Bændablaðið - 08.03.2018, Síða 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 2018
Í fyrstu grein var fjallað um
útplöntun og uppeldi í öðru
tölublaði Bændablaðsins 2018.
Þessi grein fjallar um blómgun
sem er mikilvæg til að fá
söluhæfa uppskeru.
Blómgun
Þegar jarðarberjaplantan myndar
blómvísana, þá gerist það að hausti
og skilar sér næsta sumar sem
blómklasar ef aðstæður eru réttar.
Berin sem myndast úr blóminu
vaxa út frá þrútnum blómbotni.
Blómgun jarðarberjaplantna ræðst
af arfgerð plöntunnar, daglengd
og lofthita. Plönturnar sem eru
notaðar við gróðurhúsaframleiðslu
jarðarberja hér á landi eru
langdagsplöntur (LD plöntur) og
þurfa því lengri dag en nótt til að
blómstra. Til þess að tryggja að
jarðarberjaplöntur myndi blóm í
gróðurhúsinu þarf lofthitastig og
daglengd að vera rétt.
Æskilegt lofthitastig og
daglengd fyrir jarðarberjaplöntur
í gróðurhúsi er 16°C daghiti og
8°C næturhiti. Daglengdin þarf
að vera frá 12-16 klst til þess að
plönturnar blómstri. Á meðan
blómgun stendur er nauðsýnlegt
að tryggja að plönturnar fái
nóg vatn og næringu en það er
mikilvægt svo að uppskera verði
góð.
Frjóvgun
Blómin sem myndast eru tvíkynja
og þarf því að tryggja víxlfrjóvgun
en býflugur (Mynd 1) sjá best um
það verk. Frjóvgunin er skilyrði
sem verður að uppfylla ef berin
eiga að þroskast rétt svo þau geti
náð réttri stærð og verði ekki
útlitsgölluð. Hvert blóm er opið í
2–3 daga svo að frjóvgunin þarf að
eiga sér stað á því tímabili. Þegar
jarðarberjaplöntur eru ræktaðar
utandyra þá er frjóvgunin síður
vandamál þar sem vindur, skordýr
og flugur eru til staðar til þess að
sinna frjóvguninni, þó getur alltaf
borið á ófrjóvguðum blómum inni
á milli.
Það er hægt að fylgjast með
hvort blóm frjóvgast eða ekki.
Ófrjóvgað blóm er gult (Mynd 2),
en þegar blóm er frjóvgað breytist
liturinn og þá verða nokkrir litlir
dökkir (brúngulir) punktar á
blóminu (Mynd 3). Það er hægt
að fylgjast með frjóvgun með því
að merkja blóm og skoða næstu
þrjá daga hvort að býflugur hafi
skilið eftir sig merki.
Þegar blómin eru opin, en
aðeins fá þeirra hafa verið
frjóvguð, þá getur verið að lengja
þurfi opnunartíma býflugnabús,
skýjað veður hefur letjandi áhrif
á afkastagetu býflugunnar, bú
getur verið orðið gamalt og lítið
eftir af býflugum. Það hefur
neikvæð áhrif á magn uppskeru
ef frjóvgunin er léleg.
Hins vegar getur það líka gerst
að býflugur frjóvgi of mikið
(offrjóvgun). Sem er þegar lítið
af frjói er eftir í blóminu og þær
fara að bíta í blómbotninn, það
gerist þegar búið er opið of lengi
og of mikið af býflugum er í boði
og of lítið af opnum blómum. Í
staðinn fyrir að fá lítinn dökkan
punkt á blómið, sem sýnir að
það hafi verið frjóvgað, verða
margir dökkir punktar (Mynd 4).
Það leiðir seinna til ósöluhæfra,
útlitsgallaðra og illa lagaðra berja.
Umhirða blómklasa
Blómklasana þarf að passa
sérstaklega vel til að tryggja að
þéttleiki berjanna, bragðgæði og
ending sé viðunandi. Það er mikið
atriði að passa að ekkert brot
myndist á stöngli blómklasanna
því það dregur þá úr dreifingu
næringarefna sem þarf að berast til
berjanna. Skortur á næringarefnum
til berjanna veldur því að berin
verða súr, eru með harðan kjarna
og berin eru lítil. Ráðlegt er að hafa
stuðning (t.d. rör eða borða) fyrir
klasana til að tryggja að þeir brotni
síður (Mynd 5).
Til að auðvelda vinnu við
blómaklasana er ráðleggt að halda
laufblöðum frá klösunum með
bandi þegar jarðarberjaræktun er
stór í sniðum. Laufblöð eiga að vera
fyrir innan band.
Christina Stadler,
Börkur Halldór Bl Hrafnkelsson,
Elías Óskarsson
LANDBÚNAÐARHÁSKÓLI ÍSLANDS
Jarðarberjaræktun í gróðurhúsi – 2. hluti:
Blómgun
Bókaðu tíma í síma 568 6880 eða á www.heyrnartaekni.is
Fáðu heyrnartæki til prufu
Akureyri | Borgarnes | Egilsstaðir | Húsavík | Reykjanesbær | Sauðárkrókur | Selfoss
Um árabil hefur Heyrnartækni veitt þjónustu víðs vegar
um landið. Við bjóðum upp á mikið úrval vandaðra
heyrnartækja í ólíkum verðflokkum. Kannaðu hvenær Árni
Hafstað heyrnarfræðingur verður næst í nágrenni við þig.
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
Hamrahlíð 17
Hús Blindrafélagsins
Sími 552-2002
ÓDÝR
Margskipt gleraugu
Verð 39.900 kr
Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tvær vikur)
Marg i t l augu
Umgjörð og gler