Bændablaðið - 08.03.2018, Side 1

Bændablaðið - 08.03.2018, Side 1
5. tölublað 2018 ▯ Fimmtudagur 8. mars ▯ Blað nr. 510 ▯ 24. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is Búnaðarþing 2018: Samningum við ESB um tollfrjálsa kvóta fyrir landbúnaðarafurðir verði sagt upp Á nýafstöðnu Búnaðarþingi Bændasamtaka Íslands komu fram miklar áhyggjur af tollasamingum sem gerðir voru við ESB á árunum 2007 og 2015. Búnaðarþing 2018 krefst þess að ríkisstjórn Íslands og Alþingi taki stöðu með innlendri matvælaframleiðslu með því að styrkja tollvernd íslensks land búnaðar. Í tillögu um þessi mál, sem samþykkt var á þinginu, er þess jafnframt krafist að magntollar á búvörur verði uppreiknaðir til verðlags dagsins í dag. Þá verði samningum við ESB um tollfrjálsa kvóta fyrir landbúnaðarafurðir frá 2007 og 2015 sagt upp með vísan til breyttra forsendna. Enn fremur verði leitað allra leiða til að nýta heimildir til að leggja tolla á innfluttar búvörur sem einnig eru framleiddar hér á landi. Þá verði innflutt kjöt umreiknað í ígildi kjöts með beini þegar um beinlausar og unnar afurðir er að ræða, við útreikninga á nýtingu gildandi tollkvóta. Í greinargerð með tillögunni segir: „Á síðustu árum hefur orðið gríðarleg aukning í innflutningi á landbúnaðarvörum. Á sama tíma eru bændur innanlands að takast á við metnaðarfullar aðbúnaðarreglugerðir til að bæta aðbúnað sem er vel. Til að fara í þær fjárfestingar er mikilvægt að breytingar í ytra umhverfi landbúnaðarins séu ekki of miklar. Því miður á enn eftir að meta hvaða áhrif tollasamningur við ESB frá 2015 og nýfallinn EFTA- dómur mun hafa á innlenda búvöruframleiðslu. Því er nauðsynlegt að ræða við stjórnvöld um tollverndina og hvernig hún kemur til með að þróast á gildistíma núverandi búvörusamnings. Í þeim viðræðum verði horft til þeirrar staðreyndar að framleiðsluskilyrði hér á landi eru allt önnur en þeirrar búvöru sem er verið að flytja inn, þegar horft er til stærðar framleiðslunnar og kostnaðar við aðföng. Sá aðdragandi sem var að tollasamningum sem gerðir voru við ESB bæði 2007 og 2015 gefur fullt tilefni til að ná fram skýrari stefnu stjórnvalda í tollamálum,“ segir í tillögunni sem samþykkt var á Búnaðarþingi. /HKr. Búnaðarþing 2018 31–34 Stjórn Bændasamtaka Íslands sem kjörin var á Búnaðarþingi þriðjudaginn 6. mars. Talið frá vinstri: Gunnar Kr. Eiríksson, bóndi í Túnsbergi, Eiríkur Blöndal, bóndi á Jaðri, Einar Ófeigur Björnsson, bóndi í Lóni II, Guðrún Tryggvadóttir, bóndi í Svartárkoti, sem kemur ný inn í stjórnina og Sindri Sigurgeirsson, bóndi í Bakkakoti, sem var endurkjörinn formaður samtakanna. Mynd / HKr. Búnaðarþing 2018 ályktaði um fjölmörg mál er varða bændur, þróun matvælaframleiðslu, uppgræðslu, skógrækt, Mynd / HKr. Búnaðarþing 2018 Hér á ég heima Ungir bændur vilja koma að stefnumótun fyrir íslenskan landbúnað 26 Sjálfbærni í minkarækt er algjört lykilatriði 28–30

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.