Bændablaðið - 08.03.2018, Síða 57
57 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. mars 2018
Twist – snúningssokkar
Þessir sokkar eru skemmtilega
stílhreinir og frekar einfaldir að
prjóna. Ekki skemmir fyrir að í
marsmánuði er Drops Delight og
Drops Fabel með 30% afslætti
svo þá er tilvalið að skella í
skemmtilega sokka, vettlinga eða
sjöl.
Þeir sem ekki eiga heimangengt
í verslunina geta verslað garnið í
netversluninni okkar á www.garn.is.
Stærð:
35/37 - 38/40 - 41/43.
Lengd fótar: ca 22 - 24 - 27 cm
Garn: Drops Fabel
100 gr í allar stærðir litur nr 602, silfur refur
Sokkaprjónar nr 2,5 – eða sú stærð sem þarf til að
24L og 32 umf í sléttu prjóni = 10x10 cm.
ÚRTAKA (á við um hæl):
Prjónið þar til 2L eru eftir á undan prjónamerki,
prjónið 2L slétt saman, prjónamerki, takið 1L
óprjónaða, 1L sl, steypið óprjónuðu L yfir.
VINSTRI SOKKUR:
Fitjið upp 56-60-64 lykkjur. Prjónið 2 umf slétt.
Prjónið nú stroff þannig: *Prjónið 1L sl, 3L br*,
endurtakið frá *-*. Þegar stroffið mælist 4 cm er
prjónað áfram þannig: Setjið 1 prjónamerki í 1. L
og 1 prjónamerki í 25.- 29.- 33. L. Haldið áfram
með stroff 1 sl, 3 br, JAFNFRAMT í hverri umf er
fækkað um 1L eftir fyrsta prjónamerki og aukið
út um 1L á undan seinna prjónamerki þannig að
stroffið færist til. Fækkið lykkjum með því að taka
1L óprjónaða við prjónamerki, prjónið 1L, steypið
óprjónuðu lykkjunni yfir og aukið út með því að
slá uppá prjóninn á undan seinna prjónamerki –
uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt eða brugðið
í næstu umf og jafnóðum inn í stroff. Lykkjufjöldinn
er alltaf sá sami. Haldið svona áfram þar til stykkið
mælist 17-18-19 cm. Prjónið nú inn lausan þráð
yfir síðustu 31L á prjóninum, (eins og þegar merkt
er fyrir þumli), lykkjur fyrir hæl. Haldið nú áfram
með stroff yfir 25-29-33 L ofan á rist, en slétt yfir
restina á lykkjunum. Haldið áfram með snúninginn
eins og áður, en þær lykkjur sem aukið er út eru hér
eftir prjónaðar með sléttu prjóni, fjöldi lykkja í stroffi
fækkar, fjöldi lykkja með sléttu prjóni eykst. Haldið
svona áfram þar til stykkið mælist 11-13-16 cm frá
lausa þræðinum (= ca 5 cm til loka, allar lykkjur eru
nú prjónaðar með sléttu prjóni). Setjið 1 prjónamerki
í hvora hlið þannig að það verða 28-30-32 L ofan á
rist og 28-30-32 L undir il. Prjónið nú slétt prjón yfir
allar lykkjurnar, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað við
tá hvoru megin við bæði prjónamerkin. Fellið
af á undan prjónamerki 1L sl, 2 sl sm, og á eftir
prjónamerki prjónið 1L sl, 2L snúið slétt saman.
Fellið af á hvorri hlið í annarri hverri umf alls 7
sinnum og síðan í hverri umf 3 sinnum = 16-20-
24 lykkjuur eftir á prjónunum. Í næstu umf eru
allar lykkjur prjónaðar saman 2 og 2. Klippið frá
og dragið bandið í gegnum þær lykkjur sem eftir
eru, herðið að og festið vel.
HÆLL:
Dragið út lausa þráðinn og skiptið lykkjunum
hvoru megin við þráðinn á sokkaprjóna nr 2,5 =
62L. Byrjið frá hlið og prjónið þannig: Prjónið yfir
31L undir hæl, prjónið upp 2 nýjar lykkjur frá hlið,
prjónið yfir 31L aftan við hæl og prjónið upp 2
nýjar lykkjur frá hlið = 66L. Setjið 1 prjónamerki á
milli 2 nýrra lykkja á hvorri hlið. Prjónið sléttprjón,
JAFNFRAMT er fækkað á hvorri hlið í annarri hverri
umf alls 10 sinnum – LESIÐ ÚRTAKA! = 26L eftir
á prjóninum. Prjónið 1 umf yfir allar lykkjurnar.
Fellið af. Saumið saman hæl með lykkjuspori, við
affellingarkantinn.
HÆGRI SOKKUR:
Fitjið upp og prjónið eins og vinstri sokkur, nema
þegar stroffið færist til er það gert þannig: Setjið 1
prjónamerki í 1. L og 1. prjónamerki í 29.- 33.- 37.
L. Haldið áfram með stroff 1 sl, 3 br, JAFNFRAMT
í hverri umf er aukið út um 1L á eftir fyrsta
prjónamerki og fækkað um 1L á undan öðru
prjónamerki þannig að stroffið færist til. Aukið
út með því að slá uppá prjóninn á eftir fyrsta
prjónamerki, uppslátturinn er prjónaður snúinn
slétt eða brugðið í næstu umf og jafnóðum inn í
stroff. Fellt er af á undan öðru prjónamerki þannig:
Prjónið lykkju með prjónamerki og lykkju á undan
slétt saman. Haldið áfram eins og á vinstri sokk.
Prjónakveða
Mæðgurnar í Handverkskúnst
www.garn.is
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
6 7 1 2
9 5 1 7
5 3 4
3 4 7 6 5
1 6 8 9
4 8 3 5 2
9 2 5
1 3 8 9
2 3 6 4
Þyngst
8 3
5 1 7 4
2
4 8 6 3
9 4 1
2 8 7 4
4
7 1 9 4
5 6
8 2 9
3 6 1
4 1 8 5
5 7
6 4
2 1
3 9 4 8
6 8 1
4 2 3
9 7 8
4 8 2 5
3 2
5 9 1
1 4
6 3 8
7 9
9 5 7 3
6 4 1
Jákvæður söngfugl
Isabella Ásrún er jákvæður
söngfugl sem er hjálpsöm við að
baka kökur. Hún er einnig dugleg
að passa hvolpana og að aðstoða í
fjárhúsunum.
Nafn: Isabella Ásrún.
Aldur: 6 ára.
Stjörnumerki: Krabbi.
Búseta: Gilsbakka í Öxarfirði.
Skóli: Öxarfjarðarskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Smíðar.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Köttur
og hundur.
Uppáhaldsmatur: Pitsa.
Uppáhaldshljómsveit: Legó
(hljómsveitin hans pabba).
Uppáhaldskvikmynd: Mamma mia.
Fyrsta minning þín? Þegar við fórum
í Astrid Lindgren-garðinn í Svíþjóð.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Æfi á píanó og syng mikið
heima.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Ballerína.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Vera á hesti án þess að
halda mér í.
Hvað ætlarðu að gera skemmtilegt
á þessu ári? Fara til Svíþjóðar og
hitta litla frænda eða frænku.
Næst » Isabella Ásrún skorar á bróður sinn,
Carl Mikael, að svara næst.
HANNYRÐAHORNIÐ
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ