Bændablaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 56

Bændablaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 2018 Salóme Þóra Valdimarsdóttir og Ólafur Ögmundsson búa í íbúðar- húsi í Hvammbóli þar sem líka er nýtt smáíbúðagistihús. Búskapurinn er á Ketilsstöðum 2 þar sem Þórhildur Jónsdóttir býr, en hún er móðir Salóme. Býli: Ketilsstaðir 2 /Hvammból. Staðsett í sveit: Í Mýrdal. Ábúendur: Þórhildur Jónsdóttir, Salóme Þóra Valdimarsdóttir og Ólafur Ögmundsson. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Þórhildur býr á Ketilsstöðum en Salóme og Ólafur á Hvammbóli ásamt 3 dætrum, þeim Þórhildi, Sædísi og Hörpu, hundunum Tásu og Sölku og kisunni Ísabellu. Stærð jarðar? Rúmir 300 hektarar. Gerð bús? Blandað bú með kýr, sauðfé og ferðaþjónustu. Fjöldi búfjár og tegundir? 73 nautgripir, þar af 24 mjólkurkýr og rúmlega 200 kindur. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Það er nú allur gangur á því. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Sauðburður og hey- skapur er yfirleitt skemmti lega st- ur en viðgerðir á vélum og tækjum leiðinlegastar. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Það fer eftir ýmsu. Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Þau þurfa að vera langtum beinskeyttari. Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Ef stjórnvöld standa sig vel mun honum vegna ágætlega. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Innanlandsmarkaðurinn er mikilvægasti markaðurinn og það ætti frekar að einbeita sér að honum. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, rjómi, grænmeti, beikon og egg. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Lambakjöt, steikt eða soðið. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Hjá Þórhildi er eftirminnilegast þegar gaus í Eyjafjallajökli. Hjá Ólafi og Salóme þegar brúðkaupsafmælisdeginum og -kvöldinu síðasta sumar var eytt í það að bjarga doða belju sem lá pikkföst ofan í læk og draga úr henni kálfinn. Heimabakað hrökkbrauð og lifrarkæfa Það er ekki eins flókið og margir halda að búa til sitt eigið hrökkbrauð né að baka sína eigin lifrarkæfu. Sömuleiðis má auðveldlega læra að gera sitt eigið gómsæta karrí – og Bjarni kokkur sýnir okkur hér hvernig við berum okkur að við eldamennsku á karrí-kartöflurétti sem er ættaður frá Indlandi. Hrökkbrauð með hör- og graskersfræjum Uppskriftin gefur 20–25 stykki. Heimabakað hrökkbrauð og brauð- stangir er auðvelt að baka til að borða sem síðdegissnarl – með smjöri, osti eða súpu. › 1 dl haframjöl › 1 dl sesamfræ › 1 dl af linsufræ › 1 dl sólblómafræ › 1 dl graskersfræ › 2½ dl hveiti › 1 dl rúgmjöl › 1 tsk. lyftiduft › 1 tsk. salt › 2 dl vatn › 1¼ dl holl olía (til dæmis sólblómaolía eða ólífuolía) Aðferð Hrærið saman valsaða hafra, sesamfræ, hörfræ, sólblómaolíu, graskersfræ, hveiti, rúgmjöl, lyftiduft og salt saman. Bætið við vatni og olíu og hrærið í deig sem skipt er í 2 jafna hluta. Rúllið deigið út á tvö blöð af bökunarpappír þangað til þau eru orðin þunn, eða um 2–3 mm. Setjið þau á bökunarplötur. Skerið deigið í ferninga með hníf eða pitsuhníf og bakið við 180 gráður í 15–20 mínútur, eða þar til það er orðið stökkt og gullið. Geymist í 2–3 vikur – ef þú getur látið þau vera það lengi. Hægt er að setja 50 g af rifnu grænmeti í deigið, til dæmis gulrót, rauðrófu, sellerí eða grasker. Kartöflukarrí Fyrir fjóra Á Indlandi er naan-brauð borðað með karríréttum eða hrísgrjónum ef þú vilt glútenlaust. › 1–2 laukur (um 100 g) › 2–3 msk. olía › 1–2 msk. Garam Masala › 1 dós af skrældum tómötum (400 g) › ½–1 dós af kókosmjólk (400 g) › salt › Ferskur malaður pipar › 1 tsk. sykur › 300 g kartöflur › 300 g blómkál, gulrætur eða annað grænmeti sem er við höndina › 50 g grænkál › 2–3 dl vatn › 4 cm engifer › Kókosolía eða önnur olía til steikingar Meðlæti: › Mangó-chutney › Ristaðar möndlur › Jógúrt Sem skraut er gott að nota ferska myntu eða kóríander. Aðferð 1. Skrælið laukinn, skerið gróft niður og blandið saman við olíu í potti við lágan hita í um 10 mínútur. 2. Bætið Garam Masala kryddi og hrærið í nokkrar mínútur. Blandið tómötum saman við og kókosmjólk. Kryddið með salti, pipar og sykri og látið malla í 1/2 klukkustund við vægan hita með lokið á. Skrælið kartöflur og skerið í litla bita. Skerið blómkálið og annað grænmeti í litla bita. Bætið grænmetinu í karríið ásamt ögn af vatni og látið sjóða í aðrar 30 mínútur, eða þar til allt grænmetið er mjúkt. 3. Bætið fínt rifnu engifer saman við síðustu 5 mínúturnar. Bætið grænkáli við síðast og eldið í fimm mínútur til viðbótar. Smakkaðu til með salti. Framreiddu sem meðlæti, eða sem aðalrétt með naan-brauði eða hrísgrjónum 4. Fallegt að skreyta og framreiða með mangó-chutney, möndlum, jógúrt og jurtum að eigin vali. Lifrarkæfa Lifrarkæfuna má laga töluvert áður en hún er borðuð og geyma óbakaða í frysti. Fersku rósmarín og garðablóðbergi má einnig bæta við. Aðferð 1. Svínalifur og svínafita – blandað saman. 2. Laukur og ansjósur sett í blandara og bætt við lifrarblönduna. 3. Smjör brætt í potti og hveiti hrært saman við. Mjólk hellt út í smám saman og búinn til jafningur. 4. Egg sett út í ásamt salti, pipar og negul (og kryddi). Smá rjóma bætt við – blandað saman. 5. Lifrarblöndunni hrært saman við jafninginn og hitað að suðu. 6. Sett í eldfast mót (nokkur – fyllt að 2/3). Þau mót sem ekki á að nota strax eru sett í frystinn. Athugið að ef kæfan er fryst er best að láta formið þiðna í kæli yfir nótt áður en hún er bökuð. 7. Lifrarkæfan bökuð: Ofninn hitaður í 200 gráður (yfir- og undirhiti) og mótið sett í vatnsbað. Lok haft yfir fyrstu 30 mín úturnar. Bakað svo áfram í 30 mínútur án loks og vatnsbaðs. › Berið fram á grófu rúgbrauði með heima bakaðri rauðrófu. › Geymist ágætlega í kæli í nokkra daga. Bjarni Gunnar Kristinsson Matreiðslumeistari MATARKRÓKURINN LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR Ketilsstaðir 2 / Hvammból
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.