Bændablaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 46

Bændablaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 2018 Nýtum tækifæri framtíðar með nýsköpun Á FAGLEGUM NÓTUM „Forsenda þess að landbúnaður geti nýtt tækifæri framtíðarinnar er jafnvægi í framleiðslu, skilvirkt eftirlit og nýsköpun“ Ofangreind fyrirsögn er í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og eru orð að sönnu. En hvað þýðir hún? Hvert er samhengi tækifæra framtíðar, jafnvægis í framleiðslu, skilvirks eftirlits og nýsköpunar? Þessu þarf að svara og það verður einvörðungu gert með því að móta skýra stefnu um matvælaframleiðslu á Íslandi. Það þarf að svara spurningunni: „Hvað viljum við í raun að íslenskur landbúnaður geri?“ Í þessu samhengi viljum við benda á vinnu sem unnin var vegna atvinnustefnu á árunum 2012–2013 og vegna lífhagkerfisstefnu á árunum 2015–2016, sem fjöldi bænda kom að. Hvernig geta margar þúfur velt þungu hlassi? Íslenskur landbúnaður er lítil atvinnugrein. Í dag eru framleidd um 4.000.000.000 tonna af matvælum á heimsvísu. Íslenskur landbúnaður er af stærðargráðunni 200.000 tonn (um 0,005% af heimsframleiðslu). Flestir íslenskir bændur myndu teljast smábændur í alþjóðlegum samanburði og rannsókna-og nýsköpunarumhverfið er dvergvaxið og í raun tiltölulega illa samhæft, þó margt standi til bóta í þeim efnum að okkar mati. Samhengi rannsókna og virðiskeðju landbúnaðarafurða er auk þess ekki skýrt og allt of algengt að bolmagn rannsókna sé ekki nægilegt til að hafa raunveruleg áhrif á hag bænda og annarra frumkvöðla í virðiskeðjunni. Þessu þarf að breyta, með aðferðum gírunar (e. leverage). Dæmi um gírun eru einstaklingar sem nota lántökur sem vogarafl (e. lever) til þess að ná meiru fram en þeim einum væri mögulegt. Aðföng frá einstaklingum og sambýlisfólki eru lögð við aðföng frá fjármálastofnun og niðurstaðan er að fjölskylda getur komið þaki yfir höfuðið og þar með velt þungu hlassi. Fyrir bændur og landbúnað gilda sömu lögmál. Ráðuneyti og ríkisaðilar þurfa að leggja saman krafta sína og vinna þvert á sílóskipulag. Einkaaðilar og fjárfestar þurfa að fjárfesta með langtímahagsmuni að leiðarljósi í stað þess að einblína á næsta þriggja mánaða uppgjör. Sjálfbær matvælaframleiðsla er hlassið sem þarf að velta Sjálfbærni snýst um að framtíðarhagsmunir séu tryggðir en velferð nútímafólks á sama tíma í hávegum höfð. Til þess þarf að skilja og vinna að traustu samhengi efnahags, umhverfis og samfélags. Í þeim efnum er Ísland ekki eyland, enda höfum við áhrif á aðra og aðrir áhrif á okkur. Súrnun sjávar vegna mengunar og dómar EFTA dómstólsins eru tvö dæmi. Þriðja dæmið er árangur Íslendinga í nýsköpun í sjávarútvegi, sem er öðrum þjóðum innblástur til góðra verka. Sá árangur ætti að vera íslenskum landbúnaði innblástur, en stofnun AVS sjóðsins árið 2003 og Tækniþróunarsjóðs árið 2004 voru lykilvörður á þeirri vegferð að ríflega tvöfalda verðmæti á hvert kg afla. Aðrar þúfur sem velt hafa því hlassi eru t.d. heildarsýn á markaðsdrifna virðiskeðju, fjárfestingar í rannsóknum og búnaði og þor til að fara út fyrir rammann og starfa saman þvert á ólík fyrirtæki og stofnanir, með það meginmarkmið að auka verðmæti íslensks sjávarfangs. Mun íslenskur landbúnaður bjarga heiminum? Íslenskur landbúnaður mun ekki bjarga heiminum frá hungri, en á mikil tækifæri á sérvörumarkaði, þar sem eftirspurn vex hraðar en á öðrum matvörumörkuðum. Lífræn ræktun, uppruni, óspillt land, hrein orka og staðbundin matvælaframleiðsla eru lykilorð. Lykilspurning út frá fæðuöryggi Íslendinga er: Hvað viljum við að íslenskur landbúnaður geti framleitt mikið af matvælum án þess að komi til innflutningur aðfanga? Við erum lítið betur sett, út frá sjónarmiðum fæðuöryggis, ef flytja þarf inn verulegt magn aðfanga til matvælaframleiðslu, en með því að flytja inn sjálf matvælin. Við þurfum að setja okkur markmið um íslenskan land búnað og móta stefnu til að ná þeim markmiðum. Er Ísland land hráefnisfram- leiðslu (e. commodities) eða byggjum við ímynd okkar á gögnum um heil næmi og náttúru- vernd og samþættum hagsmunum ferðaþjónustu við hagsmuni landbúnaðar og sjávarútvegs? Ætlumst við til þess að veitingastaðir hafi íslensk matvæli og íslenska tungu í fyrirrúmi? Við þurfum að ákveða hver skal stefnt. Innan ramma stefnumörkunar þarf að gefa frumkvöðlum frjálsræði til að láta reyna á nýjar lausnir, til að takast á við breytta tíma og breytta hugsun. Reynsla og innviðir sem byggðir hafa verið upp þurfa að nýtast til framtíðar. Við þurfum að skilja hverjir eru lykilsamstarfs- og hagaðilar í nútíð og framtíð og miðla með skýrum hætti þeim aðgerðum sem ráðast þarf í. Þær aðgerðir þurfa að taka mið af Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun (e. Sustainable Development Goals) og Parísarsáttmálanum. Áhættumat er grundvöllur skynsamlegrar matvælastefnu Aukin eftirspurn eftir matvælum á heimsvísu mun líklega ýta matvælaverði upp á við. Landverð fer hækkandi víðast hvar, ræktarland minnkar vegna gróðurhúsaáhrifa og öfgafull veður valda uppskerubresti. Allt eru þetta áhættuþættir þegar kemur að fæðuöryggi og sveiflum á matvælaverði. Sýklalyfjaþol baktería er raunveruleg áhætta og án þess að falla í gryfju einangrunarhyggju, eigum við að ræða opinskátt kosti þess að ýta undir fjölbreytta matvælaframleiðslu með fæðuöryggi, byggðaþróun og lýðheilsu að markmiði. Felast tækifæri í að auka frjálsræði í slátrun og heimavinnslu lambakjöts og markaðssetningu afurðanna til ferðamanna og annarra í nærumhverfinu? Felst raunverulega í slíku fyrirkomulagi óásættanleg áhætta þegar vísindalegum aðferðum áhættumats er beitt? Áhættumat er grundvöllur skilvirks eftirlits Traust er grundvöllur viðskipta og viðhorfs neytenda. Það tekur langan tíma að byggja upp en skamman tíma að brjóta niður. Skilvirkt eftirlit er ein forsenda þess að byggja upp traust og sýna fram á gæði íslenskrar matvælaframleiðslu og heilindi innan virðiskeðjunnar. Til að eftirlit geti verið skilvirkt þarf að framkvæma vísindalegt, óháð áhættumat. Slíkt áhættumat gerir greinarmun á stórum framleiðslueiningum og minni einingum og á eðli dreifingar matvæla. Það gerir í raun eftirlit sanngjarnara, ef svo má að orði komast, þar sem tekið er tillit til mismunandi aðstæðna, án þess að öryggi fólks sé stofnað í hættu. Áhættumat er grundvöllur nýsköpunar Nýsköpun er drifkraftur sjálfbærs efnahagslegs vaxtar. Með vísindalegu áhættumati er lagður grunnur að fjölbreytni og sveigjanleika í regluverki, sem er forsenda þess að nýsköpun dafni. Með nýrri hugsun og innleiðingu tæknilausna getum við minnkað umhverfisáhrif af framleiðslu íslenskra landbúnaðarvara, dregið úr innflutningi aðfanga, aukið verðmæti og fjölbreytileika afurða og bætt arðsemi. Víða um sveitir Mynd 1. Með samstilltu átaki má lyfta grettistaki í átt til sjálfbærrar matvælaframleiðslu á Íslandi. Mynd 4. Hluti þeirra verkefna sem Matís vinnur að sem miða að auknum verðmætum landbúnaðar. Rannsókna- og fyrirtækisins á árunum 2015–2016 hefur sjónum verið beint í auknum mæli að auðlindum lands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.