Fóstra - 01.10.1931, Blaðsíða 27

Fóstra - 01.10.1931, Blaðsíða 27
Fóstra. 1. hefti. I. ár. 25 hverju barni er vænlegast til þroska og mentunar á hverju augnabliki. Hugsjónin óaðfinnanlegur skóli ætti að vera staður, sem veitti hverju barni, er skólann sækti hin fullkomn- ustu þroska- og vaxtarskilyrði líkama og sálar. Þrátt fyrir ýmsa annmarka á barnafræðslu vorri, sem bent hefir verið á hjer að framan, og sem auðvelt Iiefði verið að rökstyðja betur, ef rúm hefði verið til, þá er saga íslenskrar barnafræðslu ekki að öllu von- laus raunasaga. Margir ágætismenn hafa helgað henni krafta sína og unnið gott verk og gagnlegt fyrir börn- in og þjóðina, þrátt fyrir erfið kjör og ill ytri skilyrði. Nú, t. d., vinna hjer við barnaskóla Reykjavíkur ekki svo fáir kennarar, sem með fádæma dugnaði og „i trássi“ við þjóðfjelagið og lífskjörin liafa aflað sjer góðrar mentunar, og brenna af áhuga fyrir endurbótum á kjörum barna. Almenningur ætti að veita starfi þess- ara manna athygli, og styðja þá með ráði og dáð, ekki vegna þeirra sjálfra, heldur vegna þess málefnis, sem þeir vinna fyrir, málefnis kynslóðarinnar, sem á að skapa íslandi örlög eftir nokkur ár. Almenningur getur styrkt þessa menn og hugsjónir þeirra með því að vinna að þvi að kjör þeirra verði bætt, svo að þeir geti helgað alla krafta sína uppeldis- starfinu. Hann getur styrkt þá með því, að gera kröfur um að þeir fái bætt skilyrði til að auka mentun sína, og loks með því, að þeir sem eiga börn sin í kenslu hjá þeim, reyni að skilja þá og vinna með þeim á vinsam- legum grundvelli. Þess skal getið í þessu sambandi, að kennarar Nýja barnaskólans hafa tekið sig saman um það, að reyna að ná sem allra nánastri samvinnu við heimili þeirra barna

x

Fóstra

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fóstra
https://timarit.is/publication/1425

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.