Bændablaðið - 06.09.2018, Page 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 6. september 2018 47
Viðhald véla er jafn nauðsynlegt
þeim eins og fyrir okkur matur
og drykkir. Að skipta um olíu á
réttum tíma er regla sem ekki
er sett að ástæðulausu sem
leiðbeining í eigandahandbók
sem tækinu fylgir.
Það er hreint með ólíkindum
hvað margir trassa að skipta
reglulega um olíu eða fara
viljandi fram yfir olíuskipti. Sem
verkstæðismaður heyrir maður
ýmsar sögur úr smurolíuhorninu:
„Of dýrt að skipta um olíu, fer
fram yfir olíuskipti viljandi af
því að viðkomandi beitir vélinni
svo mjúklega, ekkert að marka
uppgefinn tíma á olíunni hér á
Íslandi því að hér er svo kalt að
olían dugir lengur.“
Allar þessar útskýringar
eru rangar. Ef skipta á um olíu
samkvæmt handbók á 10.000 km
fresti á að gera það á 10.000 km
fresti og engar undantekningar.
Ég hef séð nýlegan jeppling
sem ekinn var 85.000 km og hann
hafði aldrei farið í smurolíuskipti.
Það tók okkur yfir 30 mínútur að
plokka olíusíuna úr bílnum og það
glamraði svo mikið í vélinni þegar
bíllinn kom inn að það minnti á
grjótmulningsvél. Þessi bíll fór út af
verkstæðinu með nýja olíu og síu,
en það glamraði samt í mótornum.
Vélin brennir olíu
Margir kannast við að þurfa alltaf
að vera að bæta olíu á vélar. Oftast
er orsökin út af einhverju sem á sér
eðlilega útskýringu.
Bílar sem draga mikið kerrur og
vagna eru í meiri hættuflokki en
þeir sem aldrei draga neitt. Einnig
getur verið orsökin að einhvern
tíma hafi verið farið mikið yfir
olíuskipti. Svo eru til bílar sem
alltaf brenna einhverri olíu. Því
er nauðsynlegt að mæla reglulega
smurolíumagnið á bílnum (gott
viðmið er 1000–2000 km fresti).
Margar sjálfskiptingar eru með
lokað kerfi og ekki hægt að mæla
á þeim olíumagnið, það þýðir ekki
að aldrei þurfi að skipta um olíuna
eða að mæla á skiptingunni. Til
eru verkstæði sem sérhæfa sig í að
þjónusta sjálfskiptingar og um að
gera að nýta sér þeirra þjónustu í
að láta þá mæla á skiptingunni og
skipta um sjálfskiptivökvann.
Litlar vélar viðkvæmar fyrir
vetrarakstri
Á veturna er meiri líkur á að raki
komist inn í vélina gegnum öndun
vélarinnar, en þetta er algengt með
litlar vélar sem ná ekki fullum
vinnsluhita oft yfir veturinn og
kólna á milli notkunar.
Við kólnunina dregur vélin
inn í sig rakt vetrarloftið og
með tímanum verður smurolían
ljósbrún. Þetta er hægt að sjá
mjög auðveldlega með því að taka
áfyllingartappann fyrir smurolíuna
og kíkja inn í lokið að innanverðu.
Ef inni í lokinu er ljósbrún froða/
drulla er kominn tími á að skipta
um olíu, jafnvel þó að langt sé
í næstu olíuskipti samkvæmt
smurbókinni.
Það sem er ónýtt, er ónýtt og á
ekki að reyna að laga
Varahlutir kosta mismikið og
eðlilegt að margir reyni að lappa
upp á það sem er að gefa sig, en svo
eru líka til varahlutir sem kosta svo
lítið að ekki borgar sig að laga þá.
Þetta á t.d. við um hljóðkúta,
en að eyða löngum tíma í að sjóða
í haugryðgaðan hljóðkút er ekki
skynsamlegt ef maður metur
vinnustundir hjá sjálfum sér á
sæmileg laun. Að margsjóða í
hljóðkút endar bara á einn veg, eftir
margra tíma suðuvinnu er maður
kominn yfir kaupverð á nýjum
hljóðkút.
Mikið slitin dekk eru hættuleg
Dekkjaverð er í sögulegu lágmarki
núna og að vera á lélegum
dekkjum hefur bara ókosti, fyrir
utan hættuna sem er fyrir hendi á
lélegum dekkjum.
Þegar dekk eru það mikið slitin
að einungis eru eftir í munstrinu
2–3 mm getur bremsuvegalengd
aukist um jafnvel tugi metra. Það
getur hæglega skilið á milli lífs og
dauða.
Einnig að slitin dekk eru miklu
gjarnari á að hirða í sig alls kyns
rusl af veginum, s.s. nagla, skrúfur
og oddhvasst grjót sem gata dekkin.
Þegar dekk springur svo hjá
manni er maður nánast alltaf að
flýta sér, vont veður og maður í
sparifötunum.
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
SNÚA HEYI AÐ BAKI BUNDIÐ BLUND MOKUÐU LAND SKAP-RAUNA
FHLÍTA R A M F Y L G J A
LFJÖRGAST I F N A MÁLMURHRÓP Ú R A N
OEINATT F T S K R Ó P G
J A F T A FLEYHELBER F A R
U BYLGJA ULLAR-FLÓKI SPILKLAKA K A N I GJALDARÚN L A U N A
Í RÖÐHÓPS
KBLAÐRA
UPPGERÐAR-
VEIKI
LIÐUGUR
P A R Í S ÁLAG BEISLISVEIA M Ú L L SLAKUR TEMUR SAMTÖKLEIKUR
P L Ú S ÁKAFLEGASKILABOÐ O F U R
DRYKKJAR-
ÍLÁT
GUMS G L A SAÐ AUKI
D D
MATAR-
ÍLÁT
SÝKJA A S K U R
RENTA
GELDING L E I G ATVEIR EINS
R A S SKJÖNSPENDÝR M I S HINDRAHEIMTING V A R N A PRÓFAÐFLJÓT-FÆRNI
Á
BLAÐUR
SAMS-
KONAR M A S
ÖRLÖG
GLANSA S K Ö P
DÝRA-
HLJÓÐ
TERTA U R R
T E I P ÞRÁÐURUPPISTAÐA G A R N ÍÞRÓTTA-FÉLAG K R SPRÆKUR ELÍMBAND
T I T I L L STÆKKAÓLÆTI A U K A HÓLMIÚR HÓFI E YNAFNBÓT
U
R
N
S
A
STÚLKA
MISJAFN
H
Ó
N
J
Á
A
T
F
A
N
EINS
ÖGN
J
K
A
O
F
R
N
N
T
KVK NAFN
Í RÖÐ
90
RÁÐAGERÐ VOÐ GRAS KRAFTUR DÚTLA ÍSHROÐI ÓLÆTI
RÍKI
TRAUÐUR
VEFENGJA
GEIT
HLEMMUR AFTUR-KALLA
STAMPUR
KVIÐSLIT
ORÐSTÍR NAFAR
YFIRRÁÐ
EINNIG
VERKFÆRI
KLAKIRA
ÁGISKUN
LYGNA
NÁ-
SKYLDUR
DANS
FRAM-
KVÆMA
ÁSTÆÐA
SEFAST FYRIR HÖNDÓÐAGOT
ÞRÁ
AÐGÆTA
ÖRVERPI
ÁSAMT
ÍLÁT
BAND
HAGGA
HANGSA
DULAR-
BLÆR
NÁLÆGT
ELDS
LÆGST
LÆKKA
VAGN
MILDUN ÁMÆLASKÓLI
VEGNA
SNÖGG
SJÓÐA
BERJA
BÓK-
STAFUR
ÁI
KNÚSAST
MÓÐURLÍF
AÐ
MJÖG
TÁKNA
SPRIKL
ÁTT
SAMTÖK
REIPI
ÓRÓI
FLAT-
ORMUR ÁLPAST
ÓBUNDINNÞAKBRÚN
BÓK
DUGNAÐUR
91
Örlítið um vélar, tæki og viðhaldsþörf:
Regluleg olíuskipti jafn nauðsynleg og matur mannfólks