Fóstra - 01.10.1931, Síða 8
6
Fóstra. 1. hefti. I. ár.
vegna þess, að enginn staður á landinu er jafnilla hús-
aður og höfuðborgin í hlutfalli við fólksfjölda, svo að
stærsta hús bæjarins rúmar n. 1. %0 af íbúunum. En
hvernig væri að skifta borginni i smáhverfi, þar sem
hver deild væri undir stjórn góðs foringja. Yæri þá
léttara fyrir hvern og einn að skygnast um sína sveit
og sjá hvar skórinn kreppir. Gætu svo foringjarnir
komið saman og gert heildarályktanir og ráðstafanir.
Þessu er slegið hjer fram til umhugsunar. Spái jeg þvi,
að þessi fjelagsskapur eigi eftir að myndast og vinna
ómetanlegt gagn, en hve fljótt það verður, er undir fólk-
inu sjálfu komið. En án sliks fjelags getur ekki skóh og
heimili starfað á rjettan hátt.
Foreldrar, reynið að kynnast af eigin sjón og raun
skólanum. Það er staður, þar sem barn ykkar dvelur
allmikinn hluta af dýrmætustu árum æfinnar, i þeim
tilgangi að geta orðið sjer og öðrum að sem mestu
gagni og gæfu. Gerið ykkur ómak, til þess að kynnast
kennara barnsins, og hjúkrunarkonu. Komi þau heim
á heimili ykkar, þá munið, að þau koma sem vinir, til
þessaðvinnagottverk.Fylgiðmeðáhuga öllu skólastarfi
barnsins. Þið eigið heimtingu á að fá að vita um alla
aðbúð þess, líkamlega, andlega og siðferðilega, úti og
inni. Leyfið engum að tala illa um skólann i viðurvist
barnsins. Dragið að leggja dóm á starf skólans, þar til
þjer hafið ýtarlega kynt yður málavexti af eigin sjón og
raun. Ef eitthvað er að, þá komið þegar með það til
kennara, skólastjóra eða eftirlitsmanns.
Ætlið barninu stað og tíma til heimanáms, svo að
það geti stundað það óhindrað. Jeg veit að húsnæðis-
vajidræðin eru hjer Ijón á veginum. Úr þessu má oft