Fóstra - 01.10.1931, Blaðsíða 12
10
Fóstra. 1. hefti. I. ár.
Heilsuvarðveisla
er það starf nefnt, að reyna að koma í veg fyrir sjúk-
dóma. Menn fara oft ekki að hugsa alvarlega um að
vernda heilsuna fyr en hún er farin. Þá er stundum
of seint að byrgja brunninn. Menn þreifa á því betur
og betur, að eitt lóð af heilsuvarðveislu er betra en
vætt af lækningum. Heilsuhæli eru góð, en þúsund
sinnum betra er að kenna ungu fólki að lifa svo heil-
brigðu lífi, að það þurfi ekki að koma þangað.
Hver er tilgangur heilsuvarðveislu?
Tilgangur heilsuvarðveislu er aðallega þrennur, seg-
ir Sir Arthur Newsholly.
1. Að fyrirbyggja sjúkdómana.
2. Að bæta heilsufarið.
3. Að ala einstaklingana þannig upp, að ná megi hinni
fullkomnustu þroskun og samræmi likamlega, and-
lega og siðferðilega.
Próf. Winslow segir:
„Einn aðalþátturinn í nýtísku heilsuvarðveislu er
uppfræðsla einstaklinganna i heilsusamlegum lifnaðar-
háttum, og til þess starfs hefir heilsuvarðveisluhjúkr-
unarkonan reynst best fallin“.
Ungfrú Þorbjörg Árnadóttir, fyrv. yfirhjúkrunar-
kona á Vífilstöðum, hefir sjerstaklega kynt sjer alt er
lýtur að heilsuvarðveislu í mörgum löndum og náð
ágætu prófi við háskólann i Washington í þeim fræð-
um. Sumargjöfin hefir fengið hana til þess að semja
eftirfarandi heilsureglur. S. A.