Bændablaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 9
9Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 2018
Í samræmi við sjálfbærnisstefnu
Hótels Fljótshlíðar þá hafa
starfsmenn mælt lífrænan úrgang
í nokkur tíma, sett sér markmið
og innleitt verklag til að draga úr
matarsóun hótelsins.
„Já, við settum okkur það
markmið fyrir árið 2017 að draga
úr matarsóun um 25% á milli ára.
Niðurstöður liggja nú fyrir og það
kom okkur ánægjulega á óvart að
þær aðgerðir sem við gripum til
leiddu til þess að matarsóun fyrir
hvern gest var hvorki meira né minna
en 57% minni árið 2017 miðað
við árið á undan,“ segir Arndís
Soffía Sigurðardóttir hótelstjóri,
hæstánægð með árangurinn.
Sofna ekki á verðinum
Arndís Soffía segir að margt hafi
verið gert á hótelinu til að draga
úr matarsóuninni. „Fyrst þurftum
við að komast að því hvar við
stæðum með mælingum. Þá tók
við markmiðssetning, fræðsla til
starfsfólks og hvatning til gesta til að
draga úr sóun. Við tókum innkaupin
okkar í gegn og framsetningu
hlaðborða.
Margs konar verklag í eldhúsi var
innleitt til að sporna við sóun. Þá
er stór þáttur í þessum árangri nýtt
skipulag á kælum og birgðum sem
veitti betri yfirsýn. Fyrst og fremst
er mikilvægt að hafa markmið til
að keppa að og vera sífellt að leita
nýrra leiða til að draga úr sóuninni,
reyna að sofna ekki á verðinum,“
segir Arndís Soffía og leggur áherslu
á að allir starfsmenn voru tilbúnir að
vinna að verkefninu og ná tilsettu
markmiði sem tókst. /MHH
góðir hálsar
Um 200 íslenskir karlmenn greinast árlega með krabbamein
í blöðruhálskirtli. Með því að kaupa Mottumarssokkana
leggur þú baráttunni gegn krabbameini í blöðruhálskirtli lið.
Pantaðu þitt par í vefverslun okkar á mottumars.is # mottumars
Hótel Fljótshlíð nær frábærum árangri í betri nýtingu matvæla:
Matarsóun minnkaði um 57% á milli ára
Sérstök sjálfbærnisstefna er rekin á Hótel Fljótshlíð sem hefur virkað mjög vel.
Arndís Soffía Sigurðardóttir, hótelstjóri
og einn eigenda hótelsins.
Umferðin í nýliðnum febrúar
á Hringveginum dróst saman
um 2,6 prósent sé tekið mið af
sama mánuði fyrir ári síðan.
Samdráttinn má líklega rekja til
tíðarfarsins sem var óvenju erfitt
í mánuðinum.
Mest dróst umferðin saman á
Vesturlandi, eða um rúm 7 prósent,
en umferð jókst mest um teljarasnið
á Austurlandi, um ríflega 9%.
Hvað einstaka teljarasnið varðar
þá dróst umferðin mest saman um
Hringveg undir Hafnarfjalli, eða
um 10,6%, aftur á móti varð mesta
aukningin um teljarasnið á Fagradal
á Austurlandi, eða um 10,8%.
Þrátt fyrir samdrátt miðað við
síðasta ár mældist umferðin, í
nýliðnum febrúar, sú næstmesta
í febrúarmánuði frá upphafi
samantektar, að því er fram kemur
á vef Vegagerðarinnar. /MÞÞ
Umferð á Hringvegi:
Tæplega 3% sam-
dráttur í febrúar