Fóstra - 01.10.1931, Blaðsíða 19

Fóstra - 01.10.1931, Blaðsíða 19
Fóstra. 1. hefti. I. ár. 17 Heilsufar og hreinlæti skólabarna. Nokkrar bendingar. FÆÐI. „Matur er mannsins megin“, segir gamalt mál- ----- tæki. Þetta er rjett, ef fæðið er skynsamlega valið, ekki síst þegar skólabörn eiga í hlut. Mataræði þeirra í Reykjavík mun einkum áfátt að því leyti, að mörg börn fá ekki næga mjólk. Aðaldrykkir skóla- barnsins eiga að vera nýmjólk og vatn. Kaffi eða sítrón- vatn má gefa þeim til hátíðabrigðis, en enganvegin dag- lega. Sumar mæður láta börnin hafa sítrón með sjer i skólann, með matarbitanum. Þetta er misráðið. Það getur ekki komið í stað nýmjólkur, og er auk þess dýr drykkur. Kaffi og snúðar er smánarleg fæða handa skólabörn- um. Mjólk og rúgbrauð eða normalbrauð á að koma í staðinn. I rúgnum er lífefni, sem hveitið vantar. Gott er að börnin fái jarðarávöxt, kálmeti og nýja ávexti, eftir þvi sem efni leyfa. Reynið að telja börnin á að kaupa sjer nýja ávexti fyrir þá aura, sem annars fara i sælgæti! Þorskalýsi er einhver dýrmætasti hollustugjafi ís- lendinga. Skólabarnið ætti að taka það allan veturinn — þótt ekki sje nema ein matskeið á degi hverjum. Sum eiga því miður bágt með bragðið. Mæðurnar geta gefið ungbarninu nokkra dropa af lýsi á dag, og vanið það þannig við. Sumum börnum fellur best að taka inn lýsið um háttatíma. TENNUR. Tannskemdir valda ekki eingöngu tann- -----—pínu og vökunóttum. Læknar telja, að tann- holurnar sjeu gróðrarstíur fyrir margskonar sýkla, sem

x

Fóstra

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fóstra
https://timarit.is/publication/1425

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.