Bændablaðið - 08.03.2018, Qupperneq 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 2018
Salóme Þóra Valdimarsdóttir og
Ólafur Ögmundsson búa í íbúðar-
húsi í Hvammbóli þar sem líka er
nýtt smáíbúðagistihús.
Búskapurinn er á Ketilsstöðum 2
þar sem Þórhildur Jónsdóttir býr, en
hún er móðir Salóme.
Býli: Ketilsstaðir 2 /Hvammból.
Staðsett í sveit: Í Mýrdal.
Ábúendur: Þórhildur Jónsdóttir,
Salóme Þóra Valdimarsdóttir og
Ólafur Ögmundsson.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Þórhildur býr á Ketilsstöðum en
Salóme og Ólafur á Hvammbóli
ásamt 3 dætrum, þeim Þórhildi, Sædísi
og Hörpu, hundunum Tásu og Sölku
og kisunni Ísabellu.
Stærð jarðar? Rúmir 300 hektarar.
Gerð bús? Blandað bú með kýr,
sauðfé og ferðaþjónustu.
Fjöldi búfjár og tegundir? 73
nautgripir, þar af 24 mjólkurkýr
og rúmlega 200 kindur.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Það er nú allur gangur á því.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Sauðburður og hey-
skapur er yfirleitt skemmti lega st-
ur en viðgerðir á vélum og tækjum
leiðinlegastar.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár? Það fer eftir ýmsu.
Hvaða skoðun hafið þið á
félagsmálum bænda? Þau þurfa
að vera langtum beinskeyttari.
Hvernig mun íslenskum
landbúnaði vegna í framtíðinni?
Ef stjórnvöld standa sig vel mun
honum vegna ágætlega.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra
búvara? Innanlandsmarkaðurinn
er mikilvægasti markaðurinn og það
ætti frekar að einbeita sér að honum.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk, rjómi, grænmeti, beikon og
egg.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Lambakjöt, steikt eða
soðið.
Eftirminnilegasta atvikið
við bústörfin? Hjá Þórhildi er
eftirminnilegast þegar gaus í
Eyjafjallajökli. Hjá Ólafi og Salóme
þegar brúðkaupsafmælisdeginum og
-kvöldinu síðasta sumar var eytt í það
að bjarga doða belju sem lá pikkföst
ofan í læk og draga úr henni kálfinn.
Heimabakað hrökkbrauð og lifrarkæfa
Það er ekki eins flókið og
margir halda að búa til sitt eigið
hrökkbrauð né að baka sína eigin
lifrarkæfu.
Sömuleiðis má auðveldlega læra
að gera sitt eigið gómsæta karrí – og
Bjarni kokkur sýnir okkur hér hvernig
við berum okkur að við eldamennsku
á karrí-kartöflurétti sem er ættaður
frá Indlandi.
Hrökkbrauð
með hör- og graskersfræjum
Uppskriftin gefur 20–25 stykki.
Heimabakað hrökkbrauð og brauð-
stangir er auðvelt að baka til að borða
sem síðdegissnarl – með smjöri, osti
eða súpu.
› 1 dl haframjöl
› 1 dl sesamfræ
› 1 dl af linsufræ
› 1 dl sólblómafræ
› 1 dl graskersfræ
› 2½ dl hveiti
› 1 dl rúgmjöl
› 1 tsk. lyftiduft
› 1 tsk. salt
› 2 dl vatn
› 1¼ dl holl olía (til dæmis sólblómaolía
eða ólífuolía)
Aðferð
Hrærið saman valsaða hafra,
sesamfræ, hörfræ, sólblómaolíu,
graskersfræ, hveiti, rúgmjöl, lyftiduft
og salt saman. Bætið við vatni og olíu
og hrærið í deig sem skipt er í 2 jafna
hluta.
Rúllið deigið út á tvö blöð af
bökunarpappír þangað til þau eru
orðin þunn, eða um 2–3 mm. Setjið
þau á bökunarplötur. Skerið deigið
í ferninga með hníf eða pitsuhníf og
bakið við 180 gráður í 15–20 mínútur,
eða þar til það er orðið stökkt og
gullið.
Geymist í 2–3 vikur – ef þú getur látið
þau vera það lengi.
Hægt er að setja 50 g af rifnu grænmeti
í deigið, til dæmis gulrót, rauðrófu,
sellerí eða grasker.
Kartöflukarrí
Fyrir fjóra
Á Indlandi er naan-brauð borðað með
karríréttum eða hrísgrjónum ef þú vilt
glútenlaust.
› 1–2 laukur (um 100 g)
› 2–3 msk. olía
› 1–2 msk. Garam Masala
› 1 dós af skrældum tómötum (400 g)
› ½–1 dós af kókosmjólk (400 g)
› salt
› Ferskur malaður pipar
› 1 tsk. sykur
› 300 g kartöflur
› 300 g blómkál, gulrætur eða annað
grænmeti sem er við höndina
› 50 g grænkál
› 2–3 dl vatn
› 4 cm engifer
› Kókosolía eða önnur olía til steikingar
Meðlæti:
› Mangó-chutney
› Ristaðar möndlur
› Jógúrt
Sem skraut er gott að nota ferska
myntu eða kóríander.
Aðferð
1. Skrælið laukinn, skerið gróft
niður og blandið saman við olíu
í potti við lágan hita í um 10
mínútur.
2. Bætið Garam Masala kryddi
og hrærið í nokkrar mínútur.
Blandið tómötum saman við og
kókosmjólk. Kryddið með salti,
pipar og sykri og látið malla í
1/2 klukkustund við vægan hita
með lokið á. Skrælið kartöflur
og skerið í litla bita. Skerið
blómkálið og annað grænmeti
í litla bita. Bætið grænmetinu
í karríið ásamt ögn af vatni og
látið sjóða í aðrar 30 mínútur,
eða þar til allt grænmetið er
mjúkt.
3. Bætið fínt rifnu engifer saman
við síðustu 5 mínúturnar. Bætið
grænkáli við síðast og eldið
í fimm mínútur til viðbótar.
Smakkaðu til með salti.
Framreiddu sem meðlæti, eða
sem aðalrétt með naan-brauði
eða hrísgrjónum
4. Fallegt að skreyta og framreiða
með mangó-chutney, möndlum,
jógúrt og jurtum að eigin vali.
Lifrarkæfa
Lifrarkæfuna má laga töluvert áður
en hún er borðuð og geyma óbakaða
í frysti.
Fersku rósmarín og garðablóðbergi
má einnig bæta við.
Aðferð
1. Svínalifur og svínafita –
blandað saman.
2. Laukur og ansjósur sett
í blandara og bætt við
lifrarblönduna.
3. Smjör brætt í potti og hveiti
hrært saman við. Mjólk hellt
út í smám saman og búinn til
jafningur.
4. Egg sett út í ásamt salti, pipar
og negul (og kryddi). Smá
rjóma bætt við – blandað
saman.
5. Lifrarblöndunni hrært saman
við jafninginn og hitað að
suðu.
6. Sett í eldfast mót (nokkur –
fyllt að 2/3). Þau mót sem
ekki á að
nota strax
eru sett í
frystinn.
Athugið
að ef
kæfan
er fryst
er best
að láta
formið
þiðna í
kæli yfir
nótt áður
en hún er bökuð.
7. Lifrarkæfan bökuð: Ofninn
hitaður í 200 gráður (yfir-
og undirhiti) og mótið sett í
vatnsbað. Lok haft yfir fyrstu
30 mín úturnar. Bakað svo
áfram í 30 mínútur án loks og
vatnsbaðs.
› Berið fram á grófu rúgbrauði
með heima bakaðri rauðrófu.
› Geymist ágætlega í kæli í
nokkra daga.
Bjarni Gunnar Kristinsson
Matreiðslumeistari
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Ketilsstaðir 2 / Hvammból