Fóstra - 01.10.1931, Blaðsíða 26

Fóstra - 01.10.1931, Blaðsíða 26
24 Fóstra. 1. hefti. I. ár. vera til sem sjerstök þjóð, ef við höfum ekki efni á því að halda við og efla alþýðumenninguna i landinu? En það þarf að gera meira en að bæta kjör kennar- anna, það þarf einnig að gjörbreyta sjónarmiði og starfsháttum skólanna. Mikilsmetinn skólamaður hjer á landi sagði nýlega um mann, sem hafði starfað með honum við barna- skóla, að hann væri óaðfinnanlegur kennari. Samt sem áður mátti skilja á öðrum ummælum þessa skóla- manns, að hinn „óaðfinnanlegi“ kennari væri á engan hátt meira en meðalmaður i starfinu. Enda var dóm- urinn „óaðfinnanlegur“ rökstuddur með því, að „það hefði ekkert komið fyrir“ hjá þessum kennara. Með öðrum orðum, kennaranum hafði tekist að láta börnin ganga i röðum eftir göngum skólans, að láta þau sitja nokkurnveginn stilt í kenslustundum, svo engir „skand- alar“ gerðust þar, og að láta þau læra meira og minna utanað lögskipaðar kenslubækur. Að dómi áðurnefnds skólamanns er svona kennari óaðfinnanlegur, og þá auðvitað sá skóli óaðfinnanlegur, sem getur látið kenn- ara starfa á þennan hátt. Hvort sem þessi hugsunarháttur og þessi skilningur á hlutverki skólans er eign fleiri eða færri skólamanna vorra, þá þarf hann að upprætast, og hugtökin „óað- finnanlegur kennari“ og „óaðfinnanlegur skóli“ að fá alt aðra og göfugri merkingu. Hugsjónin, óaðfinnanlegur kennari, ætti að vera í hugum allra, sem að skólamálum starfa, maður, sem með töfrakrafti sterkrar persónu getur kallað fram hjá hverju barni alla þá þroskamöguleika, sem i þvi búa, og sem með skarpskygni sjerfræðingsins sjer hvað

x

Fóstra

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fóstra
https://timarit.is/publication/1425

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.