Bændablaðið - 08.03.2018, Síða 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 2018
Ný umbótaáætlun í fráveitumálum
fyrir Skútustaðahrepp og 13
rekstraraðila hefur verið samþykkt.
Umbótaáætlunin var gerð vegna
krafna frá Heilbrigðisnefnd
Norðurlands eystra.
Um er að ræða tímasetta og
fjármagnaða áætlun um úrbætur
þar sem fram kemur hvernig og
fyrir hvaða tíma sveitarfélagið og
rekstraraðilar muni fullnægja kröfum
um ítarlegri hreinsun en tveggja
þrepa þar sem við á.
Helstu breytingar frá fyrri áætlun,
sem skilað var inn 15. júní í fyrra,
er að nýja umbótaáætlunin byggist
á nýrri lausn sem felst í aðskilnaði
svartvatns (frá salernum) og grávatns,
söfnun svartvatns í lokaðan tank
og endurnýtingu næringarefna til
uppgræðslu á Hólasandi í samstarfi
við Landgræðsluna.
Fram kemur í pistli Þorsteins
Gunnarssonar sveitarstjóra að
umbótaáætlunin er fjármögnuð að
fullu og meginmarkmiðum skipt upp
í áfanga til næstu fjögurra ára.
„Umbótaáætlun er í raun orðin
að umhverfisvænu stórverkefni í
Mývatnssveit þar sem á sjálfbæran hátt
er verið að nýta seyru til uppgræðslu
á stað þar sem næringarefni skortir.
Verkefnið nýtist sveitarfélaginu
og fyrirtækjum sem vilja draga úr
kolefnisspori sínu með því að græða
upp land. Landgræðslan dregur með
þessu móti úr notkun á tilbúnum
áburði til uppgræðslu ár hvert og
með innkaupum sveitarfélagsins
og rekstraraðila á vatnssparandi
salernum sparast mikið magn af
vatni,“ segir Þorsteinn í pistli sínum.
Sveitarstjórn hefur samþykkt
umbótaáætlunina samhljóða og var
sveitarstjóra falið að senda hana inn
til heilbrigðisnefndar Norðurlands
eystra. Umbótaáætlunin verður
kynnt opinberlega á næstunni þegar
búið er að hnýta alla lausa enda.
/MÞÞ
FRÉTTIR
Garðar Kári Garðarsson,
matreiðslumeistari hjá Eleven
Experience - Deplar Farm, bar
sigur úr býtum í keppninni um
nafnbótina Kokkur ársins 2018,
sem haldin var 24. febrúar
síðastliðinn.
Keppt var í Hörpu þar sem
gestir gátu fylgst með keppendum
að störfum. Yfirdómari í 11
manna dómnefnd var Christopher
W. Davidsen frá Noregi.
Hann er margverðlaunaður í
keppnismatreiðslu og hefur meðal
annars unnið til silfurverðlauna í
hinni kunnu keppni Bocuse d‘Or.
Þátttökuréttur í Nordic Chef
Garðar Kári öðlast þátttökurétt í
Nordic Chef-keppninni á næsta ári,
sem verður haldin á Íslandi.
Í fyrra var það Hafsteinn
Ólafsson á Sumac Grill + Drinks
sem bar sigur úr býtum.
Garðar heillaði
stjörnudómarann
Í tilkynningu frá mótshöldurum er
haft eftir Christopher að keppendur
hafi komið vel undirbúnir til leiks
og að keppnin hafi verið hörð.
„... ég verð að hrósa þessum
ungu íslensku kokkum fyrir þeirra
framlag og er sérstaklega hrifinn af
Garðari Kára, sem kom og heillaði
dómnefndina með sínum flotta
mat og faglegu vinnubrögðum.
Ísland er hágæða matarland og
íslenskir kokkar standa sig afar vel
í alþjóðlegum samanburði svo sem
í alþjóðlegum matreiðslukeppnum,“
sagði Christopher. /smh
Þrír efstu. Þorsteinn Geir Kristinsson, Garðar Kári Garðarsson og Sigurjón Bragi Geirsson. Myndir / Sigurjón Ragnar
Garðar Kári er Kokkur ársins 2018
Björn Bragi Bragason, forseti Klúbbs matreiðslumeistara, Harpa Sigríður
Óskarsdóttir, sem aðstoðaði Garðar Kára, Garðar Kári Garðarsson og Dagur
B. Eggertsson borgarstjóri.
Slitlag á vegum landsins er víða
mjög illa farið eftir veturinn og
umhleypinga undanfarið.
Umfangið er það mikið að ekki
verður unnt að laga allt samstundis,
segir í frétt á vef Vegagerðarinnar og
því eru vegfarendur beðnir að aka
með gát, vera viðbúnir hugsanlegum
skemmdum, hvort heldur er á
malbiki eða klæðningu. Starfsmenn
Vegagerðarinnar hafa eftirlit með
vegum og grípa til aðgerða um
leið og þeir verða varir við eða fá
tilkynningar um holur á vegum.
Fjárveitingar til viðhalds
lægri en þörf er á
Vegakerfið, sem er í umsjón
Vegagerðarinnar, er tæplega
13.000 kílómetra langt og þar
af eru um 5.500 kílómetrar með
bundnu slitlagi. Fjárveitingar til
viðhalds hafa mörg undanfarin ár
verið lægri en Vegagerðin telur
þörf fyrir til að sinna viðhaldi sem
þýðir að að einhverju marki verða
skemmdir í slitlagi heldur meiri eftir
umhleypingatíð en ella.
Við þær veðuraðstæður sem ríkja
hér á landi verður þó aldrei hægt að
koma alveg í veg fyrir að skemmdir
í malbiki eða klæðningu komi í ljós
þegar vorar.
Aðstæður eru heldur ekki alltaf
til að lagfæra vegaskemmdir um
leið og þeirra verður vart en í
slíkum tilvikum er brugðist við með
merkingum þegar þörf er á.
Starfsmenn Vegagerðarinnar
vinna hörðum höndum við að laga
allra verstu vegaskemmdirnar en
Vegagerðin biðlar til ökumanna að
sýna sérstaka aðgæslu við aksturinn.
/MÞÞ
Vegagerðin biðlar til ökumanna að sýna sérstaka aðgæslu við aksturinn.
Slitlag á vegum landsins
er víða mjög illa farið
– Vegfarendur hvattir til að aka með gát
Vegur númer 35, ofan Múla, lítur ekki
sérlega vel út.
Kjöraðstæður til að eyðileggja bæði dekk og felgur.
Væn hola við Gljúfurá.
Ný umbótaáætlun í fráveitumálum í Skútustaðahreppi:
Næringarefni verða endurnýtt
til uppgræðslu á Hólasandi
Liður í vinnu Mývetninga við nýja umbótaáætlun í fráveitumálum var að
heimsækja Hrunamannahrepp og kynna sér samstarfsverkefni sveitarfé-
laganna í uppsveitum Árnessýslu og Landgræðslunnar sem gengur út á
var tekin í þeirri heimsókn: Jóhanna Katrín, Helgi, Yngvi Ragnar, Reynir frá
Myndi / Skútustaðahreppur