Fóstra - 01.10.1931, Blaðsíða 25

Fóstra - 01.10.1931, Blaðsíða 25
Fóstra. 1. hefti. I. ár. 23 Launin eru svo lítil, að það er ómögulegt að lifa af þeim eingöngu. Afleiðingin verður sú, að kennarar tak- ast á hendur allskonar aukastörf, óhjákvæmilega á kostnað kenslunnar, sem hjá sumum verður beinlínis hjáverk. Og í stað þess, að nota tómstundirnar til að afla sjer meiri þekkingar og meiri áhuga á uppeldis- starfinu, þá er þeim oft varið til alóskyldra starfa, og kennarinn kemur þreyttur og áhyggjufullur í kenslu- stundina. Þetta er alvörumál, sem almenning varðar, og sem hann á að gera að sínu máli. Það verður að krefjast þess, að kjör barnakennara verði bætt þegar í stað, og meiri kröfur gerðar til mentunar þeirra. Þetta er sama sem krafa um meiri og betri þroskaskilyrði fyrir börn- in, og glæsilegri framtíðarmöguleika fyrir íslensku þjóðina. Það verður ef til vill mörgum á að segja, að í þessari kreppu sje það skýjaglópsháttur að gera kröfu um aukin útgjöld fyrir bæi og riki. En því er til að svara, að sú þjóð, sem hefir efni á að flytja árlega inn i land- ið eiturnautnavörur fyrir miljónir króna, og veit, að allmikill hluti þessara munaðarvara fer til æskulýðs- ins, hún á erfitt með að bera við fátækt, þegar farið er fram á nokkra tugi þúsunda í þeim tilgangi, að koma börnum þjóðarinnar til meiri þroska. Má geta þess til samanburðar, að sumar þjóðir, sem á undanförnum árum hafa lent í mestum fjárhagsvandræðum, eins og t. d. Austurríki, hafa talið sjer hag í því á erfiðustu tímum að auka stórkostlega útgjöld til uppeldismála. Þá er og á það að lita, að stolt okkar íslendinga og jafnvel tilverurjettur okkar er alþýðumenningin. Yakn- ar því auðveldlega spurningin: Höfum við efni á því að

x

Fóstra

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fóstra
https://timarit.is/publication/1425

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.