Bændablaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 31

Bændablaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 2018 Setningarathöfn Búnaðarþings 2018 var haldin mánudaginn 5. mars síðastliðinn í Súlnasal á Hótel Sögu. Búnaðarþing stóð yfir í tvo daga samkvæmt nýju fyrirkomulagi. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sagði í ræðu sinni að mótvægisaðgerðir væru nauðsynlegar vegna EFTA- dómsins. Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, flutti setningarræðu og ræddi þar meðal annars sanngjörn starfsskilyrði, sem væri málefni sem brynni á bændum um þessar mundir, og fór yfir möguleg viðbrögð við EFTA-dómnum frá því í nóvember síðastliðnum. Tollvernd mikilvægur hluti af landbúnaðarstefnunni Sindri sagði að staða tollverndar í landbúnaði tengdist sanngjörnum starfsskilyrðum. „Nú er hún með þeim hætti að stjórnvöld hafa fellt niður tolla – stundum einhliða – á öllum vörum nema matvörum sem jafnframt eru framleiddar hér innanlands. Um ekkert annað er því að semja ef til stendur að gera fríverslunarsamninga við aðrar þjóðir. Tollvernd er mikilvægur hluti af landbúnaðarstefnunni og gera verður kröfu til þess að hún skili árangri þar sem henni er beitt. Tollar eru að hluta til föst krónutala. Upphæðir hafa í mörgum tilvikum ekki breyst í meira en 20 ár og þar af leiðandi rýrnað verulega að verðgildi. Hátt gengi krónunnar undanfarin misseri kemur síðan þar til viðbótar. Verndin er því bitlaus og nær ekki þeim markmiðum sem hún þarf að ná. Vissulega taka sumir tollar einnig mið af innflutningsverði en það er fjarri því almenn regla. Tollum er ætlað að jafna samkeppnisstöðu miðað við þær framleiðsluaðstæður sem eru fyrir hendi en nú er það ekki raunin. Fara þarf yfir álagningu tolla í heild og tryggja að þeir skili því sem þeim er ætlað. Þá verður að nefna gildistöku tollasamnings við ESB sem undirritaður var í september 2015. Samningurinn tekur gildi 1. maí nk. en verður að fullu kominn til framkvæmda í byrjun árs 2021. Kvótar ESB fyrir tollfrjálsan innflutning hingað til lands munu fimmfaldast á tímabilinu, en kvótar Íslands á markað ESB munu á sama tíma ríflega þrefaldast. Stjórnvöld settu á fót starfshóp sem skilaði tillögum um viðbrögð við áhrifum samningsins, en þær tillögur virðast hafa stungist djúpt í skúffur ráðuneytisins. Þær hafa að minnsta kosti, lítt eða ekki komist til framkvæmda. Það verður að breytast. Það þarf að taka tillit til hagsmuna heildarinnar, ekki bara hagsmuna heildsala, sem æði oft eru dulbúnir sem hagsmunir neytenda,“ sagði Sindri. Niðurstaða EFTA-dómstólsins veldur verulegum áhyggjum Þá vék Sindri talinu að dómi EFTA- dómstólsins frá því í nóvember síðastliðnum, þar sem gildandi skilyrði fyrir innflutningi á hráu kjöti, ógerilsneyddri mjólk og eggjum væri brot á EES-samningnum. „Þessi skilyrði voru tekin upp þegar íslensk stjórnvöld innleiddu matvælalöggjöf Evrópusambandsins árið 2009. Málið spratt upphaflega af kvörtun Samtaka verslunarinnar til ESA 2011. Við meðferð þess lögðu íslensk stjórnvöld fram margvísleg gögn þess efnis að takmarkanirnar sem deilt var um væru eðlilegar með vísan til 13. greinar EES- samningsins. Hún fjallar um heimild til takmörkunar á viðskiptafrelsi í því skyni að vernda heilsu manna og dýra. Niðurstaða dómstólsins var eftir sem áður að taka með engu mið af 13. greininni í niðurstöðunni. Talið var að hún ætti ekki við. Niðurstaða sem þessi veldur verulegum áhyggjum af því hvort að EES-ríkin séu raunverulega á jafnréttisgrundvelli gagnvart Evrópusambandinu. Í sáttmála ESB eru sambærilegar heimildir og 13. grein EES-samningsins sem ekki hefur verið hnekkt. Þessi staða er verulegt umhugsunarefni fyrir stjórnvöld og fyllsta ástæða til að ræða við Evrópusambandið um raunverulega þýðingu þessara varnagla. Að óbreyttu virðast þeir lítils virði. Vísindamenn hafa bent á að afnám ofangreindra takmarkana muni þýða verulega aukna áhættu á ýmsum sviðum fyrir heilsu manna og dýra,“ sagði Sindri. Hann sagði miklu máli skipta hver næstu skref stjórnvalda yrðu í málinu og Bændasamtökin teldu besta kostinn í stöðunni að tafarlaust verði óskað eftir viðræðum við Evrópusambandið og látið á það reyna hvort hægt verði að halda núgildandi löggjöf áfram, með samningum þess efnis. Full rök standi til þess þó að EFTA-dómstóllinn hafi því miður ekki tekið tillit til þeirra. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra, segir að Ísland þurfi einhvers konar aðlögun að þeim breytingum sem EFTA-dómurinn mun hafa í för með sér. Mótvægisaðgerðir nauðsynlegar vegna EFTA-dóms Því næst flutti Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ræðu. Hann sagði það ljúft og skylt að geta svarað nýlegum erindum frá Bændasamtökum Íslands við setningu Búnaðarþings. Vísaði Kristján þar til óska um aðgerðir vegna EFTA-dómsins áðurnefndan og aðgerða vegna aukinna tollfrjálsra kvóta á búvörum frá Evrópusambandinu. Sagði Kristján að nauðsynlegt væri að grípa til mótvægisaðgerða við væntanlegar breytingar vegna EFTA-dómsins. „Í ljósi þessa er undirbúningur mótvægisaðgerða á byrjunarstigi og ljóst að það mun taka tíma að koma þeim í framkvæmd. Því er augljóst í mínum huga að við getum ekki ráðist í þessar breytingar í dag eða á morgun – við þurfum einhvers konar aðlögun að þeim breytingum og er sú vinna farin af stað. Þannig er í gangi vinna við að sækja til ESA svokallaðar viðbótartryggingar vegna salmonellu í kjöti af alifuglum og eggjum en þess má geta að Norðurlöndin hafa fengið slíkar tryggingar. Einnig munum við leggja ríka áherslu á öryggi matvæla og að vernd búfjárstofna sé tryggð. Þá hefur verið komið á samstarfi við þýsku áhættumatsstofnunina BfR, Bundesinstitut für Risikobewertung, sem mun veita ráðgjöf um sýnatöku á markaði og aðgerðir til að koma í veg fyrir útbreiðslu á kampýlóbakter og salmonellu,“ sagði Kristján. Varðandi tollabreytingarnar sagði Kristján að sjálfsagt sé að taka hugmyndir Bændasamtaka Íslands til skoðunar. „Ég segi hins vegar ykkur hér í dag að þessir samningar fela í sér mikil tækifæri fyrir bæði neytendur en ekki síður íslenskan landbúnað,“ sagði Kristján. Hann bætti því við að hann hefði skilning á því að hluti íslenskra bænda upplifði óvissu og óöryggi um sína framleiðslu, en ekki megi vanmeta sóknarfæri sem íslenskur landbúnaður fær til að koma vörum sínum á erlendan markað. Þetta sé lykilatriði að hans mati. /smh Fjöldi mála afgreidd Setning Búnaðarþings 2018 Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og hjónin í Bakkakoti, Kristín Kristjánsdóttir og Sindri Sigurgeirsson, sem var endurkjörinn formaður Bændasamtaka Íslands á Búnaðarþingi 2018. Myndir / HKr. Guðný Helga Björnsdóttir frá Bessastöðum, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri BÍ, Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Sindri Sigurgeirsson, formaður BÍ og Kristín Kristjánsdóttir. Guðrún Lárusdóttir búnaðarþingsfulltrúi og Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur Bændasamtaka Íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.