Bændablaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 2018
„Okkur tekst núna í ár að
heimsækja alla grunnskóla
landsins utan Reykjavíkur
með skemmtilega listviðburði
í farteskinu. Við erum mjög
ánægð með þann árangur,
viðtökur hafa verið góðar og
börnin hafa notið listviðburða
af ýmsu tagi,“ segir Elfa Lilja
Gísladóttir, verkefnasjóri verk-
efnisins List fyrir alla, sem er
barnamenningarverkefni á
vegum mennta- og menningar-
málaráðuneytis.
Þessu verkefni er ætlað að velja
og miðla listviðburðum um land
allt og jafna þannig aðgengi barna
á grunnskólaaldri að fjölbreyttum
og vönduðum listviðburðum óháð
búsetu og efnahag.
Elfa Lilja segir að höfuðáherslan
sé lögð á menningu fyrir börn og
með börnum, með það markmið að
leiðarljósi að öll grunnskólabörn
á Íslandi eigi þess kost að njóta
reglulegra heimsókna listafólks.
„Við setjum stefnuna á að yfir tíu
ára grunnskólagöngu fái börnin að
kynnast fjölbreytileika listanna,
íslenskum menningararfi og list frá
ólíkum menningarheimum,“ segir
hún.
Rúmlega 13.000 börn í samtals
123 grunnskólum njóta listviðburða
skólaveturinn2017–2018. Alls hafa
14 viðburðir af ýmsu tagi verið í
boði. „Við höfum ekki náð að sýna
hverju einasta barni alls staðar á
landinu þessa viðburði, sumir þeirra
eru ætlaðir börnum á yngsta stigi,
aðrir eru fyrir mið- eða unglingastig,
en við höfum náð því að bjóða öllum
skólum upp á listviðburð,“ segir Elfa
Lilja.
Í liðinni viku komu góðir gestir
norður yfir heiðar og buðu börnum
á yngsta stigi grunnskólans, frá
Akureyri og nærsveitum, upp á
hljóðsöguna Heyrðu Villuhrafninn
mig með Dúó Stemmu. Þau Herdís
Anna Jónsdóttir fiðluleikari og Steef
van Oosterhout slagverksleikari
skipa Dúó Stemmu, bæði starfa
sem hljóðfæraleikarar í Sinfóníu-
hljómsveit Íslands.
Umgjörð eins og
best verður á kosið
„Það er virkilega gaman þegar við
getum boðið upp á okkar listviðburði
í menningarhúsum, eins og í Hofi, þar
sem öll umgjörð er eins og best verður
á kosið,“ segir Elfa Lilja. Hún bætir
við að hvarvetna megi finna fyrir
velvilja innan menningarhúsanna
að fá grunnskólanemendur inn í
húsin, en samstarf þar um er m.a.
við Menningarfélag Akureyrar,
Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs,
Salinn í Kópavogi, Listasafn
Árnesinga, Listasafn Íslands,
Þjóðleikshúsið, Edinborgarhúsið á
Ísafirði og Bæjarbíó í Hafnarfirði.
„Við fögnum þessu samstarfi mjög,“
segir hún. Á Akureyri, Húsavík og
nágrannasveitarfélögum mættu
tæplega 1.500 börn úr fyrsta til fjórða
bekk úr alls 19 grunnskólum.
Í lok febrúar upplifðu allir
nemendur í 7.–10. bekk í
Fjarðabyggð og Fljótsdalshéraði
leikritið Skuggamynd stúlku. Það
fjallar um Brynju sem verður vitni
að alvarlegu einelti sem gengur allt
of langt. Hreindís Ylva Garðardóttir
Hólm leikkona fer með hlutverk
Brynju í leikstjórn Agnesar Wild
sem jafnframt sá um tæknihlið
verksins. Nú í byrjun mars fá
nemendur á Austurlandi í heimsókn
brúðugerðarkonuna Greta Claugh
og læra af henni að hanna brúður.
Greta Claugh rekur Brúðuleikhús
á Hvammstanga. „Við fögnum
samstarfi við alla þessa ólíku
listamenn og listhópa,“ segir Elfa
Lilja og bendir á að áhugasamir
geti kynnt sér öll þau verkefni sem
í boði eru á heimasíðu verkefnisins,
listfyriralla.is.
Auk þess sem markmið með
verkefninu List fyrir alla er að
bjóða grunnskólabörnum upp á
vandaðan listviðburð óháð búsetu
og efnahag og jafna þannig aðgang
barna að slíkum viðburðum, segir
Elfa Lilja að með því náist einnig
að tengja saman hóp listamanna og
skólanna sem taka höndum saman
og miðla skemmtilegum viðburðum
til barnanna. Viðburðirnir eru af
ýmsu tagi og snerta flest svið, en
leitast er við að gera allar listgreinar
sýnilegar sem kostur er. Í öllum
tilvikum eru viðburðir unnir af
fagfólki.
Börn eiga aðeins það besta skilið
„Það er langt í frá sama hvernig við
kynnum listviðburð fyrir börnum.
Stundum höfum við fullorðna
fólkið tilhneigingu til að afgreiða
barnamenningu sem léttvæga
afþreyingu í samanburði við hinn
djúpa og flókna menningarheim
fullorðinna. Það er hættulega röng
ályktun því dæmið snýr öfugt. Það er
dauðans alvara að börn lesi bækur,
hlusti og horfi á leikrit, upplifi
litríkar sýningar, njóti tónlistar,
dansi, læri að syngja, semji ljóð
og spili á hljóðfæri. Það er lykill
að framtíð mildi og mannúðar.
Þannig búum við til betra fólk til
framtíðar litið og um leið mannlegri
samfélög og tilvist. Börn eru um
25% þjóðarinnar, þau eru nú þegar
neytendur þegar að listinni kemur,
ekki bara hugsanlegir neytendur
þegar til framtíðar er litið og eiga
því jafnan rétt á við fullorðna að
njóta metnaðarfullrar menningar
við bestu aðstæður. Gæðin verða
ávallt að vera í fyrirrúmi og hvergi
má slaka á kröfum,“ segir Elfa Lilja.
Snertum ekki hvert einasta
hjarta, en ...
Hún bætir við að börn líkt og
fullorðnir hafi ólíkan smekk, sum
taki eitt fram yfir annað, leikrit fram
yfir tónleika eða öfugt. „Við leggjum
því áherslu á að bjóða fjölbreytt
úrval listviðburða. Okkar hlutverk
er að örva skapandi hugsun, hlúa að
mennskunni og virkja kraft og gera
fjölbreytileikann sýnilegan. Við
viljum gefa börnum tækifæri á að
njóta lista og skapandi upplifunar,
þannig þurfum við að flytja listina
til þeirra.
Við gerum okkur grein fyrir
að við snertum ekki hvert einasta
hjarta, en vonandi vaknar áhugi
hjá mörgum úr hópi áhorfenda
sem jafnvel sjá færi á að
vettvangur listarinnar gæti orðið
framtíðarstarfsvettvangur. Börnum
leyfist að hafa skoðun á verkum, við
viljum þjálfa þau í að rýna til gagns,
vekja þau til umhugsunar, og hreyfa
við tilfinningum. Þá er tilgangnum
náð,“ segir Elfa Lilja. /MÞÞ
Barnamenningarverkefnið List fyrir alla:
Rúmlega 13 þúsund börn í 123 skólum víðs
vegar um landið hafa notið listviðburðanna
FRÉTTIR
Miðhraun 2 210 Garðabær Sími 587 1300 kapp@kapp.is www.kapp.is
KLEFAR
Kæli- & frystiklefar
í miklu úrvali.
Vottaðir gæðaklefar með
mikla reynslu á Íslandi.
Einfaldir í uppsetningu.
HILLUR
fyrir kæli- & frystiklefa.
Mikið úrval og auðvelt að setja saman.
Sérhannaðar fyrir matvæli.
KÆLI & FRYSTI
BÚNAÐUR
Hafðu samband í síma 587 1300
og við sérsníðum lausn sem hentar þér!