég á innan-
bæjarakstri í tæpa 30 km og
samkvæmt aksturstölvunni var
ég að eyða um 10 l af bensíni
í innanbæjarakstrinum. Næst
var það langkeyrsla sem var í
Þjórsárdal og til baka en sú leið er
um 250 km. Eftir þann akstur sagði
aksturstölvan mér að mín eyðsla
hafi verið 7,2 l á hundraðið. Ekki
slæmt þar sem ég er aldrei í neinum
sparakstri við mínar prufukeyrslur.
Uppgefin eyðsla á þessum bíl er
5,2 lítrar á hundraðið af bensíni í
blönduðum akstri.
Þótt vélin sé ekki nema 1,2 l
er hún spræk
Þótt vélin sé ekki nema 1,2 l
turbo bensínvél skilar hún 130
hestöflum. Miðað við stærð og
þyngd bílsins eru þessir 130 hestar
að skila bílnum vel áfram, svo vel
að margsinnis hrökk ég upp við að
ég sá hraðamælisnálina vera komna
vel hægra megin við fyrstu þriggja
stafa töluna og varð að slá af svo
að ökuskírteinið væri ekki í hættu.
Bíllinn sem ég prófaði var með sex
gíra sjálfskiptingu, en hinir tveir
ódýrari bílarnir eru með fimm gíra
skiptingu.
Hljóðlát vél og góður á möl
Að keyra bílinn er mjög gott,
sætin hreint út sagt frábær, nánast
hljóðlaus bensínvél og fótarými
gott. Mikið er lagt upp úr öryggi
og þægindum, s.s. hiti í stýri,
akreinalesari, blindhornsvari,
fjarlægðarskynjari, bakkmyndavél
og margt fleira.
Þessi bíll býður upp á þann
möguleika að þegar sett er í bakkgír
fara hliðarspeglarnir sjálfkrafa
niður og sýna ökumanni jörðina
rétt fyrir aftan bílinn hvort sínum
megin (mér leiðist þessi búnaður og
slekk strax á þessu ef það er í boði
og bakka eftir speglunum eins og ég
hef vanist hingað til). Hins vegar er
þetta mjög gott fyrir þá sem bakka
með aðstoð bakkmyndavélarinnar.
Það kom mér á óvart hversu
hljóðlátur bíllinn var á malarvegi,
en mjög lítið heyrðist undir bílnum
í steinum sem ég samt fann að voru
að berja undir bílinn.
Fann aðeins eitt að bílnum
sem mér mislíkar og annað
sem mætti bæta
Grandland er nánast gallalaus bíll á
góðu verði, en frumsýningartilboðið
á bílunum þrem er frá 3.790.000 upp
í 4.190.000. Það er eitthvað með að
sitja undir stýri á Opel sem gerir það
að manni líður vel, ökumannssætið
er eitthvað svo undra þægilegt
(næstum of þægilegt).
Oft er ég spurður um það sem
mér mislíkar við bíla, fremur en
það góða í bílunum, en þessi er
nánast gallalaus. Það eina sem
mér mislíkaði er felgustærðin á
bílnum, en ég vil hafa felgur undir
bílum eins litlar og mögulegt er til
að fá meira gúmmí í fjöðrunina,
sérstaklega á malarvegi. Þess
vegna hefði ég viljað vera á 17 eða
16 tommu felgum undir þessum bíl
þar sem bíllinn er hár undir lægsta
punkt og hentar vel til aksturs á
malarslóðum fyrir utan að vera á
þessum lágu dekkjum (samkvæmt
sölubæklingi er hægt að fá bílinn
á bæði 16 og 17 tommu felgum).
Hinn gallinn er að varadekkið er
það sem ég kalla „aumingi“ (mjótt
og væskilslegt).
Lokaorð, góður bíll á góðu verði
Grandland lítur út eins og jepplingur,
hátt undir lægsta punkt og hentar
vel til malarvegaaksturs, stöðugur
og hljóðlátur, en það vantar í hann
fjórhjóladrifið.
Hljómtækin eru mjög góð
og nánast ekkert sem truflar
góðan hljómburð nema veghljóð
frá hjólbörðunum. Á skjánum
(bakkmyndavélin) fyrir miðju
mælaborðinu er hægt að fá upp
ýmsar stillingar og tengja símann
við það (hins vegar er ég svo heftur
í svona tölvu- og símatækni að mér
dugðu ekki tveir dagar til að átta
mig á allri þessari tækni).
Sé einhver í hugleiðingum
að fá sér svona bíl þá er
frumsýningartilboðið mjög gott, en
ekki hef ég upplýsingar um hvenær
því lýkur. Allar nánari upplýsingar
um bílinn má finna á vefsíðunni
www.benni.is eða hjá sölumönnum
í Bílabúð Benna.
É ÁV LAB SINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Ópel Grandland X Innovation. Myndir / HLJ
Glettilega líkur jepplingi, en bara með framhjóladrif.
Ekki þarf að kveikja ljósin í Grandland til að afturljósin komi á eins og í
mörgum bílum.
Farangursrýmið er nokkuð stórt, en varadekkið er það sem ég kalla aumingi.
Í mælaborðinu er hægt að stilla á þrjár mismunandi leiðir til að leggja í stæði
og að því loknu leggur bíllinn sjálfur í stæðið.
Með því að dingla fætinum undir stuðarann að aftan opnast afturhlerinn, gott
ef maður er með fangið fullt af einhverju sem á að fara í farangursgeymsluna.
Hef og mun aldrei sætta mig við
svona stórar felgur og lítið gúmmí.
Þyngd 1.319 kg
Hæð 1.811 mm
Breidd 1.811 mm
Lengd 4.477 mm
Helstu mál og upplýsingar