Fóstra - 01.10.1931, Blaðsíða 14
12
Fóstra. 1. hefti. I. ár.
barnið borði vel áður en það fer í skólann á morgn
ana.
3. Svefn. Gætið þess, að barnið fái nógan svefn; fari
snemma að hátta og sofi fyrir opnum gluggum, sem
herðir það gegn kvefi og öðrum lasleika.
4. Persónulegt hreinlæti. Venjið barnið á að þvo sjer
um hendurnar á undan hverri máltíð, bursta tennurn-
ar a. m. k. einu sinni á dag, taka volgt sápubað a. m.
k. einu sinni í viku (hárþvottur einu sinni í viku).
5. Frítími. Látið barnið hafa vissan tima á hverjum
degi til að leika sjer úti við og annan til undirbúnings
námsgreinunum.
6. Melting. Gætið þess að meltingin sje í góðu lagi,
og að barnið hafi hægðir einu sinni á sólarhring.
Ef eitthvað er að barninu, þá munið að leita læknis-
hjálpar í tima, dráttur á slíku getur haft alvarlegar
afleiðingar í för með sjer.
Þorbjörg Árnadóttir, hjúkrunarkona.
Heldur kýs jeg þá hættu, sem frjáls umræða um
kynsleg efni hefir i för með sjer, en hina meiri hættu
af meinráðum þagnarinnar.
Dr. Cosmo Gordon Lang, erkibiskup af Canterbury.